Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.1971, Blaðsíða 10

Bjarmi - 01.10.1971, Blaðsíða 10
H®| FRÆGUR TEXTI — Zlfl BTDRKDSTLEGUR BGÐSKAPUR ♦ l| ♦ Á þeim tima tók Jesús til máls og sagSi: Eg vegsama þig. fa'ðir, herra himins og jarðar, að þú hefur hulið þetta fyrir spekingum og hyggindamönnum, og opinber- að það smœlingjum. Já, faðir, þanrág var það, sem þér er þóknanlegt. Allt er mér falið af föður minum og enginn gjörþekkir soninn nema fáðirinn, og eigi heldur gjörþekkir nokkur föðurinn nema sonurinn, og sá er son- urinn vill opinbera hann. Komið til mín, allir þér, sem erfiðið og þunga eruð hlaðnir, og eg mun veita yður hvíld. Talcið á yður mitt ok og lœrið af mér, þvi cuó eg er hógvœr og af hjarta litillátur, og þá skuluð þér finna sálum yðar hvíld, þvi að mitt ok er indœlt og byrði mín létt. — Matt. 11,25—30. Hefur þú nokkurn tíma reynt að hjálpa einhverjum, sem var þess fullviss, að hann þurfti ekkert á hjálp að halda? Það er vafa- laust eitt allra erfiðasta verk, að lenda í því. Kristur stendur gagnvart því verki með okk- ur mennina. Textinn sýnir það. Og fyrsti lær- dómur, sem við getum af honum dregið, er þessi: Viljir þú láta Krist hjálpa þér, verður þú að niðurlægja þig nægilega. Þú verður að finna það, að þú þarft á hjálp að halda og getur ekki í eigin mætti náð því marki, sem hér er um að ræða. Þú þarft á hjálp hans að halda til þess að eignast sanna þekkingu á Guði. Ef þú at- hugar málið, sér þú, að Kristur kom ekki til þessarar jarðar til þess að hjálpa okkur í leit okkar að Guði. Hann kom til þess að opin- bera Guð þeim mönnum, sem gefizt höfðu upp í leit sinni og fundu til þess, að þeir voru það, sem í textanum er kallað smælingjar. Meðan þú heldur, að þú getir fundið Guð með eigin kröftum, eða framleitt sannleikann fyr- ir þig, tekur þú engum framförum. Þú verð- ur að læra hógværð — verða smælingi, þ. e. a. s. barn, sem er aigerlega upp á annan kom- ið. Annars tekst þér þetta aldrei. í þessu felst alls ekki það, að litilsmeta góða og mikla menntun, heldur að þú sért fús til þess að leggja nýjan grundvöll að lífs- skoðun þinni og láta Guðs orð þá komast að og nota það óspart til þess að gefa þér rétta mynd af Guði — opinbera hann fyrir þér. Þú þarft hjálpar Krists við til þess að geta orðið lærisveinn, sem lifir í eftirfylgd hans. Ó, hve samtíð okkar þarf á slíkum að halda. Og hér í þessum texta er bent á yndislega leið, sem Kristur hefur lagt í sambandi við það að fylgja honum eftir og líkjast honum. Tuttugasta og áttunda og þrítugasta versið eru meðal unaðslegustu orða í Biblíunni. Hvílíkt tilboð að mega koma — koma alveg eins og maður er. Mega koma með það, sem á okkur hvílir, hvort sem það eru syndir, erfiðleikar, efasemdir, kvíði. Hvað sem það er, þá er okkur boðið að koma með það til hans. Það geta aldrei legið á þér ofmargar byrð- ar, svo að þú getir af þeim sökum ekki kom- ið með byrðar þinar til hans. Hins vegar getur þú orðið svo upptekinn af byrðum þín- um, horft svo á þær, að þú kemur alls ekki með þær til hans. Taktu því þessu yndislega tilboði og minnstu þess, að Kristur byrjar að vinna verkið fyrir þig, þar sem þú gefst upp, eða sleppir af því hendi sjálfur. Reyndu þessa leið: Að þiggja hjálp Krists til þess að finna Guð og til þess að fara rétta leið eftirfylgdar lærisveinsins. Gerðu þér Ijóst, að þú sért éinn smælingjanna, í þeirri merkingu, sem talað er um i textanum. Þá hefur þú auðmýkt þig svo, að hann tekur þig í arma sér pg lyftir þér til samfélags við sig. til grundvallar erindi sinu þrjár meginhugsanir úr sögu Jesú um talenturnar, trúmennsku, hygg- indi og reikningsskil. Hann taldi, að heimatrúboðið norska hefði lítið gert til þess að skipuleggja starf sitt vegna framtíðarinnar, en lagt mikla rækt við sögu hins liðna og að varðveita arfinn á líðandi stundu, án þess að gera sér svo glögga grein fyrir þörfum fram- tíðarinnar eða afleiðingum þeirra ákvarðana, sem teknar væru fyrir næstu áratugi, æmar breytingar á búsetu og lifnaðar- háttum og á starfsháttum hinn- ar almennu kirkju, gerðu fram- sýni nauðsynlegri nú en áður. Trúmennskan verður fyrst og fremst að vera augljós gagnvart þeim kristindómi, sem grund- vallaður er á Guðs orði, en hún verður einnig að vera skýr gagn- vart sérkennum hreyfingar okk- ar í kirkjunni og í samfélagi við aðrar kristnar hreyfingar. Að því er varðar afstöðuna til Biblíunnar hefur alltaf ríkt Frh. á bls. 19 10 BJARMI

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.