Bjarmi - 01.10.1971, Síða 20
MAÐUR KOM FKAM
Þáttur um
Billy Graham
Byrjunarerfiðleikar i sambandi við tæknihlið-
ina verka ögn þreytandi á suma. Og samt er
þetta stórkostlegt tækniundur. Norsku túlkarnir i
Dortmund eru í nokkrum vanda staddir, þar sem
tæknisambandið við þá er ekki eins og vera ber,
og þýzki túlkurinn, Peter Schneider, yfirgnæfir
öðru hverju rödd þeirra heima í Noregi.
En hið tröllaukna tjald hefur gífurleg áhrif á
fólkið. Kyrrð ríkir í salnum. Ef til vill dregur
allur þessi tæknibúnaður nokkuð úr þeim ægi-
krafti, sem hvilir yfir Billy Graham. Samt kemst
boðskapur hans til skila. Margir verða við hvatn-
ingu hans, þegar hann biður þá, sem vilja leita
hjálpræðis, að ganga fram að ræðustóli hans í
Dortmund eða að stóra sýningartjaldinu í sam-
komuhúsinu, þangað sem sjónvarpað er. Meðan
hinn ofurstóri krossfararkór í Dortmund syngur
„Just as I am“ á þýzku, streymir fólk hljóðlega
að ræðustólnum í Westfalen Halle. Hópurinn er
nokkru minni á hinum stöðunum.
Billy Graham ávarpar þá, sem hafa gengið
fram. Hann biður þá að lesa í Biblíunni á hverj-
um degi, biðja daglega, vitna um Krist, sækja
kirkju.
Leiðbeinendur tala við þá, sem eru leitandi.
Þeir gefa ráð, biðja með þeim, rétta þeim blöð
og rit og eru fúsir til að vísa þeim þangað, sem
þeir geti átt trúarlegt samfélag við annað fólk“.
Fyrstu samkomunni er lokið. Vegna þrengsla
verða forstöðumenn að biðja þá, sem komust inn
fyrsta kvöldið, að sitja heima næsta dag, til þess
að þeir, sem urðu frá að hverfa, eigi kost á að
koma þá.
Kvöld Annað kvöldið eru salirnir einnig
u’nkunnar fullsetnir, þó að biðraðimar hafi
ekki verið eins langar og daginn
áður. Billy Graham hefur auglýst, að á þeirri
samkomu ætli hann að beina orðum sínum sér-
staklega til ungs fólks. Og æskan kemur. Heilu
bekkirnir úr skólunum. Margir langferðabílar.
Engum dylst, þegar Billy Graham hefur mál
sitt, að hann þekkir æskuna. Hann velur sér að
texta kafla úr ræðu Péturs á hvítasunnudag, þar
sem hann vitnar til orða Jóels spámanns, Post.
2,16—21. Unga fólkið hlustar. Hvert orð heyrist,
og hvert orð er íhugað. Hér fer á eftir megin-
hluti ræðunnar:
„Biblían er bók spádómanna. Pétur segir hér,
að koma andans sé að nokkru leyti uppfylling
þess, sem mælt hafi verið áður fyrir munn spá-
mannsins Jóels. En spádómurinn segir líka, að
sú kynslóð muni koma fram í sögunni, sem verði
seld í hendur ungum mönnum, er dreymi drauma.
Það má vera, að vér nútímamenn séum sú kyn-
slóð, sem spámaðurinn Jóel talar um.
Ég hef dulbúið mig og heimsótt svokallaðar
,,kærleiks-hátíðir“ (love-ins) og rock’n-roll-sam-
kundur í heimalandi mínu til þess að kynnast
æskunni. Hippar eru mjög áberandi meðal æsk-
unnar víða í Bandaríkjunum og Evrópu. Þeir eru
kynslóð vonsvikins fólks. Þeir taka inn örvunar-
lyf til þess að geta lifað lífinu. Þeir varpa fram
spurningum, sem snerta alla tilveru vora, en gef-
ast upp um leið.
Fyrir nokkru sneri stúdent heim frá háskól-
anum í Kaliforníu. Hann sagði við föður sinn:
„Ég ætla að hætta í skólanum og verða hippi.
Og pabbi, það er eitt, sem ég vil, að þú vitir:
Ég hata þig. Og ég geri ráð fyrir, að þú viljir
vita ástæðuna." Faðir hans var sem þrumu lost-
inn og mælti: „Já, gjarnan.“ Sonurinn svaraði:
„Ég hata þig, af því að þú hefur búið allt of vel
í haginn fyrir mig. Þú hefur ekki látið mig vinna
og ekki veitt mér neitt, sem ég gæti trúað á. Þú
hefur ekki gefið mér neitt annað en efnishyggj-
una, og ég hef ekki áhuga á henni.“
Unga fólkið nú á dögum rís upp gegn þeirri
velsæld, sem eldri kynslóðin hefur búið henni.
Það segir, að lifið sé meira en góð afkoma. Það
spyr spurninga og vill fá svar um hæl, því að
það sér vetnissprengjuna og allan ófögnuðinn,
sem getur dunið yfir heiminn á vorum tímum.
Það vill vita, hvaðan það kemur, hvers vegna
það er hér og hvert leiðin liggur eftir dauðann.
1 fyrsta lagi leitar æskan að gleði. Lauslæti,
svall, fíknilyf og flakk veitir fullnægju um stund-
ar sakir. En Biblían segir, að þessar nautnir vari
skamma stund og endi í dauða og tortímingu.
En Biblían talar einnig um varanlega og eilífa
gleði. Svo segir í 16. Sálminum: „Gleðignótt er
20 BJAHMl