Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.04.1930, Blaðsíða 18

Bjarmi - 01.04.1930, Blaðsíða 18
B J A R'M I <56 Annar ungur piltur á Englandi þráði heitt og innilega fyrirgefningu syndanna og heilagt líferni fyrir guðs náð. Hann fór í allar kirkjurnar í London og leitaði að þessu hnossi fyrir sálu sína, en hlotnaðist það ekki fyr en einn sunnudag ]>egar hann hlustaði á prest í lítilli kapellu. Hann lagði út af orðunum: ,,Sjá, og ])á munt þú lifa“. — Þessi ungi maður horfði, snortinn og hugfanginn, á Jesú — á Jesú hangandi á blóðugum krossinum — á Jesú líðandi, deyj- andi, fórnandi og frelsandi. Við þessa andlegu sýn endurfæddist hann. Líf- straumur frá guði gagntók hann. — Upp frá þessu flutti hann dauðlegum og deyjandi mönnum boðskapinn urn frelsara mannkynsins — og þann mikla lífgandi og lífgefandi kraft, sem hann hefir ætíð að bjóða. Hann prjedikaði á sama blettinum í Lond- on alla sína æfi. Stöðugt þurfti að byggja stærra og stærra hús til að taka á móti áheyrendum. Sagt er að tíu þúsundir hafi að jafnaði hlustað á hann á hverri helgi í mörg ár. Hann varð sá mesti prjedikari, sem enski heimurinn hefir eignast fyr eða síð- ar. Þetta var Charles H. Spurgeon. Skáldmæltur unglingur af íslensk- um uppruna var, ]>ví miður, brotleg- ur á ýmsan hátt. Eins og öllum er kunnugt, varð aðalbrotið honum til æfilangrar ógæfu. Seinni part æfinn- ar kvaldist hann af hryllilegum og ólæknandi sjúkdómi. í þrautum sín- um varpaði hann sjer niður við fætur krossins á Golgata. Þar fjekk hann frið, fögnuð og andlegan styrk. Út frá þessari dýrðlegu reynslu komu Passíusálmarnir. Ódauðlegir munu þeir reynast vegna þess, að þar tal- ar frelsuð mannssál, sem hafði reynt svo átakanlega það, sem hann orkti um svo fagurlega. Enginn lífs eða liðinn hefir skilið ]>ýðingu krossins fyrir syndspilta og sjúka mannssál betur en Hallgrímur Pjetursson. Og hvaða sál er ekki syndspilt ög sjúk áður en hún kemur til Jesú. Líka mætti benda á John Bunyan, Dwight L. Moody, Stanley Jones og marga fleiri. Allir þessir menn hafa reynt sjálfir sannindin, sem þeir fluttu öðrum. Líf ]>eirra og starf hef- ir verið sterkur vitnisburður um guðs fórnandi og frelsandi kærleika í Jesú Kristi. Ekkert hefir verið raunveru- legra í lífi ]æirra en þessi helga reynsla í samfjelaginu við guð. Eng- inn maður á öðrum sviðum vísind- anna hefir verið vissari í sinni sök en þeir. í ]>ví guölega voru ]>eir allir o</ eru hinir sönnustu vísindamenn. Kæru tilheyrendur! Lítum nú á málið frá öðru sjónarmiði. Tökum alla reynslu mannkynsins í ]>essum efnum og látum hana í einn sam- eiginlegan sjóð. — Auðvitað verður lang besta innleggið biblían, kirkjan og kristnu trúarjátningarnar. En vjer skulum samt í mestu einlægni og drenglyndi leitast við að vera í fylsta máta sanngjarnir í garð allra annara trúarbragða — bæði hinna fornu og nýju. Því miður leyfir tím- inn ekki neina ítarlega athugun eða nákvæmann samanburð í þessum efn- um, en það er ]>ó ekki ókleyft að komast að ýmsum staðreyndum, þeg- ar allur ])essi mikli sjóður er tekinn til greina. Öll trúarbrögð, undantekn- ingarlaust, fela í sjer margt gott, upp byggilegt og nytsamlegt, og hafa mik- ið af sannleika til brunns að bera. Æðsta reynsla mannsandans er á ]>essu sviði. 1. Það er staðreynd að allar þjóðir á öllum tímum hafa haft einhverja meðvitund um æðri veru eða verur, og sömuleiðis um líf eftir dauðann. Á þessu er engin undantekning. Má þess vegna segja með sanni, að þessi

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.