Bjarmi - 01.02.1927, Síða 8
36
B J A R M 1
inberlega hafa heyrst gegn barna-
lærdómsbókunum, hafa snúist bein-
línis gegn innihaldi þeirra og þá sjer-
staklega gega Helga-kveri. Menn hafa
kannast við að það væri best samiö,
en nýmælamenn hafa talið það alveg
ófært, af því það það væri svo strang-
lúterskt. Ljóðakver sra Valdimars
Briems hefir vart verið nefnt á nafn, og
ættu þó Ijóð að vera börnunum auð-
læiðari og minnistæðari en óbundið
mál.
Að visu mun það hafa verið upp-
selt um hríð, en ótrúlegt er að út-
gefandi þess hefði ekki verið fús til
að endurprenta það, ef eftirspurn
hefði verið mikil.
Það er ekki rjett, sem sra B. St.
segir, að almenningur ráði litlu um
hvaða kver sjeu endurprentuð. Auð-
vitað fara bókaútgefendur með þá
bók, sem aðrar bækur, endurprenta
þá bókina oftast, sem mest er spurt
um eða best selst. — Klaveness-kver
eða Ljóða-kverið hefðu getað alveg
komið í veg fyrir endurprentun
Helga-kvers, ef annaðhvort þeirra
eða bæði hefðu oröið vinsælla en
það.
En þeir hafa ekki gætt þess, Ás-
geir Ásgeirsson fræðslumálastjóri og
samherjar hans, sem ætluðu að ganga
af því dauðu með blaðaskömmum
og ádeiluerindum, að þorri alþýðu
vorrar hafði ekki eins mikla óbeit á
lúterskum kristindómi og þeir von-
uðu, og að svæsnustu árásirnar á inni-
hald kversins snerust íbestu meðmæli
með kverinu í augum æðimargra,
svo að jeg býst við að nú verði
fjöldi manna mikiu tortryggnari gegn
hverri tilraun til að koma að nýju
kveri eða verulegri endurskoðun gömlu
kveranna en ella mundi, ef aðfinn-
ingarnar hefðu verið dálítið hóflegri
en þær hafa verið.
Sá, sem ætlar sjer að rífa niður
með frekju og stóryrðum, uppsker
tortryggni og köld andsvör, og á
miklu erfiðara á eftir að koina á
sanngjörnum umbótum. Þeim væri
holt að minnast þess, sem mest
skamma Helga-kver. Að öðrum kosti
mega þeir búast við að fara í gröL
ina löngu á undan því.
Hitt væri ráðlegra að þeir reyndu
sjálfir að búa til nýlt kver, sem ekki
væri svo frásneylt kristindómi að
einhver vegur yrði til að fá það lög-
lielgað iil fermingarundirbúnings í
þjóðkirkjunni. t*á skæri reynslan úr
hvort það gæti smámsaman bolað
eldri kverum frá eða ekki. — ^Það
heldur velli, sem hæfast er«.
En ekki er þvi að leyna, að Bjarmi
telur óhugsandi að nokkurt eitt kver,
nýlt eða gamalt, nái fullum vinsæld-
um allra, eins og nú er komið stefn-
um innan þjóðkirkjunnar, og þólt
gott kver og tímabært kæmi út, væru
vandræðin ekki úr sögunni fyrir þá,
sem ekki er sama um allan ákveðinn
kristindóm. (Meira).
Þokan og óveðriö.
Nú þykir mörgum vera farið að
hvessa hastarlega úr lognmollu þok-
unni, sem grúft hefir yfir islensku
kirkjunni Ianga hríð. — t*að eru ungu
íslensku námsveinarnir, sem fyrstir
ríða á vaðið.
Mörgum virðist standa nokkur
geigur af þessu óveðri. En það kem-
ur bara af því, að þeir hjeldu, að
þessi þoka væri ekki annað en mein-
leysisgufa, sem hj»ðna mundi á sín-
um tíma umbrotalaust.
En það þurfti varla nema heil-
brigða skynsemi að sjá, að þessi
þoka var illkynjuð óveðraþoka, þrátt
fyrir alt lognið og spektina.