Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.04.1930, Qupperneq 16

Bjarmi - 01.04.1930, Qupperneq 16
BJABMI 04 iseinkunnum mann og sömuleiðis af atvikum og kringumstæðum. Vjer víkjum að þessu seinna. Dýrðlegasta og þýðingarmesta staðreyndin í mannkynssögunni er Jesús Kristur. Þessi staðhæfing mín mun standast alla rannsókn, hvort sem maður á við hinn sögulega Krist Nýja Testamentisins, hinn persónu- lega Krist reynslunnar, eða mátt hans og veldi í gegn um aldirnar. Hann hefir staðið upp úr í mannlífshafinu í nítján aldir. Stormarnir hafa blás- ið, freyðandi öldurnar hafa ætt. — Bárurnar hafa brotnað á bjarginu; en það — þetta guðlega bjarg — hefir staðið óbifað og óbifanlegt, og aldrei hefir það verið dýrðlegra en nú. Svæsnustu óvinir hans hafa stund um tekið undir með hjartfólgnustu vinunum, og kveðið upp sama dóm- inn: „Vjer finnum enga sök hjá hon- um“. Kristur er óskeikull! Á því bjargi er öllum óhætt að byggja! En Jesús er lílca mesti vísindamað- urinn, sem uppi hefir verið. I samtal- inu ógleymanlega við Nikódemus mælti hann ]>essi eftirtektarverðu orð: „Vjer tölum það sem vjer vit- um og berum vitni um það, sem vjer höfum sjeð“. Er mögulegt að tala vísindalegar en ]>etta? Líf hans alt og lcenningar eru svo dásamlega raun- verulegar. — Það sem enskan kallar „sense of reality“ blasir við manni al- staðar, ]>egar um Jesú er að ræða. Postular Jesú, gátu líka tekið orð meistara síns sjer í munn og sagt af öllu hjarta og í mestu hreinskilni: „Vjer tölum ]>að sem vjer vitum og berum vitni um það, sem vjer höfum sjeð“. Þeir höfðu verið honum hand- gengnir í nærri þrjú ár. Þeir voru sterklega snortnir af anda hans — gagnteknir af honum. Þeir elskuðu hann meira en lífið sjálft. Hann var þeim alt. Þeir sáu hann píndann og kvalinn — negldan á grimmúðlegan og blóðugan krossinn. Þeir sáu opnu og tómu gröfina fyrir utan múr- veggi borgarinnar. Þeir mættu sín- um upprisna drottni hvað eftir ann- að — þeir áttu tal við hann, snæddu með honum, snertu hann og gengu með honum. Þeir sáu hann stíga upp til himins. Tíu dögum seinna urðu þeir allir fullir af heilögum anda, og eftir ]>að fóru þeir út um allan heim og með hjörtun í báli kunngjörðu þeir öllu fólki |jað sem ]>eir höfðu heyrt, sjeð og reynt. — Boðskapur þeirra var enginn heilaspuni, ekkert hugmyndaflug, enginn vanskapnaður ímyndunaraflsins, heldur heilagur raunveruleiki. Allir frömuðir kristninnar á öllum öldum síðan hafa einnig getað sagt: „Vjer tölum það sem vjer vitum, og berum vitni um það sem vjer höfum sjeð“. Undantekningarlaust hafa þeir ]>ekt djúpa, innilega og verulega trú- arreynslu, og út úr þeirri reynslu hafa þeir talað með krafti. Ágústínus hjet stórgáfaður ungl- ingur í Alexandríuborg.. Hann átti trúaða og guðelskandi móður — Mo- níku að nafni. Hann fór til Róma- borgar til að „læra“. Þar lenti hann, ])ví miður, í hina verstu spillingu. Hann varð seinna kennari í mælsku- fræði í þessari miklu heimsborg. Lík- lega hefir enginn kannað hyldýpi syndarinnar betur en hann. En drott- inn Jesús, frelsarinn góði, sem móðir þessa spilta, unga manns tignaði, til- bað og elskaði, mætti honum á þess- ari voðalegu braut. Ágústínus iðrað- ist synda sinna, meðtók Krist sem frelsara sinn og drottinn, gekk hon- um algjörlega á hönd og helgaði hon- um líf sitt, fyrir alla eilífð. Syndin hvarf eins og ]>okan og myrkrið hverf ur fyrir sólaruppkomunni, — Hann

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.