Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.1971, Blaðsíða 16

Bjarmi - 01.10.1971, Blaðsíða 16
* Billy var einkasonur auðkýf- ings. Faðir hans dó, meðan dreng- urinn var lítill, og drengurinn varð eina innihaldið í lífi móð- urinnar. Hann var bráðmyndarlegur, gáfaður — og eyðilagður af eft- irlæti. 1 blindri ást sinni neit- aði móðir hans honum ekki um neitt. Þegar hann var tvítugur, hafði hann þegar teygað svo djúpt úr bikar syndarinnar, að hann hafði bragðað beiskustu botndreggjamar. Hann vissi ekki lengur, upp á hverju hann ætti að finna í lífsleiða sínum, til þess að krydda eitthvað upp á tilveruna. ... Á þeim aldri, þegar hann hefði átt að vera ungur og glað- ur og fullur eftirvæntingar þess, hvað lífið myndi veita honum, var hann ringlaður og þreyttur eins og gamalmenni. Allt, sem hann reyndi, veitti aðeins stund- ar reynslu, meira að segja fíkni- og kvaldist af tómleika og fannst hann vera útbrunninn og dauðuppgefinn á öllum og öllu. Hvers vegna var hann að fara á fætur í morgun? spurði hann sjálfan sig. Og til hvers ætti hann að fara á fætur í fyrra- málið, fyrst lífið var svona til- gangslaust og um ekkert var að ræða nema að reyna að drepa tímann? Ljósgeislinn frá bilnum lýsti allt í einu á gamlan mann, sem gekk i sömu átt og Billý ók i. Billý ætlaði að fara að gefa hljóðmerki, til þess að aðvara gamla manninn, þegar eldheitri hugsun laust niður í huga hans. ,,Þú hefur reynt allt — nema að deyða mann. Hvemig ætli það sé að deyða mann? Þetta gæti ef til vill veitt mér nokk- urra mínútna spenning?“ Með þeim hraða, sem bifreið- in hafði, var aðeins um sekúnd- ur að ræða. Ætti hann að kom- ast hjá árekstri, yrði hann þeg- ar í stað að beygja svolítið inn á veginn. En ef hann gerði það nú ekki? Heitur straumur fór um hann allan. Það var eins og deyfandi áhrif léti honum finn- ast, að hann væri ofurmenni. Lif annars manns lá í hendi hans. Hann var herra yfir því. Rauði sportbíllinn þaut áfram * Billý gekk jafn harður og kaldur inn í fangelsið, til þess að afplána brot sitt, eins og hann hafði verið í réttarsalnum. En inni í fangelsinu gerðist óvæntur atburður. Billý mætti Jesú þar. Við kross hans veitti hann viðtöku fyrirgefningu synda sinna — einnig þeirrar hræðilegu syndar, sem hann drýgði, er hann af einskærri ævintýralöngun svipti annan mann lífi. Skrælnuð sál hans hlaut nýtt líf og lífið fékk nýjan tilgang. f höndum Jesú breyttust rúst- irnar af lífi þessa unga manns í verkfæri til dýrðar þeim Drottni, sem á bak við harð- neskju- og kæruleysissvipinn og saurugan huga og sálarlif sá þrá — já, hungur eftir einhverju, sem svipt gæti burtu vonbrigð- unum yfir tómleika tilverunnar. Billý kom aftur heim sem gjörbreyttur maður. Drengur- inn, sem eftirlæti hafði eyðilagt, VEGNA SPENNINGSINS lyf og LSD höfðu aðeins stutt áhrif. Flestir sáu, að Billy var eyði- lagður og forhertur — nema móðir hans. Hún trúði öllu, sem hann sagði henni, og þoldi ekki minnstu athugasemdir við gull- fuglinn sinn. Síðla kvölds nokkurs var hann á heimleið í sportvagni sínum. Hann hafði verið með nokkrum sálufélögum sínum á orðlagðri baðströnd um nokk- urra daga skeið, þar sem ekki skorti tækifærin til þess að syndga bæði opinberlega og í leyndum. Og nú sat hann í bíln- um sínum þetta dimma kvöld á fullri ferð. Hjarta Billýs ham- aðist óskaplega, þegar' hann fann áreksturinn. Þessi einkennilegu áhrif héldu honum í greip sinni fáein and- artök. Svo fjöruðu þau út, eins og öll önnur áhrif, og hann vissi, að hann væri morðingi. Jafnvel við þessar aðstæður, þegar enginn vafi lék á því, hver ætti sök á ákeyrslunni, átti móðir Billys næga peninga til þess að leysa hann að nokkru frá ábyrgðinni. Einn duglegasti málaflutningsmaður landsins varði hann svo vel í réttinum, að hann fékk aðeins tveggja ára fangelsisdóm. var orðinn þroskaður maður með ríka ábyrgðartilfinningu. Hann hafði eignazt eitt hlutverk öllum meiri hér í þessu lífi — að boða Krist öðrum ungum mönnum, sem höfðu eins og hann misst fótfestuna og reynt að svala þorsta sálarinnar með eitruðu og óhreinu vatni úr brunnum þessa heims. Billý er nú forstjóri stórs verzlunarfyrirtækis, sem hann erfði. Megnið af frítíma sínum og tekjum ver hann til kristi- legs starfs — fyrst og fremst meðal afvegaleiddra unglinga. (Sannur viðburður, skráður af Trolli Neutsky-Wulff). 16 B J A R M I

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.