Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1995, Blaðsíða 11

Bjarmi - 01.03.1995, Blaðsíða 11
MENNING sem myndin segir, er hugljúf saga um samband og ást tveggja einstaklinga er hún líka saga um þján- ingu og ótímabæran dauða. Það vekur því athygli hve illa er unnið úr þessurn þætti í þeim brotum úr fyrirlestrum C. S. Lewis sem sýnd eru í kvikmynd- inni. Nánast sömu orðin eru endurtekin aftur og aftur, lausnirnar eru tiltölulega einfaldar og svo er látið líta út sem áheyrendur hans hafi aðallega verið miðaldra konur. Þessi framsetning vekur enn frekari undrun þegar haft er í huga að C.S. Lewis skrifaði athyglisverða bók um vandamál þjáningarinnar („The Problem of Pain“) árið 1940 og hefur hún, eins og margar bóka hans, verið gefín út í mörgum upplögum. Brot úr umsögn í Times gefur til kynna að þar er ekki á ferð yfirborðsleg eða grunnhyggin umfjöllun: „The Problem of Pain er skrifuð af glöggskyggni og krafti og byggir á mikilli þekkingu og reynslu.“ Þá fjallar hann einnig um þjáninguna og sorgina í bókum og bréfum sem hann skrifar eftir að Joy Gresham deyr og gefa þau skrif tilefni til nánari úrvinnslu en raun ber vitni. Sem dæmi má nefna bókina Þegar ástvinur deyr („A Grief Observed") sem bókaútgáfan Bros gaf út árið 1987 í íslenskri þýðingu sr. Gunnars Björnssonar. Hagræbing á raunveruleikanum Það er augljóst að ýmsu er hagrætt í kvikmyndinni Shadowlands í þágu hrífandi sögu. Dæini um slíkt er hópurinn sem C. S. Lewis umgengst helst í Ox- ford. í umfjöllun um kvikmyndina lýsir Morgun- blaðið því svo að hann hafi lifað „hamingjusamur í hálfgerðri einangrun lífi sem stjórnaðist af hörku vitsmunalegra hefða og samneytis sem er nánast eingöngu við starfsbræður hans í Oxford. Enginn þeirra er jafnoki hans, og þeir reyna hvað þeir geta til að misbjóða ekki einkalífi hans. Sannleikurinn er sá að enginn þeirra þekkir hann í raun og veru.“ Þessi lýsing á vel við þá mynd sem dregin er upp af C. S. Lewis og vinahópi hans í kvikntynd Atten- borougs. En hæpið er að hún eigi við raunveru- leikann. Það kemur t.d. hvergi fram í myndinni að góður vinahópur hans, sem kallaði sig „The Inklings“, kom saman tvisvar í viku til að rökræða ýmis mál og til að lesa hver fyrir annan það sem þeir voru að skrifa. í þeini hópi voru meðal annarra góður vinur hans til margra ára, prófessor J. R. R Tolkien, sem samdi Hobbit og Hringadróttinssögu („The Lord of the Rings") og Lewis tileinkaði bók sína Með kveðju frá Kölska, og dulspekingurinn Owen Barfield sem Lewis átti oft langar rökræður við. Myndin, sem sýnd er af C. S. Lewis sem fyrir- lesara, er einng einfölduð. Minna má á að hann hélt fjölda fyrirlestra um margvísleg efni fyrir ólíka þjóðfélagshópa. Hann flutti einnig mörg erindi í útvarp sem gefin voru út í þrem bókum. Tvær þeirra voru þýddar af Andrési Björnssyni fyrrum útvarpsstjóra og gefnar út af Bókagerð- inni Lilju skömmu fyrir miðja öldina, Rétt og rangt („Broadcast Talks") 1946 og Guð og menn („Beyond Person- ality“) 1947. Loks má geta þess að Joy Gresham átti tvo syni af fyrra hjónabandi en ekki einn eins og myndin gefur í skyn og þegar hún og Lewis fóru saman í ferðalag skömmu áður en krabbamein hennar lagði til lokaatlögu þá fóru þau ekki í afskekktan dal á Englandi heldur til Grikklands en menning þess heillaði þau bæði. Lokaorb Þrátt fyrir það sem hér hefur verið sagt ber að fagna því að virtur kvikmyndaleikstjóri skuli hafa tekið sér fyrir hendur að kvikmynda brot úr ævi þess merka manns sem C. S. Lewis var. Sagan, sem kvikmyndir segir, er hrífandi og vekur til umhugs- unar um ást, þjáningu og trú. En myndin af Lewis er e.t.v. það takmörkuð og ósannfærandi að of lítið sitji eftir hjá áhorfendum þegar frá líður. Hitt væri þó óskandi að kvikmyndin næði að vekja áhuga íslendinga á honum sem rithöfundi þannig að þeir kynntu sér bækur hans og sá kristni boðskapur, sem hvarvetna blasir við í þeim, næði eyrum þeirra. Látum C. S. Lewis eiga síðasta orðið: „Ef kristin- dómurinn væri einhver tilbúningur úr okkur, gætum við auðvitað gert hann einfaldari. En það er hann ekki. Um einfaldleika getum við ekki keppt við fólk, sem er að finna upp trúarbrögð. Hvernig ættum við að geta það? Við erurn að glírna við staðreyndir. Þeir, sem þurfa ekki að hirða um neinar staðreyndir, geta auðvitað gert mál sitt einfalt" (Guð og menn, bls. 24-25). GJG í aðalhlutverkum eru engir aukvisar í kvikmyndaleik, m.a. Antony Hopkins, sem er þekktur fyrir leik sinn í Lömbin þagna, Howards End og Dreggjar dagsins. 11

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.