Bjarmi - 01.12.1996, Qupperneq 20
KRISTNIBOÐ
Benedikt Arnkelsson
Konan með
armhringina
Frásaga af kristniboðsakrinum þar sem íslendingar starfa
Jesús Kristur heitir lærisveinum sínum lífi í fullri
gnægð. Það er hluti þessa nægtalífs að mega taka
þátt í því stórfenglega verkefni að breiða ríki
hans út um heiminn. Kristnir menn losna við
tómleikann sem hrjáir margan nútímamanninn.
Lífið verður nýtt við þá hugsun að fá að vera með í sigur-
för Jesú meðal mannanna. Þess vegna segja kristniboðar
og kristniboðsvinir: Kristniboðið er ekki byrði heldur
blessun.
Benedikt Arnkelsson er
starfsmaöur Sambands
íslenskra
kristiboösfélaga.
Menn sem vitna
Fréttir um heiðingja, sem snúa sér af alhug til Jesú, vekja
sífellt gleði. Söfnuðirnir úti á
kristniboðsakrinum, þar sem
íslendingar eru að verki, vaxa stöð-
ugt. Dæmi: Tuttugu þúsund manns
bættust við í lúthersku kirkjunni í
Eþíópíu árið 1995. Og margir
Eþíópar eru fúsir að bera vitni um
trú sína.
Ég átti þess kost að ferðast til
Eþíópíu á liðnu sumri og heimsækja
íslensku kristniboðana. Þegar ég var
í Gídole komst ég til dæmis að þvi
að ungir, kristnir Gídolemenn
áformuðu að „húsvitja“ 1 grennd við
kristniboðsstöðina og vitna fyrir fólki sem hefur ekki
snúið sér til Jesú Krists þrátt fyrir nábýlið við stöðina. Á
sama hátt hugsa söfnuðirnir til þjóðflokka sem enn sitja í
myrkri heiðninnar. Lútherska kirkjan gerir ráðstafanir til
að flytja þeim fagnaðarerindið. Og hún vill njóta liðveislu,
þekkingar og reynslu kristniboðanna þegar hafist er handa
á nýjum stöðum. Meðal þessara heiðnu þjóðflokka eru
Dasenetsjmenn sem byggja svæði í Suðvestur-Eþíópíu, í
Ómórate og raunar alveg suður fyrir landamæri Kenýu.
Ég naut þeirrar gleði að komast þangað suður eftir í sumar.
Leiðin er löng frá Addis Abeba, líklega um þúsund kíló-
metrar, og vegimir ekki beinlínis hraðbrautir heldur jafn-
vel sundurskornir eftir vatnsflóð á regntíma. Ríkissjóður
Eþíópíu er engan veginn nógu gildur til að bæta úr öllum
þörfum 50 milljón manna þjóðar sem er að rétta úr
kútnum. Vegakerfið ber þess merki.
Hvert sem litið er blasa við akrar eða einhvers konar
trjágróður, allt upp á hæstu fjallatinda. Margvíslegir fuglar
skjótast á milli greinanna og sums staðar teygja
hvítmaurshraukarnir sig hátt upp í loftið, jafnvel tveggja
mannhæða háir, en þar inni flatmagar myndarleg
mauradrottning og verpir 30 eggjum á mínútu og hefur
herskara af þjónum og þernum til að snyrta sig og
snurfusa og sinna væntanlegum afkvæmum.
Guð er óþekktur.
Við höfum þegar heyrt ýmislegt um Dasenetsjþjóð-
flokkinn enda hefur verið starfað hjá honum um nokkurt
skeið og fáein hús hafa risið á starfstöðinni. Birna G.
Jónsdóttir og Guðlaugur Gíslason dvöldust þar 1 hálft ár
og eiga hugsanlega eftir að fara þangað aftur.
Þeg arfœðing er í vœndum er stráð
kaffi, salti og tóbaki kringum
hlóðirnar í kofanum til aðfœla
andana í burtu. Tvíburafœðing
vehur ótta. Einungis annar
tvíburinnfœr að lifa.
20