Bjarmi - 01.12.1996, Page 27
eða ekki alveg klár í kollinum eins og sagt er um hana.
Eða vegna þess að hún er svolítið öðruvísi í veröld þar
sem litir og sterkar tilfinningar hafa verið gerðar að synd
og þar sem menn telja sig ekki þurfa á kirkjuklukkum að
halda til að vegsama Guð. Bess er fordæmd og henni út-
skúfað en það sem hún skilur hins vegar betur en aðrir er
að það er einungis hægt að elska manneskjur og að kær-
leikurinn getur gert hið ómögulega mögulegt.
Óbærilega nærgöngul
Brimbrot vekur ótal spurningar. Er það sem Bess gerir til
að bjarga sínum heitt elskaða rétt eða rangt, sjúkt eða heil-
brigt, vont eða gott? Er hún veik og haldin sjúklegri
sektarkennd eða bara saklaus og góð? Myndin fylgir spurn-
ingunum vel eftir en gefur þó ekkert endanlegt svar. Þetta
kemur m.a. fram í kvikmyndatökunni. Allan tlmann er
haldið á tökuvélinni og persónunum fylgt eftir. Myndin er
því stöðugt á hreyfingu og áhorfandinn verður nánast eins
og þátttakandi. I einu vetfangi er myndatakan nálæg og
ágeng. Þannig afhjúpar hún tilfinningar Bess, sakleysi
hennar, gleði og sorg, sársauka og örvæntingu. í næstu
andrá er myndatakan fjarlæg og snýst að einhverju öðru.
Myndin er þannig nærgöngul við aðalpersónumar en um
leið gengur hún einnig svo nærri áhorfandanum að hann
þolir vart við.
Kristur í myndinni?
Hjá því verður ekki komist að leiða hugann að því hvernig
Kristur birtist í myndinni Brimbrot. Myndin segir sér-
stæða píslarsögu sem hefur áhorfandann algjörlega á valdi
sinu, tekur hann tilfinningatökum og skilur hann eftir
með óþægilegar spurningar og hugsanir. Um leið vísar
myndin til píslarsögu Krists. Bess, hin saklausa og góða,
gefur sig viðbjóði á vald og færir þá mestu fóm sem unnt
er að færa til að sá sem hún elskar fái lifað. Jesús Kristur
gengur af takmarkalausum kærleika sínum inn i kjör
syndugra manna og gefur sjálfan sig til að frelsa þá. „Þann
sem þekkti ekki synd, gjörði hann að synd vor vegna, til
þess að vér skyldum verða réttlæti Guðs í honum“ (2.
Kor. 5:21).
MENNING OG LISTIR
Ertu kominn
í jólaskap?
Nokkur orð umjóhlög og annan iðnað
Ertu kominn í jólaskap?
Þessa spurningu kannast flestir við. Hún bergmálar í eymnum mánuðinn
fyrir jól. Margir þurfa að finna ákveðna lykt, sjá tiltekinn hlut eða heyra
vissa tegund af tónlist til að komast í jólaskap. Aðrir bíða eftir jólamjöllinni.
„Oh, ég fer alltaf í svo mikið jólaskap þegar ég heyri þetta lag,“ eru
kunnugleg viðbrögð við jólaskapi. Hvers konar jólalög era þetta?
Skyld'ðað vera jólahjól?
Stefán „Snigill“ Hilmarsson hefur oft fengið að spyrja þessarar spumingar á
öldum ljósvakans. „Það verður rokkað út jólin,“ fullyrti annar. .Jólagjöfin er
ég og þú,“ sungu Halla og Eiki. Djordsj Mækol og Andijúv Ridglei kyrjuðu
angurvært um stúlkuna sem gaf þeim hjarta sitt í skíðaferðalaginu um síðustu
jól, líklega hefur það ævintýri hafist á kæruleysislegu hvísli líkt og önnur
ævintýri þeirra félaga í Whamdúettnum.
Þessi jólalög, sem eru svo vel til þess falin að orsaka jólaskap, eru oftar en
ekki „í léttari kantinum“ og fjalla um flest annað en kjarna jólanna. Mörg
laganna ala á ranghugmyndum og draga athyglina frá hinni sönnu jólagleði.
Þau fjalla um jólagjafir, allar nema þá einu sönnu, jólastuð og jóladaður.1
Hvernig stendur á því að við heyram svona mikið af hismi ár hvert?
Hjáguðinn Jól
Hjáguðinn Jól er dýrkaður einu sinni á ári, mánuð í senn. Hann á sér marga
fylgjendur, ekki síst í röðum kaupmanna og iðnaðarmanna hvort sem þeir
fást við framleiðslu matvæla, leikfanga, fatnaðar eða tónlistar. Hann gegnir
nafninu Mammón aðra mánuði ársins. Ef fylgjendur Jóls gæfu sig allir fram
og stofnuðu formlegan söfnuð ætti þjóðkirkjan undir högg að sækja,
(einkum mánuðinn fyrir jól).
Jesús, þú ert mitt jólaskap.
Enginn getur þjónað tveimur herrum (Matt. 6:24).
Svar kristinnar kirkju við lymskulegum árásurn hjáguðsins Jóls á jötu-
barnið felst í því að taka ekki þátt í leiknum en með fordæmi sínu benda á
hina sönnu jólagleði. Þeir mega ekki láta Jól henda sér homa á milli eða
fylla sálartetur sitt af áhyggjum.
Bamið í fjárhúsinu er vegurinn sannleikurinn og lífið 0óh.l4:6) og þess
vegna getur hver kristinn maður sungið, fullur sannfæringar og gleði:
,Jesús, þú ert mitt jólaskap."
H.E.M.
1 T.d. lagið „Last Christmas" með Whambræðram, „Nú á ég jólin með \>éf með Björgvini
Halldórssyni og Rut Reginalds. „Ég sá mömmu kyssa jólasvein" er erfiðara að fást við.