Bjarmi - 01.04.1927, Qupperneq 12
88
BJA.RMI
bók út um áramótin, og er þar hinn
mesti fróðleikur um sunnudagaskóla-
starfið í Svíþjcð frá byrjun (um 1840)
fram á liðið ár og myndir af fjöl-
mörgum forgöngumönnum þess. Mætti
skrifa langt mál um það, en í þetta
sinn skulu að eins nefndar nokkrar
tölur, er sýna hvað Svíar eru ötulir
í þessum efnum. Árið 1925 sóttu
nærri 400 þúsund börn sunnudaga-
skóla í Svíþjóð eða 42.8 °/o af öllum
skólaskyldum börnum; skólarnir voru
8526 og kennararnir 29555. í Dan-
mörku eru sunnudagaskólabörnin rúm
100 þúsund, uin 30 °/o af skólaskyld-
um börnum, skólar um 1500 og
kennarar um 7300. í Noregi um 140
þús. börn, 1800 sunnudagaskólar og
7900 kennarar. Á Finnlandi fær starfið
ríkisstyrk og ferðafulltrúi þess ókeypis
far með öllum járnbrautum. t*ar voru
árið 1922: 6909 sunnudagaskólar með
20544 kennurum og 208843 börnum.
Að tiltölu við fólksfjölda eru Finnar
laugt á undan nágrönnnm sínum i
þessu tilliti.
y>Var Jesús sonur Jóseps?« heitir
bæklingur (24 bls. verð 75 aurar)
sem alveg er nýútkominn eftir prest-
inn í Saurbæ í Eyjafirði, sra Gunnar
Benediktsson. Er þar leitast við að
tortryggja jólasögur guðspjallamann-
anna, Matteusar og Lúkasar, eða
með öðrum orðum andmæla því,
sem öll kristin kirkja um víða veröld
játar í 2. gr. postullegu trúarjátning-
arinnar: »Getinn af heilögum anda,
fæddur af Maríu mey«. Kveðst sr. G.
B. byggja þetta erindi sitt« á þeirri
fræðslu sem við yngri prestar lands-
ins höfum hlotið er við vorum að
búa okkur undir starf okkar í þjón-
ustu kristinnar kirkju«. — Sýnir það
söfnuðum landsins full skýrt, hvernig
guðfræðikenslan er og hefir verið all-
langa hríð. Og á sr. G. B. þakkir
skilið fyrir hreinskilnina — nema
hann hafi kennara sína fyrir rangri
sök. En þá segja þeir væntanlega
til þess. — Fróðlegt mun mörgum
þykja að sjá, hvað kirkjustjórnin
segir nú. En þegi hún enn eins
og að undanförnu, þá er bersýni-
legt að flest má kenna í skjóli
þjóðkirkjunnar á íslandi, og ekki
neitt ólíklegt að næsta »frjálslyndið«
verði, að taka undir með Georg
Brandes og efast um að Jesús Kristur
hafi nokkru sinni verið till Fess eru
dæmi um þýska færðimenn, svo ekki
er leiðum að likjast. Annars fer
fjarri að rit þetta flytji þeim nokkrar
nýungar, sem lesið hafa eitthvað af
þýskri nýguðfræði, og svarað verður
því hjer í blaðinu innan skamms,
hvað sem kirkjustjórnin kann að
gjöra.
Sveinbjörn tónskáld Sveinbjörnsson.
2*/o 1847 — !8/s 1927.
Ó, Guð vors lands, er söngva sál
nú svifin hæða til
að leika tóna og ljóða mál
við lffsins undirspil?
Því dýrstu hljóma heilög sál
í hjarta skáldsins bjó,
uns ekkert glapti guðleg mál
en gleymdist líf. — Hann dó.
Ó ættlands Guð, í englasveit
til Islands sendu hann,
að syngja frægum feðra reit
um frið og kærleikann;
um æðstu tóna æðra og meir
sem eru’ oss nú um megn, —
uns hjá oss loksins dauðinn deyr
við Droltins tóna regn.
(IJr Lögberg). Jónas A. Sigarðsson.