Bjarmi - 01.03.1995, Qupperneq 18
AÐ UTAN
Þó svo aö kommúnisminn sé kúgunarstefna voru haldnar ýmsar „hátíöir" í valdatíð þeirra í Eþíópíu, þar sem annars staðar.
Alkunna er að forkólfarnir skylda fólkið til þátttöku. Myndin er frá Konsó.
Skuldaskil í Eþíópíu
Kommúnistar leiddir fyrir rétt
Nú eru hafin réttarhöld í Addis Abeba,
höfuðborg Eþíópíu, yfír einræðisherranum
og kommúnistanum Mengistú Haile
Mariam og félögum hans sem drottnuðu
yfir landsmönnum með harðri hendi um
árabil. Málaferlin hófust 13. desember sl. og er sagt
að þau verði mestu stríðsglæparéttarhöld frá því
dæmt var í málum nasista í Niirnberg um árið.
Ákæruefnin eru „þjóðarmorð“ og „glæpir gegn
mannkyninu".
Liðið er á fjórða ár frá því Mengistú var hrakinn
frá völdum eftir 17 blóðug ár kommúnista. Hann var
einráður í 14 ár. Víða um heim munu menn fylgjast
með eftirvæntingu með réttarhöldunum og er talið
að þau verði til viðmiðunar þegar farið verður niður
í kjölinn í svipuðum málum í Rúanda og fyrrverandi
Júgóslavíu.
Sextíu og sex félagar í herstjórninni - hún var
kölluð derg - voru ákærðir í Addis Abeba. Af þeim
eru 45 í fangelsi en 21 verður dæmdur að honum
fjarverandi.
Nú liggur vel á mér
Mengistú sjálfur er meðal þeirra sem getur fylgst
með réttarhöldunum úr fjarlægð og án þess að þurfa
að óttast um líf sitt. Hann hefur síðustu þrjú til
fjögur árin lifað áhyggjulausu lífi í einbýlishúsi í
hverfinu Gun Hill í Harare, höfuðborg Simbabve,
umkringdur vinum og tignu fólki.
Forseti Simbabve, fornvinur hans og pólitískur
samherji, Róbert Múgabe, hefur hafnað sérhverri
beiðni urn að Mengistú yrði framseldur og þeir sem
þekkja til í stjórnmálum telja öll tormerki á því að
honum verði haggað. Ein ástæðan er sú að Mengistú
lagði Múgabe lið í frelsisstríði Simbabve.
18