Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.04.1930, Page 10

Bjarmi - 01.04.1930, Page 10
58 B J A R MI þurfum við að vera okkur þess fylli- lega meðvitandi, að syndabyrði okk- ar er svo þung, að ekkert okkar get- ur risið undir henni. Sú játning er fyrsta skilyrðið til ]>ess að hjá okk- ur vakni brennandi þrá eftir honum, sem einn getur og er fús til að frelsa okkur og gefa okkur nýtt líf, sem varir að eilífu. En jafnvel ]>ó við höfum stigið hið stóra og þýðingarmikla spor að koma til Krists eins og við erum og fela honum líf okkar að fullu og öllu, ]>á fer því fjarri að við höfum náð ákvörðunartakmarki okkar, því ait líf }>arf að nærast til þess að það geti borið ávöxt, og því æðra sem líf. ið er, ]>ví lengri tíma ]>arf það til þess að ná fullum þroska. Þess vegna er ]>að, að hið nýja líf, sem Jesús vekur í brjósti hvers þess manns, sem í lifandi trú snýr sjer til hans, reynir meira á ]>rek og stað- festu mannanna en nokkuð annað, því að engin getur lifað því og haldið áfram að þroskast af eigin mætti. En Jesús hefir opnað okkur fjór- ar lindir, sem við eigum öll frjálsan aðgang að, ef við höfum löngun til að lifa í samfjelagi við hann. — Þær lindir verða aldrei tæmdar, en veita svölun og aukinn ]>roska hverjum, sem af vakandi þörf og í sannri trú leitar sál sinni næringar þar. Við köllum ]>essar lindir einu nafni náðarmeðul Guðs. — Hefir þú teygað ]>á næringu og þann mátt, sem þar er geymdur handa þjer? — Hefir ]>ú af alúð og kappi lesið Guðs orð til ]>ess að auka þekkingu þína á Guði, og til þess að læra af því hvernig líf ]>itt á að vera? Hefir bænin verið hinn stöðugi, reglu- bundni andardráttur sálar þinnar í gleði og sorg, við þín daglegu störf og í hvíldartímum þínum? — Er skírnin þjer í raun og veru ,,laug endurfæðingarinnar", sem daglega minnir þig á, að þú hefir verið bor- inn til frelsara þíns til þess að þú fengir að vera lærisveinn hans alt ]>itt líf? Og hefir þú notið hinar heilögu kvöldmáltíðar til þess að styrkja samfjelag þitt við Jesúm Krist og söfnuð hans? Jeg þekki ]>ig ekki, bróðir minn eða systir, og veit ekki hvernig þú mundir svara þessum spurningum, enda krefst jeg þess alls ekki að ]>ú opnir hjarta þitt fyrir mjer. En jeg bið þig: opnaðu það í fullri hrein- skilni fyrir Guði þínum, og bið þú hann að hjálpa þjer til að leggja meiri alúð við að lauga sál þína við náðaruppsprettur hans; því öll hljót- um við að viðurkenna, að við höfum vanrækt að færa okkur þessar bless- unarlindir fyllilega í nyt. Hugleiðum ]>ví nánar orð textans, sem beina huga okkar sjerstaklega að hinni heilögu kvöldmáltíð. Megum við vera án þeirrar blessunar, sem hún getur veitt okkur? Vera má að einhver hugsi á þá leið, að Guð geti veitt honum bless- un, án þess að hann fari til altaris, og því verður ekki mótmælt, að við njótum stöðugt blessunar Guðs, þó við látum ]>að ógjört, en gætum þess }>ó að blessun Guðs veitist okkur á marga og mjög ólíka vegu. Það get- ur t. d. að þjer í dag eða einhvern annan dag hafi fundist ])ú eiga sjer- staklega mikið erindi í kirkjuna ]>annig að ]>jer finst eins og hvert orð hafa verið talað sjerstaklega til þín svo að ]>ú getir sagt: Þar rjetti Guð mjer vissulega bikar blessunar sinn- ar! — En það getur líka verið að ]>ú í annað skifti hafir gengið inn í herbergi þitt með sorg þína eða á- hyggjur til ]>ess í bæn að leita hugg- unar og styrks hjá Guði, og að ]>ú hafir þannig háð baráttu bænarinn-

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.