Vorið - 01.12.1971, Síða 25
stað þess að liafa kassana inni lijá hon-
um, náði hann í langa stöng. Hann beið
eftir að vita, hvort apinn væri nógu
greindur til að slá í bananana með
stönginni, þar til þeir dyttu niður, en
þannig hefði sálfræðingurinn sjálfur
farið að.
Apinn tók upp stöngina, en í stað
þess að slá ávextina niður, stillti hann
stönginni lóðrétt undir þá. Síðan kleif
liann eldsnöggt upp hana og var búinn
að grípa bananana og komast. niður aftur,
áður en stöngin féll. Að sjálfsögðu er
það vafamál að maður hefði getað leik-
ið þetta eftir, en hugmynd apans stóð að
því leyti liugmynd sálfræðingsins fram-
ar, að með þessu náði apinn ávöxtun-
um óskemmdum.
A næstu mynd sjáum við fjórða ap-
ann. Mynduð þið geta gert það, sem
liann er að gera, ef þið hefðuð aldrei
haldið á hamri? Þessi api hafði einu
sinni séð eiganda sinn reka nagla. Þeg-
ar honum var réttur hamar og nagli, gat.
hann leikið það að mestu eftir, eins og
myndin sýnir.
Vorið
169