Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1995, Blaðsíða 19

Bjarmi - 01.03.1995, Blaðsíða 19
AÐ UTAN Fjöldamorb Ákærurnar eru margar á hendur þeim sem voru leiddir fyrir rétt í Addis Abeba. Herstjórnin tók að sýna klærnar sama daginn og hún hrifsaði völdin árið 1974. Aðfaranótt 23. nóvember 1974 var 60 mönnum úr stjórn Haile Selassie keisara raðað upp við vegg og þeir skotnir. Líkunum var hent í fjöldagröf innan múra keisarahallarinnar. Keisaranum sjálfum var þyrmt þangað til árið eftir. En þá er sagt að ofursti nokkur, Mengistú Haile Mariam, hafi skipað svo fyrir að hann yrði telinn af lífi. Að morgni 25. ágúst 1975 fannst keisarinn dáinn rúmi sínu. Hann hafði verið kæfður með kodda sem vættur var í eter. Þegar Mengistú varð einráður í herstjóminni 1977 hófst nýr ógnartími í landinu. Hann hóf rækilegar hreinsanir og lét fjarlægja alla þá sem hann taldi ógna veldi sínu. Þegar honum var sjálfum velt úr sessi 1991 höfðu á annað hundrað þúsund manns verið drepnir. Þúsundir manna höfðu verið teknar af lífi án dóms og laga og jafnmargir „hurfu“ eftir að öryggissveitir höfðu tekið þá höndum. Matur var notaður sem vopn, sprengjum varpað á þorp og fangar pyndaðir til dauða. Og mokað var yfir hverja fjöldagröfina af annarri. Löng sakaskrá Ákæmmar hljóta ótvíræða staðfestingu í 309 þúsund blaðsíðna skjölum úr safni sjálfrar herstjórnarinnar. Ur fórum hennar fengust einnig myndbandsupptökur af pyndingaþýjum að verki. Þá er talað um að segul- bönd frá fundum herstjórnarinnar, þar sem skipað er fyrir um aftökur, séu og meðal hinna margvíslegu sönnunargagna sem líklegt er að verði lögð fram í málaferlunum. I þrjú ár hafa heimildir og gögn verið rannsökuð. Lögnienn og sérfræðingar erlendis hafa veitt drjúga aðstoð svo að unnt var að leggja fram langan lista yfir afbrot ofbeldismannanna sem réðu yfir fólkinu. Fyrstu daga málaferlanna átti að lesa 269 þétt- skrifaðar blaðsíður, tengdar 1823 fórnarlömbum herstjórnarinnar sem tekist hefur að bera kennsl á, áður en réttarhöldin skyldu hafin. Samkvæmt upplýsingum frá ákæruvaldinu má gera ráð fyrir að þrjú þúsund manns verði ákærðir, hermenn og óbreyttir borgarar. Af þeim sitja 1700 í varðhaldi. Yfirvöld í Eþíópíu hafa boðið fjölmörgum útlend- ingum, m.a. frá mannréttindasamtökunum Amnesty International og Alþjóðlegu lögmannanefndinni, til að taka þátt í réttarhöldunum og hafa heitið því að Þúsundir manna höfðu verið teknar aflífi án dóms og laga og jafnmargir „hurfu“ eftir að öryggissveitir höfðu tekið þá höndum. Matur var notaður sem vopn, sprengjum varpað á jtorp ogfangar pyndaðir til dauða. Og mokað var yfir hverja fjöldagröfma afannarri. draga allt fram í dagsljósið. Margir kristnir menn voru í hópi þeirra sem áttu erfiða daga og þoldu pyndingar í tíð einræðis- herrans. Og kunnugt er að kommúnstar drápu einn mikilhæfasta leiðtoga lúthersku kirkjunnar, Gúdína Túmsa. Er ekki vafi á því að margir niunu leggja eyrun við fréttum frá Addis Abeba á næstu vikum og mánuðum. (Heimild: Dagen.) KÚBA: S Ovelkomnir prédikarar Greinahöfundurinn Dan Wooding, sem ritar í kristilega tímaritið Christian Herald, hefur verið látinn vita að þess sé ekki óskað að hann heimsæki Kúbu. En hann er ekki einn urn að hafa fengið slík skilaboð. Stjórn Kúbu hefur samið lista yfir félagssamtök og þekkta kristna leiðtoga sem eru óvelkomnir. í þeirra hópi eru Billy Graham og Bill Bright, leiðtogi samtakanna Campus Crusade for Christ. Sumum finnst kynlegt að Billy Graham skuli vera á listanum enda hefur hann aldrei til Kúbu kornið hvað þá sótt um landvistarleyfi. Eins og kunnugt er heldur Kastró einræðisherra Kúbverja fast við kenningar sósíalismans í stjórn sinni á landsmönnum. 19

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.