Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1995, Blaðsíða 7

Bjarmi - 01.03.1995, Blaðsíða 7
AÐALGREIN ekki hafa iðrunar þörf‘ (Lk. 15:7). Við erum hvött til að fara og leita hins týnda, leiðbeina þeim sem villst hafa af leið en ekki lil að dærna þá (sbr. Mt. 18:10-20). og beðist fyrirgefningar þá lærum við einnig að horfa á aðra í sömu sporum, þ.e. undir krossi Krists þiggjandi fyrirgefningu hans. Flfsin og bjálkinn Líkingin Jesú um flísina og bjálkann (Mt. 7:3-5) dregur fram á svolítið ýktan hátt um hvað málið snýst. Smæð flísarinnar og stærð bjálkans afhjúpar blindu okkar á eigin galla á sama tíma og við erum sífellt að leita að flísunum í auga náungans. Okkur hættir til að sjá ekki eigin galla og brot en erum ótrúlega glögg á bresti annarra. Hræsni okkar felst í því að við leggjum annan mælikvarða á ávirðingar annarra en okkar eigin. Við göngum jafnvel svo langt að nota orð Jesú í Fjallræðunni til að afsaka okkur sjálf þegar einhver finnur að okkar hegðun. Boðskapur Jesú er sá að við eigum alltaf að byrja á okkur sjálfum, líta fyrst í eign barm, viðurkenna syndir okkar frammi fyrir Guði og mönnum og biðjast fyrirgefningar. Þá fyrst erum við fær um að „draga Uísina úr auga bróður okkar“ því þá höfum við hlotið nýja sýn sem byggist á því að okkur hefur verið fyrirgefið. Þá snýst það að draga flýsina úr auga náungans ekki um það að fella yfir honum dóm heldur um það að leiðbeina honum í kærleika, fyrirgefa honum og boða honum fyrirgefningu Guðs. Páll postuli talar um svipaða hluti í upphafi 6. kafla Galatabréfsins: „Ef einhver misgjörð kann að henda mann, þá leiðréttið þér, setn andlegir eruð, þann mann með hógværð. Og haf gát á sjálfum þér að þú freistist ekki líka“ (v. 1). í framhaldinu hvetur hann lesendur sína til að bera hver annars byrðar og jafnframt að sérhver rannsaki breytni sjálfs sín. Samhengið er því svipað og hjá Jesú. Aherslan er á því að líta í eigin barm og leiðbeina síðan öðrutn af hógværð undir formerkjum þess að bera hver annars byrðar og uppfylla þannig lögmál Krists. Þar gæti Páll hafa haft í huga nýja boðorðið sem Jesús gaf lærisveinum sínum: „Eins og ég hef elskað yður, skuluð þér einnig elska hver annan" (Jóh. 13:34). Kærleikurinn er því í brennidepli og honum er stillt upp gegn dómsýkinni og hræsninni. Dómsýkin blindar okkur en kærleikurinn gerir okkur sjáandi. Þegar við dæmum aðra erum við blind á okkar eigin ávirðingar og sjáum ekki náðina sem gildir fyrir aðra alveg eins og okkur. í Ijósi kærleika Krists sjáum við aftur á rnóti synd okkar og sekt á nýjan hátt og getum meðtekið náð hans. í kærleika sínum gaf Jesús líf sitt fyrir okkur og tók þannig á sig sekt okkar. Þegar við höfum staðnæmst undir krossi hans Afleibingarnar Nú má spyrja hvað þessi boðskapur hefur að segja fyrir okkur? Ljóst er að Fjallræðan er töluð til þeirra sem tilheyra Jesú Kristi. Boðskapur hennar á jafnt erindi til þeirra sem fylgja honum nú á dögum eins og þegar ræðan var flutt. Okkur sem trúum á hann Kœrleikurinn er því í brennidepli og honum er stillt upp gegn dómsýkinni og hmsninni. Dómsýkin blindar okkur en kœrleikurinn gerir okkur sjáandi. hættir jafnmikið og öðrum til að fella dóma yfir náunga okkar um leið og við lokum augunum fyrir því sem kann að vera að hjá okkur sjálfum. Við eruni í stöðugri leit að flísum í auga náungans en látum sem bjálkinn í eigin auga sé ekki til. Sjálfs- elska okkar birtist meðal annars í því að við leit- umst við að upphefja okkur sjálf á kostnað annarra. 7

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.