Bjarmi - 01.03.1995, Blaðsíða 20
AÐ UTAN
Bestu vopnin:
Bœnin og bók Guðs
Smyglarinn
er enn ab
verki
Það er oft vitnað til hans í erlendum, kristi-
legum blöðum og sagt frá starfi hans. Hann
varð heimsfrægur þegar bók hans, Smyglari
Guðs, kom út. Þar lýsir hann því hvernig
hann komst með Biblíur inn í lokuð lönd
kommúnista. Hann kallar sig bróður Andrés.
Bróðir Andrés
Maðurinn er reyndar Hollendingur og heitir réttu
nafni A Van der Bill. Fyrir hálfum fjórða áratug
stofnaði hann kristilegu trúboðssamtökin „Opnar
dyr“ (OD) og hóf að nefna sig bróður Andrés. í
starfi sínu hefur hann viljað sýna og sanna að eng-
inn megi setja lög til að stöðva útbreiðslu Biblíunnar
og boðskap hennar og að sá kristinn maður, sem er
viss um köllun sína, geti reitt sig á að dyr muni
opnast honum.
Þegar hann samdi bókina Smyglari Guðs barst
orðstír hans um víða veröld. Bókin kom út fyrst
1968 en hefur síðan verið þýdd á mörg tungumál,
m.a. íslensku. Þar eru sérstæðar frásögur af því
hvernig honum tekst að komast með Biblíur inn í
komúnistalöndin.
Nú er járntjaldið horfið að mestu í Austur-Evrópu
og þarf ekki lengur að smygla þangað Biblíum. En
kommúnistar eru enn við völd í Kína. Þar heldur
Andrés áfram að starfa.
- Starfheilags anda í Kína nú um stundir er
einstætt í allri sögu kristinnar kirkju. Kristnum
mönnum hefur stórfjölgað þráttfyrir eflingu
kommúnismans alltfrá árinu 1949.
- Samtökum okkar tókst að smygla inn í Kína 200
þúsund Biblíum og 300 þúsund eintökum af öðrum
kristilegum ritum árið 1993, segir bróðir Andrés. -
Þrátt fyrir bann kínverskra yfirvalda halda
starfsmenn OD oft námskeið í Kína til þess að
styrkja og þjálfa kínverska prédikara og leiðtoga
safnaða.
Andrés lítur svo á að kristnir menn eigi að leggja
mikið á sig fyrir Kína. Þar á margt fólk heima og
Guð úthellir anda sínum til frelsunar rneðal Kín-
verja. - Starf heilags anda í Kína nú um stundir er
einstætt í allri sögu kristinnar kirkju. Kristnum
mönnum hefur stórfjölgað þrátt fyrir eflingu
kommúnismans alltfráárinu 1949.
Eitt helsta verkefni OD í Kína um þessar mundir
er að dreifa gífurlegum fjölda eintaka af biblíu-
sögum handa börnum. í landinu eru a.m.k. 400
milljónir barna yngri en 17 ára. Bókum, sem dreift
var í upphafi í tilraunask^ni, var afar vel tekið.
Andrés álítur að miklar breytingar verði í Kína
áður en langt um líður. Bambusteppið hefur ekki
enn verið dregið frá en hann telur að að því komi og
fólkið verði leyst undan pólitískri kúgun. Eins og
sakir standa eru kristnir leiðtogar oft teknir höndum
og dæmdir fyrir ólöglegt athæfi.
Annað helsta verkefni OD er að leiða múslíma til
trúar á Jesú Krist.
- Það hefur ekki farið fram hjá leiðtogum
múslíma að kommúnistar hafa inisst tökin og einnig
að Vesturlandabúar hafa glatað andlegunt og
siðferðilegum gildum. Framámenn meðal
múhameðstrúarmanna koma því til skjalanna og
bjóðast til að fylla tómarúmið. Menn leita að ein-
hverju sem þeir geti trúað á og beina spurningum
sínum til islams.
Andrés bendir á vaxandi áhrif múslíma í heim-
inum og hvetur kristna menn til að gefa í alvöru
gaum að kristniboðsskipun Jesú.
- Fréttum af öfgafullum múslímum á eftir að
fjölga. Þeir óttast ekki dauðann. Sá sem lætur lífið í
jihad, heilögu stríði, fer rakleiðis til himins. Við
eigum að koma fram við þá í anda kærleika og
friðþægingar Jesú. Það er eina rétta leiðin.
Rödd Andrésar verður mild þegar hann talar urn
kristniboð meðal múhameðstrúarmanna. Hann varar
kristna menn við að sýna fjandskap í garð einstakl-
inga, hópa eða þjóða meðal múslíma. - Ef við
umgöngumst þá ekki með kærleika getur Guð ekki
notað okkur, segir hann.
Mikil áhersla er lögð á bænina í starfi OD.
Samtökin hófu árið 1984 átta ára bænabaráttu fyrir
kommúnistaríkjunum. Baráttunni var varla lokið
20