Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.06.1997, Side 4

Bjarmi - 01.06.1997, Side 4
Hver verður næsti biskup yfir íslandi?_________ Rætt við frambjóðendur um embættið, trúna og kirkjuna að þau gefi kost á sér til biskups- embættisins. Hver eru þau? Hvers vegna gefa þau kost á sér? Hvaða málum telja þau brýnast að vinna að ef þau hljóta kosningu? Hver eru viðhorf þeirra? Hvernig rækta þau trú sína? Rætt var við þau öll og lagðar fyrir þau sömu spumingar. Viðtölin fara hér á eftir. Þau eru unnin af þeim Guð- mundi Karli Brynjarssyni, Gunnari J. Gunnarssyni og Kjartani Jónssyni. Um áramót tekur nýr biskup við í íslensku þjóðkirkjunni. Kosningar fara fram í ágúst og Qórir prestar hafa gefið til kynna að þeir gefi kost á sér til embættisins. Það eru þau Auður Eir Vilhjámsdóttir, Gunnar Kristjánsson, Karl Sigurbjörnsson og Sigurður Sigurðarson. Þrátt fyrir að biskup sé ekki kosinn í almennum kosningum eru þeir margir sem velta biskupskosningunum fyrir sér. Spurt er spurninga á borð við hvert sé hlutverk biskups, hvaða hæfileikum hann þurfi helst að vera gæddur og hvaða málefnum sé mikilvægast að hann vinni brautargengi á komandi árum. í 1. tölublaði Bjarma á þessu ári var dálítið fjallað um stöðu biskups- embættisins og væntingar til þess og því m.a. haldið fram að það stæði að vissu leyti á tímamótum vegna breyttra þjóðfélagsaðstæðna. Hið sama má segja um þjóðkirkjuna sem slika, hún stendur á tímamótum nú þegar aldamót og þúsund ára kristnitöku- afmæli nálgast. Nýr biskup mun leiða ■ W kirkjuna inn í 21. öldina. Afhelgun og fjölhyggja og öld fjölmiðla og upplýsingatækni gerir nýjar kröfur til biskups þótt þau viðfangsefni og vandamál sem glímt er við í mann- lífinu séu sambærileg og fyrr. Biskupsembættið og biskupskjör er aftur í brennidepli í þessu tölublaði Bjarma. Að þessu sinni er athyglinni beint að þeim sem hafa lýst því yfir

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.