Bjarmi - 01.03.1995, Side 5
AÐALGREIN
Dæmib ekki
Eitt af því sem Jesús ræddi um í Fjallræðunni var
dómurinn yfir öðrum. „Dæmið ekki, svo að þér
verðið ekki dæmdir“ (Mt. 7:1, sbr. Lk. 6:37). Hvað
átti Jesús við með þessum orðum? Við hljótum að
spyrja slíkrar spurningar ef við viljum fylgja honum
og taka orð hans alvarlega.
Á það hefur verið bent að þessi orð séu í nánu
samhengi við ýmsa aðra þætti Fjallræðunnar. Rauði
þráðurinn í henni er sá að samband okkar við Guð
og samband okkar við náungann sé í órofa
samhengi. Sé sambandið við Guð ónýtt leiðir það af
sér eyðilagt samband við náungann. Sé sambandið
við Guð í lagi á það að hafa í för með sér gott
samband við þá sem í kringum okkur eru. Tvöfalda
kærleiksboðið (Mt. 22:37-39), um að elska Guð af
öllu hjarta, sálu og huga og náungann eins og
sjálfan sig, áréttar þetta þar sem kærleikurinn til
Guðs og náungans fer saman.
í Fjallræðunni rná sjá samhengi milli sæluboðan-
anna, Faðirvorsins og orðanna um að dæma ekki
aðra. Það sanihengi sýnir glöggt hvernig sambandið
við Guð og náungann er tengt hvort öðru. Fimmta
sæluboðunin er um miskunnsemi: „Sælir eru
miskunnsamir, því að þeiin mun miskunnað
verða“ (Mt. 5:7). Við getum snúið þessu við
og sagt: Sá sem væntir miskunnar Guðs
hlýtur að miskunna öðrum. Bænin um
fyrirgefningu syndanna í
Faðirvorinu snýst um hið sama:
„Fyrir gef oss vorar skuldir,
svo sem vér og fyrirgefum
vorum skuldunautum" (Mt.
6:12). Um leið og við biðjum
Guð um fyrirgefningu lýsunt
við yfir vilja okkar til að
fyrirgefa öðrum. Sá sem ekki
vill fyrirgefa öðrum forherðir
sig og getur ekki þegið fyrir-
gefningu Guðs (sbr. Mt. 6:14-
15 og 18:21-35).
Þessar hugsanir eru síðan í
beinu samhengi við orðin um
að dæma ekki aðra til þess að
verða ekki sjálfur dæmdur
(Mt. 7:1). Ef við væntum þess
að Guð dæmi okkur ekki,
vegna þess að hann hefur
miskunnað sig yfir okkur og
fyrirgefið okkur allar okkar
syndir, þá hljótum við einnig
að sleppa því að fella dóma
yfir öðrum vegna þess að við viljum sýna miskunn-
semi og fyrirgefa þeim.
Hér er í rauninni verði að tala um að afstaða
okkar til náungans mótist af afstöðu Guðs til okkar.
Hér er í rauninni verði að tala um að afstaða
okkar til náungans mótist afafstöðu Guðs
til okkar.
Guð hefur opinberað kærleika sinn
til okkar í Jesú Kristi. Sá kær-
leikur á að birtast í afstöðu
okkar til annarra.