Bjarmi - 01.11.1977, Page 4
FRÁ STARFINU
Fagnaðarsamkoma
Kristniboðarnir Ingibjörg Ingvars■
dóttir og Jónas Þ. Þórisson komu
ásamt börnum sínum til 'lslands 18.
júní siðastliðinn. Almenn fagnaðar-
samkoma var haldin 28. ágúst i
húsi KFUM við Amtmannsstíg i
Reykjavík, þar sem fjölskyldan var
boðin velkomin heim. Gisli Arnkels-
son, formaður Kristniboðssam-
bandsins, stjórnaði samkomunni.
Þau hjónin töluðu bæði og sögðu
frá ástandi og horfum í Eþíópíu.
Þökkuðu þau kristniboðsvinum
tryggð þeirra í fyrirbæn og fórn og
hvöttu þá til, að láta ekki af að
biðja fyrir Eþíópíu. Þau gátu þess
m. a., að vegna hjálparstarfsins,
sem unnið var, þegar hungursneyð-
in geysaði í Konsó á dögunum,
hefði afstaða margra Konsómanna
til kristniboðsins og kirkjunnar
breytzt til hins betra. Kristnum
mönnum fer fjölgandi í Konsó. Sr.
Berisha Húnde hetur nú tekið við
stjórn kristniboðsstöðvarinnar. —
Á samkomunni var tvisöngur, og
Benedikt Arnkelsson flutti hugleið-
ingu i lokin. Tekið var við gjöfum
til kristniboðsins, og námu þær um
120 þús. kr. — Jónas og fjölskylda
verða búsett í Reykjavík i vetur, og
mun Jónas taka þátt í ferðastarti
SIK ásamt heimastarfsmönnum.
M KSS og KSF
Kristileg skólasamtök og Kristilegt
stúdentafélag fengu góða heimsókn
frá Noregi í byrjun september. Var
þar á ferðinni starfsmaður norsku
kristilegu stúdenta- og skólahreyf-
ingarinnar, síra Jens-Petter John-
sen. Hélt hann m.a. námskeið fyrir
stjórnir félaganna, stjórnendur
biblíuleshópanna í skólum o.fl., en
námskeiðinu var einkum ætlað að
verða þessu fólki til hjálpar í því
starfi, sem það stendur i.
Kristileg skólasamtök héldu haust-
mót sitt í Vatnaskógi dagana 9.-11.
september. Sóttu það alls um 190
manns, og er þetta fjölmennasta
mót, sem haldið hefur verið á veg-
um samtakanna. Yfirskrift mótsins
var: ,,Höndlaður af Kristi Jesú".
Meðal þeirra, sem töluðu á mótinu,
var síra Jens-Petter Johnsen.
Aðalfundur KSS var haldinn 1. októ-
ber. Kosin var ný stjórn, og skiptir
hún þannig með sér verkum: Þröst-
ur Eiríksson, formaður; Ólafur Jó-
hannsson, ritari; Þórarinn Björns-
son, gjaldkeri; Ragnheiður Sigurðar-
dóttir og Sigrún Huld Jónasdóttir,
meðstjórnendur. — Skólasamtökin
halda fundi sína á vetrum á laugar-
dögum í húsi KFUM og K við Amt-
mannsstíg i Reykjavík. Þá starfa
bibliulestrarhópar á vegum samtak-
anna í mörgum framhaldsskólum.
Kristilegt stúdentamót var haldið í
Vindáshlíð dagana 7.—9. október.
Yfirskrift mótsins var: ,,Vakið".
Voru þátttakendur um 65.
FlóasfiaarkaS&ss'
KFUK í Reykjavík hélt svonefndan
flóamarkað í félagshúsinu við Holta-
veg 24. september. Á flóamarkaði
eru seldir nýir og notaðir munir af
ýmsu tagi, allt eftir örlæti og hug-
myndaflugi þeirra, sem styðja vilja
slikt fyrirtæki. Hjá KFUK kenndi
margra grasa, og gaf markaðurinn
af sér um 250 þúsund krónur. Kem-
ur ágóðinn sér vel í umfangsmiklu
starfi félagsins í höfuðborginni.
Ferðasftarfið
Benedikt Arnkelsson og Skúli Svav-
arsson störfuðu saman norðanlands
i rúman hállan mánuð í lok septem-
ber og byrjun október. Lögðu þeir
lið í starfi félaganna á Akureyri,
en heimsóttu auk þess elliheimilin
á Akureyri og i Skjaldarvík. Þá
héldu þeir samkomur á Ólafsfirði
og Dalvík. Á Sauðárkróki heimsóttu
þeir sjúkrahúsið og barnaskólann
og héldu almennar samkomur i
kirkjunni. Þeir kynntu krstniboðið i
skólunum á Hjalteyri og Laugalandi
á Þelamörk. — Loks fóru þeir til
Húsavikur, sýndu myndir frá Eþí-
ópíu i gagnfræðaskólanum þar og
héldu tvær samkomur í kirkjunni. —
Gjafir til kristniboðsins námu rúm-
lega 34 þús. kr.
Gunnar Sigurjónsson og Jónas Þ.
Þórisson héldu kristniboðssamkomu
i Selfosskirkju miðvikudaginn 21.
september kl. 8,30 e.h. og í Hvera-
gerðiskirkju daginn eftir fyrir vist-
menn elliheimilisins >4s kl. 5 síð-
degis og kvöldvöku kl. 8,30 e.h. á
heilsuhæli Náttúrulækningafélags-
ins. Á öllum stöðunum var kristni-
boðið kynnt i máli og myndum og
tagnaðarerindið boðað.
Einnig fóru þeir félagar til Vest-
mannaeyja miðvikudaginn 28. sept.
og dvöldust þar til 10. október.
Tóku þeir þátt i barnastartinu i
KFUM og K, sem hjónin Gísli Frið-
geirsson og Lilja Sigurðardóttir
hafa með höndum. Hafa nýlega
flutzt önnur ung hjón frá Reykja-
vík til Vestmannaeyja, þeim til að-
stoðar i starfinu. Það eru Stein-
grimur Á. Jónsson og Þóranna Sig-
urbergsdóttir. Búa þau í íbúðinni í
húsi KFUM og K.
Auk barnafundanna voru haldnir
bibliulestrar og almennar samkom-
ur. Var samkomusókn góð, enda
hefur stækkað hópur trúaðra, sem
vill leggja hönd á plóginn í starf-
inu að því að ávinna aðra fyrir
Jesúm Krist. Guðs andi hefur á
undanförnum mánuðum verið að
verki í hjörtum margra og kallað
þá til afturhvarts og lífs í Guði.
Er það mikið gleði- og þakkarefni,
ekki sizt vegna þess, að i þessum
hópi eru nokkur ung hjón, sem
voru samtaka í að ganga Drottni
Jesú á hönd. — Guðs andi er enn
að verki, og ástæða er til þess að
hvetja alla trúaða menn til að biðja
þess, að Drottinn haldi áfram verki
sínu í hjörtum manna og margir
fleiri hlýði kalli hans. Biðjum einn-
ig um vizku og handleiðslu Drott-
ins til handa þeim, sem veita starf-
inu forstöðu. Það, sem nú er að
gerast, er áreiðanlega svar Drott-
ins við bænum margra, sem hata
hatt Vestmannaeyjar sérstaklega á
bænalista sínum. Biðjum þvi með
djörfung þess, að Drottinn vitji fleiri
staða á landi okkar með endur-
lífgunartímum frá augliti sínu (Post.
3,19).
Ráðstefna
Fimm kristileg leikmannasamtök
innan íslenzku kirkjunnar, þ.e.
KFUM og KFUK i Reykjavík, Sam-
band ísl. kristniboðsfélaga, Kristi-
legt stúdentafélag og Kristileg
skólasamtök, héldu ráðstefnu í
Reykjavík um nokkur grundvallar-
atriði kristinnar trúar, eins og boð-
að hafði verið, dagana 14.—16.
október. Erindi voru flutt i félags-
húsi KFUM og K við Amtmanns-
stig, en kvöldsamkomur í dómkirkj-
unni. Fastir þátttakendur ráðstefn-
unnar voru rúmlega tvö hundruð,
og almennu samkomurnar i dóm-
kirkjunni voru mjög vel sóttar.
Sr. Jónas Gíslason, dósent, stjórn-
iaði samverustundum. Hann setti
ráðstefnuna á fyrstu kvöldsamkom-
unni föstudaginn 14. október. Gunn-
ar Sigurjónsson, guðfræðingur,
predikaði þá um efnið: Grundvöll-
4