Vorið - 01.12.1971, Blaðsíða 38
IV.
Stundu síðar, í rökkrinu, stendur lióp-
ur af smátelpum á hlaðinu fyrií utan
bæinn, þar sem verðlaummum er úthlut-
að. Telpur þessar höfðu skotið saman
og keypt dálítinn gullskjöld. Þær afhentu
hann formanni skíðafélagsins og sögðu,
að sá drengur, sem stykki lengst og bezt,
ætti að hljóta hann sem aukaverðlaun.
Þær eru nú forvitnar að vita hver
hljóti hann.
Þarna koma drengirnir, þar á meðal
Gvendur í Garði.
„Hver fékk fyrstu verðlaun ?“ spurði
ein telpan.
„Hrólfur á Brekku,“ svaraði Gvendur.
„En hvaða verðlaun fékkst þú?“ spyr
önnur.
„Ég fékk nú fjórðu verðlaun,“ sagði
Gvendur hálfhreykinn, „og Nonni á Nesi
fékk fimmtu verðlaun,“ bætti hann við.
„En hver fékk verðlaunin okkar V ‘
spurði ein. Það var sú sem stungið hafði
upp á því, að kaupa skjöldinn. „Hrólf-
ur fékk þau einnig,“ sagði Gvendur.
Skömmu síðar kemur Hrólfur. Hann
stígur á skíðin og leggur á stað heim.
„Nú skulum við kalla: Heill Hrólfi,“
sagði Ranka á Haugi. Og telpurnar hróp-
uðu: „Heill Hrólfi!“ Það voru síðustu
lofsorðin og ef til vill hin kærustu, sem
Iírólfur hlaut að því sinni.
Hann sneri sér við, veifaði húfunni og
kallaði: „Þakka ykkur fyrir verðlaunin,
stúlkur!“ Sneri sér svo við, stakk stafn-
um niður og gekk svo heim löngum skref-
um, til þess að sýna verðlaunin, sem voru
silfurbúinn skeiðahnífur og gullskjöldur,
og til þess að segja pabba og mömmu frá
hamingju sinni.
Lauslega þýtt úr norsku af Th. Á.
Til kaupenda Vorsins
Orsök pess, hve þessi tvö liefti koma seint út,
er aðallega veikindi útgefandans í meira en þrjá
mánuði. En vonandi verður liægt að láta Vorið
koma reglulega út árið 1972. Af sömu ástæðu
liafa ekki verið sendar póstkröfur fyrir árgjald-
inu 1971 til kaupenda á Miðvestur- og Vestur-
landi. En þegar þær koma, eru kaupendur beðnir
að greiða þær fljótlega.
Vorið þakkar öllum þeim kaupendum, víðs
vegar um landið, sem greiddu póstkröfurnar. En
nokkrir endursendu þær. Þeim verður sont blað-
ið áfram, ÞVÍ UPPSÖGN ÁSKRFIFTAK ER
BUNDIN VIÐ ÁRAMÓT. Það liefur verið
marg-tilkynnt í Vorinu. Að endursenda póst-
kröfu er ekki hægt að skoða sem skriflega upp-
sögn áskriftar, enda liafa nokkrir sent árgjaldið
(165 kr. með póstkröfugjaldinu) eftir að póst-
krafan kom endursend. En þoir, sem enda skrif-
lega uppsögn, eru beðnir að borga skuld sína
um leið. Sýnið í verki lieiðarleg viðskipti.
BRÉF TIL VORSINS
KVEÐJA TIL FYRRI ÚTGEFENDA
Reykjavík 6/9 1971.
Kæra Vor!
Eg biðst afsökunar á því hvað ég hef dregið
að senda greiðslu fyrir Vorið.
Ilér með greiði ég ársgjaldið 150,00 kr.
Ég vil um leið þakka fyrrverandi útgefendum
á Akureyri fyrir gott efni og fróðlegt, sem er-
indi átti til eldri sem yngri. Ég óska einnig
fyrrv. útgefendum alls góðs í framtíðinni, en
einnig óska ég nýja útgefandanum velfarnaðnr
í nýbyrjuðu starfi á komandi árum.
Ólafía SigríÖur Sansdóttir,
Hrefnugötu 1, Svik.
182
VORIÐ