Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.02.1909, Blaðsíða 6

Bjarmi - 01.02.1909, Blaðsíða 6
1! B J A R M I. lyndar í drotni. Einnig hið ég þig, minn trúlyndi samþjónn (Timóteus), að þú takir þær að þér, ásamt Kle- mens og öðrum minnm liðsmönnum, er skráðir eru í lífsins bók«. Þessar konur munu hafa verið ó- giftar. En lífsstarf þeirra heíir verið hið sama og Klemens og annara liðs- manna Páls. wÞær stríddu með mér í fagnaðarerindinuw, segir hann. Má af þessu Ijóslega sjá, að ungar konur höfðu trúboðsstarf á hendi. Af Post. 21, 9, má og enn greini- Iegar sjá, að því var svo varið á dög- um hins fyrsta kristna safnaðar, að konur tóku líka þátt í boðun fagnað- arerindisins eftir guðs eilífa vísdóms- ráði. I5etta, sem ég nú hefi vakið máls á, kemur heim við það, sem Pétur sagði í ræðu sinni á hvítasunnudag- inn (Post. 2, 16—17) með tilvitnun til spádómsins. Það, að spá, var meðal annars að boða Krist. Þegar vér nú förum yfir Nýjatesta- mentið, þá finnum vér hvarvetna, að konan er kölluð lil þess að ljoða fagnaðarérindið, til þess að »berjast með öðrum liðsriiönnum drottins í því«. Einkum virðast það þó vera hlut- verk ungra kvenna eða þá þeirra giftra kvenna, sem ekki þurfa að hera sér- staklega mikla umhyggju fyrir heim- ili sfnu. Inndæll er sá réttur, sem ógiftum konum er veittur af guði, fram yflr giftar, að þær skulí mega algerlega helga sig þjónustunni við Krist. 0, að andi guðs mætti kenna oss að gleyma æ meira og meira sjálfum oss og leita þess eins, sem vorum heilaga drotni og frelsara er þóknan- legt. Bænheyrsla. Lyfsali einn í Kristjaníu (i Noregi) seg- ir svo frá: »Ég stundaði lyfsalanám í höfuðborg- inni, og þar átti það sér iðulega stað, að við urðum að vakna á nóttunni og gegna næturstörfum, en það var okkur mjög ó- geðfelt. Pað bar við eina nótt, er óg átti að vaka, að dyrabjöllunni var liringt; ég lauk upp dyrunum í miður góðu skapi, en úti fyrir stóð lítill drengur, fálæklegur, með meðalaflösku og lyfseðil i hendinni. »Mamma var ákaflega veik«, sagði hann »og meðulin eiga að vera lianda henni«. Eg tilreiddi meðulin, rétti þau að drengn- um og hann lór leiðar sinnar. En þegar ég var aftur orðinn einn, þá greip mig liræðileg angist. Hafði ég ekki fengið drengnum skakka flösku? Var ekki eitur i þeirri flösku, sem hann fór með heim til móður sinnar? Eg spratt upp og gekk úl í lyfjabúðina, til þess að vita þetta vist. Jú, það stóð heima; ég hafði fengið drengnum skakka flösku — flöskuna með eitrinu, i og ég vissi, að móðir drengsins hlaut að deyja ef hún neytti þess. O, hvað mér leið illa! Eg stóð þarna alveg ráðþrota. Pá kraup ég niður og bað guð af öllu lrjarta, a hann aftraði konunni frá þvi á einhvern iiátt að hún tæki inn eitrið, og ég hét guði þvi, að ef hann bænlieyrði mig, þá skyldi ég ávall vera hans. Oðara en ég hafði lokið bæn- inni, var bjöllunni hringt aftur, og þegar ég opnaði, þá stóð litli drengurinn þar hræddur og skjálfandi. »Ó, þér megið ekki reiðast mér«, sagði hann, »ég datt og braut flöskuna«. Hvort ég varð reið- ur! Með óumræðílegri glcði faðmaði ég drenginn að mér og þakkaði guði fyrir það, að hann hafði heyrt bænina rnína«. (Pijtl af r,. n.j. Bœnarorð. Leið þú mig, guð, á ljóssins braut, ljótu svo hafnað fái, sérhverja lát mig sigra þraut, svo ég heim lil þín nái. Pótt verðskuldi ég ei vist lijá þér, vesall og aumur maður,

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.