Vorið - 01.12.1971, Side 44

Vorið - 01.12.1971, Side 44
rykið var svo mikið, að hann mátti til með að hreinsa kverkarnar. Beba greip aftur um kverkar hans og hristi hann, þangað til að söng í eyrun- um. „Hvað hefurðu gert við rokkinn minn?“ öskraði hún bálreið. „Hvar er hann?“ Kötturinn stóð á öndinni, svo dró hann djúpt að sér andann. „Bg, ég — — “, byrjaði hann laf- hræddur. Galdranornin hristi hann svo ofboðs- lega, að kötturinn óttaðist, að beinin í sér mundu hrökkva í sundur. „Ifaltu áfram,“ urraði hún framan í hann. „Manstu, þegar við fórum til úthérð- anna, þegar það var svo kalt, að allar ár í Rússlandi botnfrusu?“ kjökraði hann. „Þegar þú varst í burtu, kom þjónustu- stúlka og bað um að lána sér rokkinn. Hinn grimmi húsbóndi hennar hafði sett henni það óleysanlega verkefni fyrir, að spinna band og prjóna tólf peysur fyrir sig á þremur dögum. Aumingja stúlkan var viti sínu fjær. Iiún óttaðist um líf sitt, ef hún léti ekki í té peysurnar. Hún hafði heyrt um töfrarokkinn þinn og bað um að fá hann lánaðan.“ Andlit Behu Jóku varð blóðrautt. „Pá- bjáninn þinn,“ hvæsti hún. „Gafstu þess- um volæðisaumingja rokkinn minn?“ Kötturinn kinkaði kolli aumingjalega. „Hún heitir Nanna,“ áræddi hann að segja. „Hún lofaði að skila honum heil- um. Ó, Beba Jóka, ef þú hefðir séð tár hennar, myndir þú jafnvel hafa hjálpað henni.“ Galdranornin dró köttinn niður á gólf og einblíndi á hann. „Nú skaltu heyra, köttur,“ sagði hún. „Bf ég verð ekki búin að fá rokkinn í 188 hendur mínar í dögun á morgun, þá skalt þú eyða því, sem eftir er af þínum níu lífum, hangandi á afturfótunum eins og grýlukerti í hæsta t.ré Rússlands.11 Aumingja kötturinn batt trefil um hálsinn, um leið og hann mjakaði sér að hurðinni. „En Be'ba Jóka,“ sagði hann í bænar- rómi. „Eg veit ekki, hvar húsbóndi Nönnu býr. Það er komið fram yfir miðj- an dag. Gefðu mér dálítið lengri frest.“ Galdranornin þreif hurðina upp á gátt og sparkaði kettinu út á frosna jörðina fyrir utan. „Við dögun,“ öskraði hún á eftir honum. „Boggi frændi bíður ekki til eilífðar eftir nýja teppinu sínu og BG VIL PÁ KRYSTALSKÚLUNA.“ Hún skellti hurðinni. Kötturinn skreið í skjól og gróf and- litið í skafl. „Nanna sagði, að húsbóndi hennar ætti fallegustu höllina í Norður- héraðinu,“ muldraði hann, um leið og hann dustaði snjóinn af veiðihárunum- „Bg verð að minnsta kosti að ná til út- kjálka héraðsins fyrir myrkur.“ Síðustu geislar hinnar veiku vetrarsól- ar höfðu fölnað í vestri, þegar hann kom til hins fjarlæga Norður-héraðs. IJann fór yfir héraðsmörkin og nam staðar hja timburkofa. Kannski getur eigandi hans hjálpað mér, hugsaði hann vongóður. Ilann barði þrisvar að dyrum. „Hver er þar?“ kallaði rödd. „Þreyttur ferðalangur, sem biður þif? um aðstoð, góði herra,“ svaraði köttur- inn. Dyrnar opnuðust, og gamall maðui' stóð í bjartri dyragættinni. „Komdu inn,“ sagði hann. „Bg er einn og fátækur, en ég skal skipta brauð- skorpu á milli okkar.“ Kötturinn staulaðist inn í herberg- Vo Rl Ð j

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.