Bjarmi - 01.03.1995, Qupperneq 25
starfa þar. Tensing-starfið okkar er nú rúmlega
10 ára gamalt og líklegast sá liður starfsins sem
hefur skilað mestum árangri fyrir okkur sem
kristilegt æskulýðsfélag. Kaffistofan okkar,
Benedicts Cafe Bar, er mikið notuð og vinsæll
staður þar sem unga fólkið hittist.
Hvað viltu svo segja að lokum við okkur
Islendinga?
- Mig langar að þakka Guði fyrir það
fjölþætta starf sem KFUM vinnur, bæði í
Sheffield, hér á Islandi og úti um allan heim.
Eg bið þess að við mættu halda fast við
kjarnann, Jesú Krist, og á sama tíma sækja út til
annarra og veita þeim þá umhyggju, stuðning
og hjálp sem þeir eru í þörf fyrir á hverjum
tíma. Ég þakka fyrir þá fjölmörgu í Sheffield
sem hafa komist til trúar fyrir starf KFUM þar
og ég er ekki í vafa um að þeir eru margir hér á
íslandi sem hafa KFUM mikið að þakka. Mér
sýnist starfið hér vera á réttri braut. Mjög
ánægjulegt var að vera með unga fólkinu í KSS
á laugardagskvöldinu og eins á fjölskyldu-
samkomunni á sunnudag. Blessun Guðs er yfir
starfinu sem ég trú að eigi eftir að vaxa og
eflast á næstu mánuðum og árum.
KFUK og KFUM í Reykjavík eru rík félög
með fjölda fólks sem tekur trú sína alvarlega,
býr yfir mikilli þekkingu og tekur gestum frá
öðrum löndum rnjög vel. Þau sem ég hef
kynnst eru opin gagnvart Guði og mér fannst
mjög ánægjulegt að kynnast þeim vísi að starfi
sem er í húsinu ykkar niðri í Austurstræti. Þið
hafið óteljandi tækifæri sem ég hvet ykkur til
að nota.
R.G.