Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.1971, Blaðsíða 3

Bjarmi - 01.10.1971, Blaðsíða 3
GÓÐIR ATBURÐIR Margt merkilegt, hefur gerzt í starfinu fyrstu tvo mánuOi vetrarstarfsins. Þar sem oflangt yrði að segja frá þvi eins og skyldi, verður hið helzta dregið hér saman í stuttar frétta- klausur. Helmsókn norrænna stndenta. Kristilegt stúdentafélag fékk ágætis heimsókn í byrj- un oktöber. Komu sex finnsk- ir stúdentar og auk þess framkvœmdastjóri sænsku kristilegu stúdentáhreyfing- arinnar á biblíúlegum grund- velli. Sérstaka athygli vákti fágaður og góður söngur Finnanna, sem m. a. höfðu kirkjuhljómleika í Neskirkju, auk þess sem þeir sungu á samkomum. Samkomumar voru vel sóttar. T. d. var Dóm- kirkjan full, er síðasta sam- koman var háldin þar. Þeir félagar héldu sérstakar sam- komur fyrir stúdenta og heimsóttu marga æðri skóla borgarinnar. Þá tóku þeir og þátt í stúdentamóti, sem háld- ið var í Vindáshlíð í tilefni 35 ára afmælis Kristilegs stúdentaféiags. Var mikil uppörvun og blessun að komu þessara gesta. Prófessor Carl Fr. Wislöff og frú. Þann 19. október kom dr. theol. Carl Fr. Wislöff, pró- fessor við Safnaðarpresta- skólann í Osló, hingað til lands ásamt konu sinni. Héldu þau samkomur í húsi KFUM og K við Amtmannsstíg frá þriðjudegi til sunnudags. Voru þær vel sóttar, einkan- lega þó tvær þær síðustu. Boðskapurinn sem þau fluttu var sannevangeliskur og mjög ánægjulegt og uppörvandi að hlusta á hann. Var það sam- róma álit þeirra, sem spurð- ir voru, að þeim hefði fund- izt sérstáklega góður andi hvíla yfir samkomunum. Það er mikill fengur að því að fá heimsókn til kristilega starfs- ins eins og þá, sem hlotnað- ist við komu þeirra hjóna hingað. Kristnilioðsdaguriim. Kristniboðsdagurinn var haldinn annan sunnudag í nóvember, og er þetta í þriðja sinn sem svo er gert. Hefur breytingin gefið góða raun og tékjur kristniboðsins farið vaxandi þennan dag. Annars staðar í blaðinu eru kvittanir fyrir því, sem gefið var við guðsþjónustur og samkomur og skál það því ekki endur- tékið hér. Hins vegar eru öll- um færðar þakkir, sem studdu kristniboðið svo drengilega þennan dag. Eins og tvö undanfarin ár var öllum prestum landsins sent bréf í tilefni dagsins og fylgdi með því meðmœli frá biskupi. Fer það bersýnilega í vöxt, að kristniboðsins sé minnzt við guðsþjónustwr dagsins, þar sem unnt er að koma því við, og gjöfum til þess veitt viðtáka. Aðrar fjúraflanlr. Kristniboðsfélag kvenna hafði árlega fjáröflunarsam- komu fyrsta laugardag í nóv- ember. Simonetta Bruvik sýndi myndir og sagði frá hjúkrunarstarfinu í Gidole og Konsó. Dregið var um muni, sem gefnir höfðu verið til fjáröflunar, og gáfust kristniboðinu kr. 22.200,00. — Bjarni Eyjólfsson hafði hugleiðingu í lok samkom- unnar. Kristniboðsfélag karla i Reykjavík hafði kaffisölu sunnudaginn 21.nóv. í kristni- boðshúsinu Betaníu. Kristni- boðinu gáfust um ýO þúsund krónur í sambandi við það. Starfsmcnn krlstnlboðslns. Skúli Svavarsson, kristni- boði, og Gunnar Sigurjóns- son, guðfræðingur, ferðuðust um Snœfellsnes i byrjun októ- ber. Síðustu hélgi i mánuð- inum hófst svo œskúlýðs- og krist7iiboðsvika á Akureyri, sem þeir tóku þátt í. Síðan ferðuðust þeir um Norður- land og héldu samkomur. Hafa þeir farið eins viða og veður og færð hefur leyft. Jónas Þórisson hefur unnið á skrifstofu félaganna og auk þess talað á mörgum fundum og samkomum i Reykjavík og nágrannabæjum. I4AR1II 9

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.