Bjarmi - 01.03.1995, Qupperneq 27
Ráöstefna
Samhliða samkomuátakinu standa samtök Billy
Graham fyrir ráðstefnu sem ætluð er leiðtogum
og starfsmönnum í kristilegu starfi. Á sama hátt
og áður verða ráðstefnugestir tengdir við Púertó
Ríkó með aðstoð gervihnatta.
Meginviðfangsefni ráðstefnunnar er BOÐ-
BERINN, BOÐSKAPURINN OG BOÐLEIÐIN.
Boðberinn, starfsmaður Krists. Boðskapurinn,
hjálpræðið sem fellur okkur í skaut fyrir Jesú
Krist. Boðleiðirnar er gilda nú og í upphafi 21.
aldar.
Ráðstefnan er miðuð við alla leiðtoga og
starfsmenn í kristilegu starfi. Á það jafnt við um
presta, safnaðarleiðtoga, leiðbeinendur í sunnu-
dagaskólum og starfsmenn í kristilegum sumar-
búðum svo einhver dæmi séu tekin.
Ráðstefnan fer fram í aðalstöðvum KFUM og
KFUK, Holtavegi 28, Reykjavík, dagana 16. -
18. mars kl. 9:00 - 16:00. Ráðstefnugjald er kr.
3.000,- og er innifalið í því matur, kaffi og
ráðstefnugögn.
Ráðstefnan fer fram í aðalstöðvum KFUM og
KFUK við Holtaveg.
Skráning fer m.a. fram hjá Fræðsludeild kirkj-
unnar í síma 562 1500 og Biblíuskólanum við
Holtaveg í síma 588 8899.
Eins og fyrr segir var efnt til svipaðs átaks
vorið 1993 en þá var engin ráðstefna, auk þess
sem það náði aðeins til Evrópu. Hér á landi varð
mikill árangur af þeim samkomum. Margir
játuðust Kristi en aðrir endurnýjuðust í sam-
félaginu við hann. Ohætt er að fullyrða að sam-
komurnar hafi orðið til blessunar, bæði þeim sem
á samkomunum lýstu vilja sínum til að helga líf
sitt Kristi og hinum sem buðu með sér gestum
eða lögðu sitt af mörkum við ráðgjöf og fyrir-
bæn.
Kristilegt stúdentafélug
AF VETTVANGI
Tvenns konar
sömvcrastundir
Það var í kjölfar kristilegs stúdentamóts í
Vindáshlíð sl. haust að Kristilegt
stúdentafélag (KSF) fór að láta meira að sér
kveða en undanfarin ár. Bjarmi leitaði
fregna af starfi félagsins það sem af er vetri
og í ljós kom að aðal-
áherslan er á tvennum víg-
stöðvum. Annars vegar
eru fundir tengdir Háskóla
Islands til þess að kynna
félagið háskólanemum og
á þá er gjarnan boðið
mönnum úr ýmsum þjóð-
félagsstöðum. Hins vegar
eru fundir í KFUM og
KFUK-húsinu við Holtaveg og hafa þeir einkum
höfðað til þeirra elstu sem mætt hafa á KSS-fundi
og eins nokkurra sem áður sóttu NÝ-UNG.
Um háskólasamverurnar er það helst að segja að
þar hafa ýmis málefni verið á dagskrá og hafa þær
tekist vel að mati þeirra sem þær hafa sótt en
þáttlakendur hefðu að ósekju mátt vera fleiri.
Samverustundirnar á Holtavegi eru
haldnar á föstudagskvöldum kl. 20:30. Um
það bil 20 manna kjarni hefur myndast um
þær og hafa þær verið með fræðslu- og
umræðuformi. Lögð er áhersla á eigin hugs-
un þátttakenda og leiðir til að taka afstöðu.
Samverurnar hafa því fram að þessu verið
nokkuð óformlegar en að sögn aðstandenda
þeirra er form óformleikans breytilegt og því
alltaf rúm fyrir nýjar hugmyndir í leit að
betri samverustundum Guði til dýrðar og
fólki til uppbyggingar og blessunar.
Bjarmi óskar KSF góðs gengis bæði í starfinu í
Háskólanum og á Holtavegi og hvetur lesendur
blaðsins til að setja starf telagsins á bænalistann
Frá KSFfundi.
- ■
Bjarni Randver
Sigurvinsson
guðfræðinemi á fundi
KSF á Holtavegi.
27
smn.