Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.04.1930, Page 6

Bjarmi - 01.04.1930, Page 6
54 B J1 ARM I ung, er voru þar með honum, en annars var lítill tími til að tefja, margt ógert hjá okkur öllum þann daginn. Jeg hafði ekki skap til að sýna langferðakonu Víðimýrar- kirkju; finst sú kirkja lítið prýða Skagafjörð, þótt í þjóðbraut sje, því miður. Var því haldið viðstöðulaust úr Skagafirði vestur áð Bólstaðarhlíð í Svartárdal í' Húnavatnssýslu. Var veður ágætt og vegir þurrir og sæmi- legur akvegur yfir Vatnsskarð. Þröngur er Svartárdalur, en þó býst jeg við, að flestum þyki ein- staklega viðkunnanlegt í Bólstaðar- hlíð. Þar er prýðilega hýst, sljett tún og stórt, og grösugt á allar hlið- ar hátt í fjall upp, og djúpt árgil með hvömmum og klettum og brekkum fyrir ofan túnið. Væri ekki fjölfarin akbraut um hlaðið, væri þar alveg ákjósanlegur hvíld- arstáður fyrir þá, er þreyttir leita dalafriðar úr borgarhávaðanum. Klemens Guðmundsson býr þar myndarbúi. Hafði jeg símað honum um morguninn, svo að hann yrði heima við, og tók hann okkur opn- um örmum. Hafði hann, dregið fána að húni á húsi sínu, en mjer gleymd- ist að spyrja um, hvort það væri okkar vegna; við höfðum nóg ann- áö um að tala. Fyrir allmörgum árum frjetti jeg á norðurleið, að bóndinn í Bólstað- arhlíð væri óvenjulega trúrækinn maður. Mjer var hann alveg ókunn- ugur, en á leiðinni suður fór jeg Vatnsskarð, og kom síðari hluta laugardags í brakandi þerri að Ból- staðarhlíð. Heimilisfólkið var við heyþurk neðan til á túninu. Gjörði jeg boð fyrir húsbóndann, og þegar hann kom heim á hlaðið til mín, sagði jeg nafn mitt, og bætti svo við alveg formálalaust: „Jeg frjetti á leiðinni norður, að þjer væruð trú- aður maður, og jeg á eiginlega ekk- ert annað erindi hingað en að sam- gleðjast ýður, ef það er satt“. — Honum þótti erindið óvenjulegt, en tók því vel, og )kkur varð svo skraf- drjúgt, að mjer gleymdist í 2 stund- ir, að jeg ætlaði að ná háttum að Auðkúlu, og honum heyþurkunin. Hann hafði dvalið við nám bæði í Askov í Danmörku og Voss í Nor- egi, og átti fleiri góðar kristindóms- bækur erlendar, en títt er um bænd- ur vora. Síðan hafði ekki fundum okkar borið saman nema einu sinni, fyr en í þetta sinn, þótt brjef hafi farið á milli okkar við og við. Fyrir eitthvað 3 árum íor Klem- ens til Englands til að kynnast trú- mönnum, og naut til þess leiðbein- ingar Gooks trúboða á Akureyri. Var hann 8 mánuði í förinni og lengst af í skóla hjá kvekurum. — Gekk hann í flokk þeirra áður en hann fór heimleiðis, og hefir, sjer- staklega í vetur, gjört sjer far um að kynna fólki þá trúarstefnu, enda mun hann vera eini kvekarinn á íslandi. Stofnandi Kvekaraí'lokksins var enskur maðui', George Fox að iiái'ni (d. 1091), merkur trúmaður iá ýmsa lund, en varð fyrir ófsóknum, af því að hann reis svo einarðlega gegn dauðuin vanasiðum ensku kirkjunnar á þeirri tíð. Lærisveinar hans kölluðu sig „Vinafjetagið' ‘ eða „Ljóssins börn“, en „Quakers“ eða kvekarar var upþnefni, J'rá því sprottið, segja sumir, að G-. Fox hafði ráðlagt einum dómaranum, sem dæmdi hann í fangelsi árlangt, að skjálfa (á ensku ,,to quake“) gagnvart Guði; en aðrir segja, að „vinirnir“ hafi skolfið eða titrað svo á samkomum sínum, að þaðan sje nafnið komið. Kvekarar höfnuðu skírn og kvöldmáltíð og flestum helgisiðum og töldu hljóða liæn og langa þögn áhrifameiri á samkonmm

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.