Bjarmi - 01.12.1996, Page 25
orðið vinir konungs allra konunga, hans sem
mestur allra. Svo spennandi boðskap höfum við
ekki leyfi til að gera leiðilegan, segir Kari Vinje.
- Hvernig ferð þú að því að miðla svo erfiðu
efni eins og dauða og endurkomu Jesú til bama?
- Sumu kem ég til skila fyrir munn frú Finkel-
topp. Sumt skapast í hugarheimi Palla þegar hann
sér hlutina fyrir sér. Konungurinn, sem kemur á
hvítum hesti í rauðri skikkju með gullslegið
sverð, er t.d. mynd sem er upprunnin í Opin-
berun Jóhannesar. Þetta fellur vel að hugarflugi
lítils drengs eins og hann ímyndar sér þetta.
Fagnaðarerindið er um dauða Jesú og ég segi
börnum líka frá því - varfæmislega. Auðvitað vill
Jesús að við séum góð hvert við annað og hjálp-
um hvert öðru. En það er ekki nóg. Pað er dauði
Jesú sem frelsar okkur. Við getum ekki boðað
fagnaðarerindi án hans! segir hún.
- Barnabækurnar þínar ná einnig til fullorð-
inna?
- Það vona ég! segir hún brosandi. - Fjögurra
ára barn getur ekki lesið sjálft. Það era þeir full-
orðnu sem verða að lesa fyrir það og á þann hátt
fá þeir einnig að kynnast fagnaðarerindinu.
Margir fullorðnir vita ekki hvers vegna Jesús
dó. Fullorðið fólk heldur oft að kristin trú
sé að maðurinn þurfi að gera eitthvað. Því
fleiri góðverk, því nær himnaríki. Mér
var það mikill léttir þegar ég uppgvötaði
frelsið 1 fagnaðarerindinu. Jesús lifði
réttlátu lífi fyrir mig. Það eina sem ég
þurfti að gera var að hleypa honum
að i lifi minu í stað þess að telja upp
allt það góða sem ég hafði gert. Ég
þurfti ekki lengur að standa mig
sjálf, segir Kari Vinje.
Hún fær mörg bréf frá
bömum og fullorðnum. Sumir
skrifa og segja frá því hvemig
þeir kynntust Jesú fyrir
lestur bóka hennar og
eignuðust trú á hann.
Þetta yljar henni um
hjartarætur og það
heyrist á málrómi
hennar hve henni
þykir vænt um
þetta.
- Þetta er eiginlega
sérkennilegt, hugsar hún upphátt. - Ég
sem bók og sendi út í heim og þar lifir hún sínu
lífi. Við og við frétti ég að bækurnar mínar hafi
Eitt sinnfékk ég
bréffrá konu srn
fifl/ði setið við
dánarbeð barn s og
lesið Víð Guð erum
vinir. Súbókfjallar
m.a. um dauðann,
eilífðina og himin-
inn. Húnsagðiað
barnið hefðifundið
til öryggis sem hefði
hjálpað því á
dauðastundinni.
VIÐTAL
ávöxt. Ég fæ oft bréf frá foreldrum, skólabörnum
og fleirum. Bæði unglingar og foreldrar segjast
hafa eignast trú eftir að hafa lesið bækurnar mínar.
Það gleður mig mjög. Eitt sinn fékk ég bréf frá
konu sem hafði setið við dánarbeð barns og lesið
Við Guð erum vinir. Sú bók fjallar m.a. um
dauðann, eilífðina og himininn. Hún sagði að
barnið hefði fundið til öryggis sem hefði hjálpað
því á dauðastundinni.
Það er mikil barátta að skrifa, segir hún. - Það
er ekki auðvelt en ég á fyrirbiðjendur sem ég sný
mér til þegar ekkert miðar áfram. Ég verð einnig
að vera sátt við menn, verð að hafa gert upp ef
eitthvað hefur komið fyrir. Ég verð að biðja
fyrirgefningar ef ég hef komið illa fram við ein-
hvern. Aðeins þannig get ég skrifað. Á skrifstofu
minni hef ég rúm svo að ég get farið framúr á
nóttunni án þess að trufla aðra ef ég þarf að skrifa.
Oft koma orðin á nóttunni.
Ég á skriftartímabil og hvíldartíma. Þegar ég
skrifa lifi ég 1 bókinni, sef lítið og geng framhjá
vinum án þess að sjá þá. - Nú er Kari að skrifa,
því hún sá okkur ekki, segja vinir mínir. Á þessu
tímabili get ég gengið inn í járnvöruverslun til að
kaupa tvinna, segir hún hlæjandi og viðurkennir
að hún gangi með hugmynd að nýrri bók.
- Mörg börn eiga ósýnilegan, ímyndaðan vin en
þessi ósýnilegi vinur, sem ég fjalla um, er
raunverulegur. Hann er ekki bara
imyndun! segir Kari
Vinje. - Mig
langar að vekja
meiri áhuga hjá
börnum og
fullorðnum á Jesú,
að einhver fari að
hugsa: Ég ætla að
athuga hvort þetta
standi svona í Biblíunni.
Eða að þau segi eins og
Palli Pimpen: „Hvað getur
hann gert fleira? En spenn-
andi! Hvað getur hann gert
annað?“
H. D. Valen, Krigsropet.
Þórunn Elídóttir þýddi.
eigin
borið
25