Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.03.1995, Qupperneq 30

Bjarmi - 01.03.1995, Qupperneq 30
AÐ UTAN Fangelsanir og barsmíðar í Eþíópíu Þab kostar átök að vera kristinn Alvarleg ásökun Mörgum lesendum Bjarma mun kunnugt um þá atburði sem gerðust í Eþíópíu á síðastliðnu sumri þegar ráðist var með skothríð á bíl rétt fyrir utan bæinn Arba Minch. Meðal þeirra, sem urðu fyrir skotum, var yfirkennarinn í iðnskóla lúthersku Fréttir um ófrið eru stundum meira áberandi en hinar sem veita uppörvun og gleði. Þó að tekist sé á um mörg mál í Eþíópíu halda kristnir menn ótrauðir áfram starfi sínu í „þjónustu sáttar- gjörðarinnar", kunn- gjöra boðskapinn um Jesú og veita margs konar hjálp. Ríki Guðs breiðist út og fólkið nýtur bless- unar þess. - Myndin er af eþíópskri konu sem á heima í grennd við Bláu-NÍI. kirkjunnar í bænum, Abraham að nafni, og beið hann bana í árásinni. Barrisja Húnde, forseti suðvesturumdæmis kirkjunnar, annaðist greftrun Abrahams. En stuttu síðar brá svo við að Barrisja var sakaður um að hafa átt þátt í morðinu og var honum ásamt hópi manna varpað í fangelsi. Þar hefur hann mátt sitja þar til 23. fyrra mánaðar að hann var látinn laus. Því miður hefur augljós og dulinn rígur, sem bæði virðist sprottinn af þjóðflokkahyggju og valdafíkn, magnast í tengslum við mál þetta og má gera ráð fyrir að það hafi átt sinn þátt í því að Barrisja var sakaður um aðild að ódæðinu og látinn í fangelsi. Togstreita milli þjóðflokkanna í Eþíópíu kemur oft fram og fara kirkjurnar ekki varhluta af honum. Fólkið í suðvesturumdæmi lúthersku kirkjunnar er ekki af einum og sama þjóðflokki og sýnist sitt hverjum t.d. þegar skipað er eða kosið í stöður í kirkjunni. Málið í Arba Minch er talið tengjast slíkum deilum. Barrisja Húnde hélt því fram frá upphafi að hann væri með góða samvisku, hann hefði ekki komið nálægt mannvíginu enda var tekið fram þegar hann var látinn laus að hann væri hreinsaður af öllum ákærum og hefði aldrei átt að fara í fangelsi en það var 10. júlí sem hann var tekinn höndum. Barrisja leitaðist við að vera vottur Krists meðan hann var í fangelsinu. Hefur var önnum kafinn við að vitna um trú sína og kenna og halda kristilegar samkomur meðal samfanga sinna. Hann hóf einnig að halda námskeið fyrir menn sem vildu hljóta skírn. Höfðu hann og félagar hans óskað þess að mega byggja kirkju á lóð fangelsins. Barrisja hélt fljótlega heim lil Konsó þegar dyr fangelsisins höfðu verið opnaðar. Guðlaugur Gunnarsson kristniboði er einn nánasti samstarfsmaður Barrisja eins og lesendum Bjarma er kunnugt um. Hann vann að því eftir mætti ásamt öðrum kirkjumönnum að forsetinn yrði leystur úr fangelsinu. Sumir kunnu honum litlar þakkir fyrir. Heiöinqjarnir vilja hreinsa landiö Kristni söfnuðurinn í Gisma í Voitó í Eþíópíu vex. Einnig er mikið um að vera í Erbore sem er um 30 km neðar í dalnum. Þar hafa nokkrir menn gengið á skírnarnámskeið. Alls voru fyrr í vetur 34 þátttakendur í söfnuðinum í Voitó, börn og fullorðnir. Guðlaugur skírði þar fjögur ungmenni í haust. Fyrir skömmu sóttu nokkrir tugir barna nýbyrjaðan sunnudagaskóla sem kemur saman klukkan sjö á morgnana. Börnin eru mjög áhugasöm. Prédikarar hafa verið sendir ofar í dalinn, bæði til að vitna meðal Birralemanna (sjötíu manna þjóðflokks) og verkamanna á plantekru. Tækifærin til starfa eru mörg en fjárráðin takmörkuð og verða kirkjan og kristniboðarnir að sníða sér stakk eftir vexti. Svo bar til fyrir nokkru að ungir, kristnir menn í Voitó voru húðstrýktir. Nýr höfðingi átti að taka við embætti meðal þjóðflokksins og ákváðu heið- ingjarnir að landið skyldi „hreinsað" fyrir embættis- tökuna. Ungu mennirnir voru barðir á bert bakið og skipað að afneita trúnni á Jesú Krist. Kristni maður- inn Dilló varð að flýja til Birralentanna enda var honum hótað lífláti. 30

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.