Bjarmi - 01.03.1995, Síða 10
MENNING
C. S. Lewis við
skrifborð sitt í
Cambridge fyrir u.þ.b.
50 árum.
varpinu BBC árið 1985. Nokkrum árum síðar
umskrifaði hann það fyrir leikhús og loks sem
kvikmyndahandrit.
Sögusviðið er Oxfordháskóli árið 1952 þar sem
C. S. Lewis er kennari í ensku og enskum bók-
menntum við Magdalen College. Hann er
piparsveinn og býr með bróður sínum. Hann lifir
fremur einangruðu
lífi og á fyrst og
fremst samneyti við
starfsbræður sína í
Oxford. Myndin
sýnir síðan hvaða
áhrif það hefur
þegar bandaríska
skáldkonan og rit-
höfundurinn Joy
Gresham kemur inn
í líf hans.
Myndin segir
fallega og grípandi sögu um nauðsyn þess að elska
og vera elskaður þrátt fyrir að það leiði til sársauka
og sorgar þegar sá sem maður elskar er tekinn burt.
Þá hefur Attenboroug tekist að gera mynd sem sýnir
ástarsamband miðaldra fólks á þann hátt að fólk
hrífst með. Hún segir frá tveim manneskjum sem
fundu ástina hvor á sinn hátt uns dauðinn skildi að.
Það er því full ástæða til að hvetja fólk, sem vill sjá
hrífandi og vandaða kvikmynd, til að fara í bíó og
sjá „Shadowlands“.
Raunveruleikinn
Þrátt fyrir að um sé að ræða fallega og vel gerða
mynd hefur hún sína galla. I auglýsingum er sagt að
hún byggi á sannsögulegum atburðum en myndin
Það er því galli á annars vandaðri mynd
Richards Attenboroughs að sitja eftír með
þá tilfinningu eftir að hafa séð myndina að
C. S. Lewis hafi verið einangraður maður
ár sambandi við raunveruleikann og að
hann hafi búið yfir einföldum svörum við
flóknum gátum lífsins.
sem dregin er upp af C. S. Lewis getur varla talist
nógu sannfærandi og ljóst er að handritshöfundur
hagræðir ýmsu. Nú má að vísu segja að ætlunin sé
að fjalla um mjög afmarkað svið eða tímabil í lífi
þess fólks sem þarna á í hiut og vissulega er slík
afmörkun eðlileg í bókmenntum eða kvikmynda-
gerð. En það verður að gera þá kröfu að myndin,
sem dregin er upp, sé heiðarleg og sönn þegar því er
haldið á lofti að hún byggi á sannsögulegum
atburðum.
C. S. Lewis (1898—1963) var kunnur og virtur
fræðimaður á sínu sviði. Hann lauk glæsilegu prófi
frá háskólanum í Oxford og var orðinn kennari þar
aðeins 27 ára gamall og gegndi þeirri stöðu frá árinu
1925 til 1954. Eftir það gegndi hann prófessors-
stöðu við Cambridgeháskóla.
A námsárum sínum hafði hann orðið fráhverfur
kristinni trú eins og fleiri jafnaldrar hans. En hann
lét sér ekki nægja að fylgjast með straumnum. Hann
vildi kanna alla málavöxtu af heiðarleika og reyna
að átta sig á hvar hann stóð. Hann vildi skilja rökin
fyrir og afleiðingarnar af lífsviðhorfi sínu og jafn-
framt hvað kristnir menn hefðu til síns máls. Það
leiddi til þess að hann sannfærðist um sannleiksgildi
kristinnar trúar.
I formála bókarinnar Með kveðju frá Kölska
(„Screwtape letters“ frá árinu 1942), sem Bóka-
útgáfan Salt hf. gaf út í þýðingu sr. Gunnars Björns-
sonar, kemst dr. Sigurbjörn Einarsson biskup svo að
orði um C. S. Lewis:
*
„Trúin frjóvgaði frábæra hæfileika hans. Hann var
ritsnillingur að upplagi og segir sú gáfa til sín í öllu,
sem hann skrifaði, en eins og fyrr segir var hann
meðal þekktustu fræðimanna á sviði bókmennta og
liggur mikið eftir hann í þeirri grein. En nú tók hann
að semja erindi og bækur um kristin efni, þar sem
hann af miklu mannviti, þekkingu og fimi skýrði og
kenndi, jafnvígur í sókn og vörn. Honum varð að
ósk sinni að koma öðrum til þess að hugsa, bæði
kristnum og ókristnum, og enn munu margir njóta
hans íþvíefni."
Þetta eru orð að sönnu og lýsa vel snilligáfu hans.
Sá fjöldi bóka og erinda, sem eftir hann liggja, sýna
einnig vel yfirburði hans og hve víða hann kom við.
Það er því galli á annars vandaðri mynd Richards
Attenboroughs að sitja eftir með þá tilfinningu eftir
að hafa séð myndina að C. S. Lewis hafi verið
einangraður maður úr sambandi við raunveru-
leikann og að hann hafi búið yfir einföldum svörum
við flóknum gátum lífsins.
Gott dæmi um það er hvernig tekið er á spurning-
unni um þjáninguna í myndinni. Um leið og sagan,
10