Bjarmi - 01.03.1995, Síða 13
ÚTVARP
þáttunum. Margir vina minna hlusta einnig á þá
þætti.“
Ovissa um hlustun
Utsending kristilegra þátta til Kína hófst árið 1969
meðan á menningarbyltingunni stóð. í upphafi fékk
NOREA kristniboðana Agnar Espegren og Peder
Tpnnessen til að tala og syngja í þessum þáttum en
fljótlega voru kínverskir prestar á Taiwan kallaðir til
liðs í þessum nýju útvarpsþáttum.
Það var síðan árið 1974 að starfið tók nýja stefnu.
Þá var presturinn Ho Fook-Tin beðinn um að fram-
leiða þætti í Hong Kong. Þátturinn „Hinn góði
samferðamaður“ var evangelískur þáttur með skýrri
boðun og hlaut injög góðar undirtektir. Reyndar
vissu menn ekki hversu vel honum var tekið fyrr en
allmörgum árum síðar er útlendingar máttu heim-
sækja Kína og hlustendabréf fóru að berast.
Miklar vakningar
- Eg er sannfærður um að þetta útvarpsstarf hefur
meiri þýðingu en við gerum okkur grein fyrir. Ég
hef aldrei áður verið jafnsannfærður um að það sé
rétt stefna hjá NOREA að vinna að kínversku þátt-
unum. A seinustu árum hafa miklar vakningar verið
í Kína og margir orðið kristnir. Opinberlega er talað
um 63 milljónir kristinna manna í þessu mikla ríki.
Margir telja að sú tala sé of lág. Enn aðrir segja að
ekki séu svo margir kristnir Kínverjar. [í Bjarma nr.
8 1994 er talað um 30 milljón evangelíska kristna
menn í Kína og 9,2 milljónir manna sem opin-
berlega er viðurkennt að séu í Þrjú sjálf hreyfing-
unni. Astæða þessa mikla munar á fjölda er óljós.
Vitað er að mismunandi er hverjir eru taldir með í
könnunum. Stundum eru hvítasunnumenn ekki
taldir með, kaþólskir eru meðtaldir í sumum könn-
unum o.s.frv. Einnig er það vitað að þó yfirvöld tali
um 9,2 milljónir manna í Þrjú sjálf hreyfingunni
viðurkenna þau að mun fleiri kristnir menn séu í
landinu í ólöglegum neðanjarðarkirkjum.]
Yfirvöld í Kína leyfa eingöngu samkomur og
guðsþjónustur í húsnæði sem þau hafa viðurkennt.
En fjöldi heimilissafnaða er í landinu og koma þeir
saman á leynilegum stöðum. Oftar en ekki leiðir
þetta til þess að kristnir menn eru fangelsaðir.
Skortur á lei&togum
- En ríki Guðs vex í Kína, segir Gabriel Edland með
sannfæringarkrafti. - Þrátt fyrir erfiðleika. Einnig er
það ljóst að þegar vöxturinn í kirkjunni er svo mikill
er aukin þörf á eftirstarfi og mikilvægt að geta fylgt
eftir því sem ávinnst. Það er því skortur á
Utsendingartími til Kína hefur verið aukinn og
fjölskylduþátturinn „Tíminn okkar“.
leiðtogum. Hér koma einstakir eiginleikar útvarps-
ins í ljós. Það heyrist hvar sem er. Með aðstoð
útvarpstækninnar er hægt að veita hinuni kristnu
leiðtogafræðslu og þannig byggja upp einstaklinga
til að taka á sig ábyrgð í kristnu söfnuðunum í
landinu sem enn er lokað hefðbundnu kristniboði.
Útsendingartími til Kína hefur verið aukinn og
eru nú sendir út nokkrir mismunandi þættir, m.a.
barnaþátturinn „Poppkorn“ og fjölskylduþátturinn
„Tíminn okkar“. Kínverjar hlusta mikið á útvarp -
möguleikarnir eru því miklir. Útvarpað er á tveim
rásum samtímis og eru skilyrði til hlustunar víðast
hvar góð.
Norea blaðið nr. 6/1994
„Ég hlusta oft á Jesú-þættina," sagði maðurinn í Nanyang.
13
L