Vorið - 01.12.1971, Síða 2
Hið bezta barn
Hin sœlasta móðir
Hann sem fæddist í Betlehem Iiina fyrstu jólanótt, hann er bezta
barnið, sem fæðst hefur á jörðinni. Þú hefur heyrt um það, hve her-
bergið, sem hann fæddist í, var fátæklegt, og vaggan hans var ekki veg-
leg, en það var bjart þar inni, því himininn var opinn yfir þeim stað,
og englar Guðs stigu niður yfir barninu. Móðirin horfði á barnið sitt
með fögnuði og bjartri von. — Og sveinninn óx, en gleði móðurinnar
minnkaði ekki. — Það er oft, að móðir, sem gleðst yfir litla barninu
sínu og þrýstir því að hjarta sér með sælli von, verður fyrir vonbrigð-
um þegar barnið vex; svo að eftir ])ví sem barnið vex, þverrar gleði
móðurinnar yfir því. Það er vegna þess, að það vill ekki breyta eftir
barninu, sem fæddist í Betlehem. Iíann óx og styrktist. — Syndin fékk
aldrei leyfi til að hindra þroska lians, eða á nokkurn hétt að veikja
hann. Iljarta hans var hreint. Sá, sem er hreinn, hann er sterkur. —
Viltu ekki Jíkjast honum í því að varðveita hjarta þitt hreint? Hann
vill hjálpa þér til þess. Hann óx og styrktist, fullur vizhu. — Sönn
vizka er það, að elska Guð og treysta lionum og gera vilja lians. Þessa
vizku átti sveinninn, sem fæddist í Betlehem og óx upp í Nazaret. —
Vilt þú ekki eignast þessa vizku? Ilorfðu þá á Jesú og hann mun
kenna þér, ef þú með einlægu lijarta vilt,. ■—- Hann óx og styrktist,
fullur vizku, og náð Guðs var yfir honum. — Eins og blómið breiðir
krónuna móti sólunni og teygar ljósið og ylinn, þannig tók hann á
móti geislunum frá náðarsól Guðs, eins og kærleikskossi föður síns á
himnum. Hann bar með sér þetta sólskin hvar sem hann var; það skein
frá augum hans, það lýsti út frá orðum hans og kom fram í verkum
hans. Þegar hann var inni, var bjartara í stofunni og móðir hans gladd-
ist. Þegar hann lék sér með öðrum börnum var leikurinn fagur og
börnin urðu betri og glaðari, þegar hann var með þeim. Gleði hans var
hrein. Meðaumkun hans með þeim, sem bágt áttu, var sönn. — Kær-
leiki hans var fullkominn. Viltu ekki opna hjarta þitt fyrir náð Guðs,
svo þú getir eignast lunderni Jesú? Veldu hann þér að leiðtoga, þá getur
þú verið móður þinni og öðrum til gleði. Það er leiðin til að eignast
gleðileg jól. Y.