Vorið - 01.12.1971, Page 15

Vorið - 01.12.1971, Page 15
Kynnti hann Thorvaldsen íyrir Frans Austurríkiskeisara, sem tók honum vel og fól honum að gera minnisvarða. Um síðir lauk þessari sigurför Thorvaldsens um Evrópu, og til Rómar kom hann 16. desember og var vel fagnað við heim- komuna af vinum og nemendum. Þegar hér var komið sögu Alberts Thorvaldsen, var vinnustofa lians ekki lengur þröngt verkstæði, þar sem liann var einn að kúldrast, eða með tvo þrjá nema og aðstoðarmenn. Nú unnu þar um 40 menn, nemendur og starfsmenn. Thorvaldsen gerði frumdrætti og að- stoðarmenn unnu úr teikningum og stækkuðu smámyndir, því hann var mesti stóriðjuhöldur í listverkaframleiðslu frá því á dögum Miehelangelós. Samfara frægðinni varð vinnutími hans ó- drýgri, því að heimsóknir stórmenna gerðust tíðari og tímafrekari og sumum þeirra varð hann sjálfur að sýna myndir sínar; meðal þessara gesta var hans heil- agleiki Leó páfi XII, sem kom í heimsólui til hans árið 1826. Sem áður getur, gerði Albert skírnar- font fyrir Brahetrolleborg, en síðar lét hann höggva annan svipaðan, sem hann œtlaði að gefa kirkjunni á Miklabæ í Skagafirði, þar sem afi hans var prestur. ^ar liann ákvarðaður sem gjöf til feðra- eyjar hans, „til þess íslands, sem gaf fronum það nafn, sem nú er nefnt með svo mikilli virðingu í veröldinni." — Sá skírnarfontur var seldur til Noregs. sá þriðji sömu tegundar komst til ís- Wds 1839. Er talið að Thorvaldsen liafi sjálfur lagt síðustu liönd á hann. í ■Máklabæjarkirkju komst liann að vísu ekki, en stendur nú í Dómkirkjunni í -Reykjavík. Kirkjan leitaði til Thorvaldsens, bæði Yerndarcngill i/arnsins Með gætni leiðbeinir engillinn barninu og leggur hendur sínar á liöfuð þcss og herðar, mcðan harnið gengur biðjandi móti framtíð sinni sú evangeliska og kaþólska. Daginn þann, í nóvember 1823, sem Ercole Consalvi kardínáli kvaddi hann til fundar við sig, taldi Thorvaldsen einn mestan merkisdag ævi sinnar. Kardínálinn bað liann um að gera minnismerki yfir Píus páfa sjöunda, sem setja skyldi í sjálfa Péturskirkjuna við hlið allra þeirra aldagömlu og ódauð- legu listaverka, sem þar eru. Það var ekki aðeins staðsetningin, sem hrifningu hans vakti, iieldur fremur sú staðreynd, að öll önnur listaverk þar höfðu verið gerð af listamönnum, sem voru ítalir og lcaþólskrar trúar. En þrátt fyrir alla frægð og frama stóð Tliorvaldsen einn og einmana í ^orið 159

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.