Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.1971, Blaðsíða 21

Bjarmi - 01.10.1971, Blaðsíða 21
fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu.“ Þú segir, að þú munir ekki hafa neina gleði af því að fara í kirkju, lesa Biblíuna og lifa sem kristinn maður. En gleði öðlast þú, ef þú þekkir Jesúm. 1 öðru lagi leitar unga fólkið að markmiði. Hipparnir kalla það sjálfsundirgefni eða hug- leiðslu. Þekktur sálfræðingur komst svo að orði fyrir nokkru: „Unga fólkið finnur ekkert svar í þeim heimi, sem það lifir og hrærist í. Án svars virðist það draga sig inn i skel eða rísa upp til andmæla.“ Vér sjáum nú á tímum, að tómarúm er í heiminum, en mannkynssagan segir, að það muni fyllast einhverju. Það er markmið Guðs, að það fyllist kraftmiklum kristindómi, og slík- an kristindóm vill hann einnig gefa þér. Hann hefur fyrirætlun í hyggju með þig. Hvaðan kem ég? Ég er skapaður eftir mynd Guðs. En ég hef risið upp gegn honum og er kominn á vald synd- arinnar. En Jesús Kristur kom og tók refsingu mína á sig, er hann bar hana upp á krossinn. Nú hef ég veitt honum viðtöku, og ég lifi hon- um til dýrðar. Drottinn gefur mér innra afl til þess að horfast í augu við lífið. ,Ég veit, að þeg- ar ég dey, liggur leið mín til himins. í þriðja lagi hef ég komizt að því, að ungir menn leita að von og öryggi. Það er engin furða, þótt æskan neyti örvunarlyfja, úr því að kenn- arar vorir, rithöfundar og menntamenn eru svart- sýnir um framtíð heimsins. Æskufólkið segir: „Vér kærum oss ekki um auð og efnisgæði. Vér viljum eitthvað meira, eitthvað sem krefst krafta vorra og veitir oss von.“ Biblían boðar spjald- anna á milli, að til sé von. Fyrir nokkru átti ég tal við stúdent í New York. Hann er einn rót- tækasti stúdentinn i Bandaríkjunum. Við emm nánir vinir. Þegar við höfðum ræðzt við í marg- ar klukkustundir, horfði hann á stórhýsin og sagði: „Vér ætlum að brenna þessi hús. Vér ætl- um að fara herskildi um landið. Vér erum ekki enn komnir svo langt, að vér vitum, hvað vér komum með í staðinn, en vér vitum, að vér ætl- um að brenna þetta allt til ösku.“ Þeir eru margir á meðal vor, sem eygja þann- ig enga von. En Biblían segir, að til sé von. Páll segir í Kólossubréfinu: „Kristur meðal yðar, von dýrðarinnar.“ Biblían talar einnig um þá, sem eru án Guðs og án vonar í heiminum. Líf er að loknu þessu lífi. Þá munu þeir, sem trúa á Krist, fá að lifa með honum. Þú þarft að eiga einhvern að, sem þú sýnir undirgefni. Hví viltu þá ekki gefa þig á vald persónunni Jesú Kristi? Æskan vill í fimmta lagi eiga reynslu. Forseti háskólans í New York sagði fyrir nokkru: „Flest vandamálin, sem hrjá stúdentana, snerta tilfinn- ingarnar, ekki skynsemina.“ Ég hef komizt að raun um, að þetta er rétt, hvar sem er í heim- inum. Þar sem æskunni er stefnt saman, ríkir gauragangur, öskur, framiköll og grófyrði, en það er erfitt að fá hana til að ræða málin. Þetta er ástæðan til þess, að hún leitar lyfja, sem æsa tilfinningarnar. En reynsluna, sem þeir sækjast eftir, geta þeir öðlazt hjá Jesú Kristi. Þrjií Einkunnarorð hippanna í Bandaríkj- M'ígord unum eru þrjú vígorð: „Finndu bylgju- lengdina“, „settu í samband" og „að- greindu þig“. Þetta er einmitt það, sem Jesús sagði: „Finnið bylgjulengdina, látið sættast við Guð!“ Vér höfum orðið viðskila við Guð vegna syndarinnar. Það verður að tengja oss við Guð að nýju. Orðið afturhvarf er notað í allri Biblí- unni. Jesús sagði, að tveir vegir lægju gegnum lífið: Breiði vegurinn, sem liggur til glötunar, og mjói vegurinn, sem liggur til eilifs lífs. Þegar Jesús segir, að þér beri að snúa við, á hann við, að þú eigir að breyta um stefnu og fara inn á mjóa veginn. Snú þér til Guðs og „settu í sam- band“! Heilagur andi vill taka sér bústað í þér og hjálpa þér til að lifa lífinu með Jesú Kristi. Hann vill „setja í samband“ og veita þér hinn yfirnáttúrlega kraft. Þegar Drottinn er kominn inn í tilveru þína, áttu að „aðgreina þig“, eins og þriðja einkunnar- orð hippanna hljóðar. Ritningin kennir, að krist- inn maður fari ekki eftir því, sem gengur og ger- ist. „Hegðið yður eigi eftir öld þessari, heldur takið háttaskipti með endurnýjungu hugarfars- ins, svo að þér fáið að reyna, hver sé vilji Guðs.“ Syndin hefur truflað huga vorn, og því þarfnast hann upplýsingaír heilags anda. Þá mun Drottinn setja sitt mark á hugsanir þínar og hvatir. Bibl- ían segir: „Verið með sama hugarfari sem Jesús Kristur var.“ Börn Guðs greina sig frá heiminum einnig í hinu ytra. Líkaminn verður musteri heilags anda. Drottinn hefur keypt þig, og þú ert hans eign. Þess vegna ber þér að vera hreinn, agaður og undii’gefinn Guði. Þegar þú helgar þig honum á ný, hjálpar hann þér til þess að standast allar freistingar, sem eyðileggja líkama þinn. Ekki eigum vér heldur að líkjast heiminum í trúarlegum efnum. Að vera Irúhneigður getur táknað það eitt að vera skírður, fermdur og lifa í samræmi við viðurkennda háttsemi. En Biblían segir, að þér komizt ekki inn í himininn, ef rétt- læti yðar tekur ekki langt fram réttlæti faríse- anna og hinna skriftlærðu. Drottinn segir fyrir munn spámannsins: „Komið ekki með fleiri slík trúartákn til mín. Þau geta ekki frelsað yður.“ Jú, það er nauðsynlegt að sækja kirkju, og þú skalt þakka Di’otlni fyrir, að þú ert skírður og fermdur. En eigi þetta að vera þér einhvers virði, verður þú að gefa þig honum á vald og láta hann vera Drottin þinn. Þú verður að afneita sjálfum þér og taka upp kross þinn og fylgja honum. Frh. í næsta blaði. UJAKMl 21

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.