Bjarmi - 01.12.1996, Qupperneq 26
MENNING OG LISTIR
GunnarJ. Gunnarsson
á kvikmyndaháttð?
Fáeinar hugsanir um Brimbrot
Ein þeirra mynda sem vakti hvað mesta athygli á kvikmyndahátíðinni í
Reykjavík í lok október sl. var myndin Brimbrot eða Breaking the Waves
eftir danska kvikmyndaleikstjórann Lars von Trier. Óhætt er að segja að þar
er á ferð afar sérstæð og nærgöngul mynd sem lætur engan ósnortinn og leitar
aftur og aftur á hugann.
Ung og saklaus
Sögusviðið er lítið, einangrað skoskt sjávarþorp á áttunda
áratugnum þar sem kirkja af meiði Kalvíns er ráðandi afl.
Karlarnir í öldungaráðinu fara með völdin og kærleikur
þeirra til lögmálsins er jafn-óhagganlegur og sannfæring
þeirra um að allt sem komi utanfrá hafi vandamál í för
með sér. Aðalpersóna myndarinnar er ung og saklaus
stúlka, Bess að nafni, sem Emily Watson leikur af hreinni
snilld. Lrátt fyrir aðvaranir öldungaráðsins giftist hún Jan,
verkamanni á olíuborpalli, sem Stellan Skarsgárd leikur.
Eftir brúðkaupið eiga þau saman hamingjuríkar stundir
en að lokum kemur að því að Jan þarf að halda á ný til
starfa á olíuborpallinum. Þá er eins og eitthvað ógnvæn-
legt liggi í loftinu.
Slysið
Bess á erfitt með að sjá á eftir Jan út á borpallinn. Og sökn-
uður hennar verður óbærilegur þrátt fyrir að konurnar í
fiskimannabænum hafi lært að bíða og sætta sig við hlut-
skipti sitt. En Bess er ekki ein. Hún fer í kirkjuna til að þrífa
og tala við Guð. Og Guð talar við hana með sömu ströngu
röddinni og presturinn. Endurspeglast þar hið strang-
kalvínska uppeldi. Að lokum þolir hún ekki biðina og
biður Guð að senda Jan heim. Henni verður að ósk sinni
og Jan kemur heim en lamaður eftir alvarlegt slys.
Hún lítur á þetta bænasvar sem sönnun þess að hún
geti haft áhrif á Guð en jafnframt að Guð krefjist mikilla
fóma til að uppfylla bænir hennar. Viðbrögð hennar em
þau að ef hún reyni að vera góð muni Guð bjarga hennar
heitt elskaða. Ef hún hiki ekki við að gera jafnvel það
hræðilegasta sem hún getur hugsað sér til að sýna kær-
leika sinn muni Jan batna. Jan telur henni trú um að hún
geti haldið honum á lífi með þvi að eiga i ástarsambönd-
um sem hún lýsi síðan fyrir honum. Þar með em örlög
hennar ráðin.
Trú, von og kærleikur
Brimbrot fjallar um marga þætti mann-
legrar tilvem og tilfinninga en þó fyrst og
fremst um trú, von og kærleika. Hún
fjallar um mátt trúarinnar til að frelsa og
kúga, um vonina um kraftaverkið ef öllu
er fórnað og um takmarkalausan kær-
leika og endimörk hans.
Bess er barnslega einlæg í trú sinni og
kærleika. Hún á erfitt með að skilja
hvemig menn geta bundið kærleika sinn
svo fast við orð og bókstaf eins og raunin
var í öldungaráði kirkjunnar. Ef til vill er
það vegna þess að hún er dálítið skrýtin
26