Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.04.1930, Page 5

Bjarmi - 01.04.1930, Page 5
BJARMI 53 Hitt er aðalvandinn að grafast fyrir orsakirnar og græða meinin, svo að ekki brjótist út ný sið)ferðisdrep- sótt þegar þessari ljettir. Það er nokkurn veginn bersýni- legt, að önnur eins ósköp brjótast ekki út opinberlega nema miklar meinsemdir sjeu komnar á fjölmörg heimili og bæjarbragur sje verulega spiltur orðinn. Það er bent á nautnasýki og leti, agaleysi, eftirlitsleysi með óhollum kvikmyndum, dýrslegar danssam- konar saurugar kynferðismálabæk- Ur og önnur saurrit, drykkju- skap, stjettahatur og óviðunandi húsakynni. Er trúlegt að alt þetta hjálpist að við að efla siðspillingu, en dýpsta rótin er vafalaust sívax- andi virðingarleysi fyrir kristinni trú. Þáð er almenn reynsla um allan heim að þar þróist glæpir og siðspill- ing best, sem mest er losið orðið á öllum trúmálum. Æskulýður, „landsins prýði“, sendur að heiman með ærnum kostn nði „til að framast" í skólum höfuð- staðarins, heyrir þar sumstaðar gert í?is að ritningunni, en saurritum hrósað, og veltir sjer svo út í sið- spillandi skemtanir. Æstir trúleys- ingjar telja unglingum trú um, að -.framgjörn æska“ brjóti af sjer alla ..trúarhlekki", og svo snýr hún Pass- íusálmunum í háðkvæði og postul- iegu trúarjátningunni upp í nokk- urskonar níðgrein um skólastjóra °g ráðherra. Engin virðing fyrir ueinum yfirboðara, hvorki á himni uje jörðu! En þar sem fólki sýnist, að trúar- játning sje „tjóðurband" og trúar- hlekkur, þar er gott tækifæri fyrir uiyrkravaldið að telja mönnum trú l,m að siðferðisboð og siðgæðiskröf- Ur sjeu líka gömul „tjóðurbönd" og hlekkir, sem framgjörn æska hristir af sjer. Snýst þá sjálfbjargarvið- leitnin i óstöðvandi ágirnd, sem engu eyrir til að ná í aura, og „kynferðis- orka“ í svívirðilegt saurlífi. Mikið er um þetta talað fjær og nær, sem vonlegt er. En vörumst þann faríseahátt að skella allri skuidinni á aðra. „Sár míns fólks eru mín sár“, segir Jeremías forð- um, og eins ættu allir góðir íslend- ingar að segja nú í fullri alvöru. — Margir höfum vjer verið of kæru- litlir um velferð annara, margir alt of hugdeigir til að ganga í berhögg við vantrú og spillingu, margir of kærleikssnauðir til að rjetta þeim hlýlega vinarhönd til viðreisnar, sem fallið höfðu, og margir of svart- sýnir og úrræðalausir til að ráða fram úr vandamálum; — dæmdum vantrú annara en ekki vantraust sjálfra vor, báðum of lí'tið fyrir þeim sem viltust, skröfuðum fullmikið en gjörðum oflítið til umbóta. Hugsið um það alvarlega íyrir augliti Drottins, hvort hjer er nokk- uð ofmælt, og biðjum hann að gjöra oss það ,,salt“, sem bæti um- hverfið, og þau ljós, sem lýsi vegfar- endum. — Fylkjumst djarflega um merki Krists! — Áfram Kristsmenn, krossmenn! Ritstj. Bjarma. Siimarmiimingar. iii. Þar var síðast frá horfið, er við ókum frá Ytra-Vallholti í Skaga- firði. Jóhannes Guðmundsson, frændi minn, varð samferða út á engjarnar, og þar hitti jeg Valdi- mar bróður hans, bónda í Vallanesi. Leist okkur prýðilega á börnin hans

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.