Vorið - 01.08.1971, Síða 31

Vorið - 01.08.1971, Síða 31
vatnsflóðið æðandi með ægihraða. Sléttan var allt í einu orðin að ólgandi liafi. Mannliæðar- hátt grasið var horfið eins og það liefði á einu andartaki verið slegið með ljá. Það var nú ljóst, að liinar miklu ár höfðu flætt yfir bakka sína, og nú æddi vatnið út yfir Pampassléttuna. Plóð- bylgjan nálgaðist nú óðum, en ferðamennirnir riðu undan eins og liestarnir gátu komizt. A - rangurslaust skimuðu þeir eftir einhverju hæli, sem borgið gæti lífi þeirra, og nú voru liest- arnir orðnir svo trylltir af ótta, að mennirnir áttu fullt í fangi með að sitja þá. G-lenvan leit við og við um öxl. „Flóðbylgjan nær okkur,‘1 hugsaði hann. „Áfram! Áfram!“ lirópaði Talkave. Vatnið hækkaði með hverri sekúndu, sem leið. Oldurnar voru að verða stærri og stærri. Það hoðaði ótvirætt, að líöfuðbylgjan færðist nær og nær. Enn stóð baráttan við þessa trylltu liöf- uðskepnu í fjórðung stundar. Plóttamcnnirnir gátu ekki gert sér grein fyrir, live langa leið þeir liöfðu lialdið þannig áfram, en það hlaut að vera löng leið. Vatnið náði nú liestunum S brjóst, og þeir áttu orðið erfitt um gang. Allir voru farnir að búast við dauða sínum, einir og yfirgefnir úti á þessu mikla reginliafi. Hestarnir gátu nú naumast liaklið sér niðri lengur. Eftir litla stund hlutu þeir að grípa til sunds. Hér verður ekki gerð tilraun til að lýsa jreim skelfingum, sem ferðamennirnir urðu að ganga 1 gegnum næstu mínútur. Allar vonir um björg- un voru að engu orðnar. Enginn mannlegur máttur gat lengur afstýrt liræðilegum dauðdaga þessara ógæfusömu manna. Enginn gat hjálpað — nema Guð einn. Hestarnir liöfðu nú lagzt til sunds, en bár- ust aðeins með straumnum með ægihraða. Björg- un virtist með öllu óhugsandi. En þegar öll sund virtust lokuð, kallaði majórinn: „Tré!“ „Tré! Hvar?“ spurði Glenvan. „Þarna! Þarna!“ kallaði Talkave. Hann benti á risavaxið tré, sem stóð upp úr vatnsflaumnum eins og klettur úr hafi. Þessu tré urðu þeir að ná. Straumurinn bar þá líka óðfluga í sömu átt. í þessum svifum heyrðist veikt hnegg frá hesti Tom Austins, og eftir andartak var hann horfinn, en húsbóndi hans, sem hafði getað losað sig úr ístöðunum, synti knálega áfram. Vorið „Haltu þér í linakkinn minn,“ kallaði greif- inn til hans. „Þakka, ég hef það af hjálparlaust/ ‘ kallaði Tom. „En þinn hestur, Eóbert?“ spurði Glenvan. „Hann er ágætur. Hann syndir eins og fisk- ur.“ „Gætið ykkar!“ kallaði majórinn af öllum kröftum. Hann hafði varla sleppt orðinu, þegar aðal- flóðbylgjan skall á þá. Þessi risavaxna hrönn féll yfir menn og liesta með slíkum ægikrafti, að allt hvarf í hringiðuna í einni svipan, en þungur og dimmur niður fyllti loftið válegum óhugnaði. Þegar mesta flóðbylgjau var um garð geng- in, komu mennirnir aftur upp á yfirborðið, en allir hestarnir voru gersamlega liorfnir, nema Toka, sem enn bar húsbónda sinn á bakinu. „Verið hugrakkir! Verið hugrakkir!" kallaði Glenvan, um leið og hann náði til Paganels og synti með hann að trénu. Nú var tréð á að gizka í níu faðma fjarlægð, og eftir skamma stund höfðu allir komizt þang- að heilu og liöldnu. Þetta mátti heita mikil Guðs mildi, þegar ekki var annað sjáanlegt en að all- ir drukknuðu í vatnsflóðinu. Vatnið náði upp á móts við neðstu greinarn- ar á trénu. Það var því auðvelt að halda sér þarna föstum. Talkave varð að skilja sig við hest sinn og hóf sig léttilega upp á neðstu greinarnar, er hann hafði bjargað Eóbert og öllum hinum á „þurrt land' ‘. „Þú skilur við Toka?“ mælti Paganel við Tal- kave. „Ég!“ kallaði Indíáninn. Hann fleygði sér samstundis út í hringiðuna og kom aftur upp spölkorn frá trénu. Eftir and- artak hafði hann vafið hinum sterku örmurn sínum um hálsinn á Toka, og maður og hestur bárust með leifturliraða hlið við hlið út í straumiðuna og liurfu brátt sjónum þeirra, sem höfðust við í trénu. Næst: TÓLPTI KAPÍTULI Sem fuglar himinsins. „Kennarinn: „Hvers vegna -komstu ekki í enskutímann í gær, Einar?“ Einar: „Ég var svo kvefaður, að ég gat okki oinu sinni talað íslenzku, hvað þá onsku.‘ ‘ 139

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.