Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.1997, Síða 19

Bjarmi - 01.06.1997, Síða 19
mótaði fyrsta námskeiðið. En það eru fá ár síðan Alfa-námskeiðin urðu eins útbreidd og nú er. Árið 1992 voru aðeins haldin fimm námskeið en þá fór þeim að fjölga ört; ári seinna urðu þau 200. Um þetta leyti tók Nicky Gumbel við kennslunni hjá HTB. Á öðru námskeiðinu, sem hann hélt, kom upp sú óvænta staða að langflestir þátttakendurnir voru fólk sem fór ekki reglulega til kirkju og kom með margar erfiðar spurningar. En þrátt fyrir það bar námskeiðið árangur og allir gáfust Kristi á helgarmóti. Eftir þetta hefur verið lögð vinna í það að gera námskeiðin aðlaðandi fyrir fólk sem sækir ekki kirkju. Vinsældir þeirra stafa meðal annars af því að þau geta gagnast bæði byrjendum í trúnni og þeim sem eru á báðum áttum um kristna trú. Það andrúmsloft sem myndast á nám- skeiðunum, þar sem allir mega bera fram spurningar sínar, hefur líka mikið að segja. En væri ekki fróðlegt að kynna sér, hvers vegna fólk hefur farið á Alfa-nám- skeið? Bjarmi lagði þessa spumingu fyrir þrjá af þátttakendum síðasta námskeiðs og fylgja svör þeirra hér með til glöggvunar fyrir lesendur. Heimildir: Biblíuskólinn viö Holtaveg — Fréttabréf, janúar 1997. „It’s based on friendship." Grein í Alpha News, febrúar 1997, bls. 5. (Útg. Holy Trinity Brompton.) „Welcome to Alpha News.“ Dálkur í sama blaði, bls. 1. Auk þess samtöl við Ragnar Gunnarsson sem hefur séð um Alfa-námskeiðin hér á landi. Hvers vegna fórstu á Alfa-námskeið? Kolbeinn Kolbeinsson: Ég fór á námskeiðið af því að mér var bent á það. Það kom mér skemmtilega á óvart hvað það var sérstaklega gott og gagnlegt. Ég mæli eindregið með því. Snjólaug Sturludóttir: Ég hafði eiginlegan áhuga á að kynnast Biblíunni betur; ég sá auglýsingu í Morgunblaðinu og fór á námskeiðið í framhaldi af því. Mér fannst virkilega gaman að kynnast öllu þessu fólki og ég held að þetta sé eitt af þvi betra sem ég hef komist í kynni við af svona námskeiðum. Mér finnst að þetta hafi gert mér mjög mikið gott andlega. Sævar Friðgeirsson: Ég fór á Alfa-námskeið eftir að ég sá það auglýst á sjónvarpsstöð- inni Ómega því mig langaði að þekkja betur boðskap Biblíunnar. Svaraði það væntingum? Fullkomlega, og miklu meira en það. Það gaf mér mun meiri skilning á því hvað Biblían boðar. Svona námskeið er nauðsynlegt fyrir hvern sem vill þroska þá trú, sem hann á fyrir, og líka þann sem er að leita að andlegum styrk. Því það er byggt þannig upp að rnaður er mjög mikill þátttakandi í kennsluefninu, það er kennsla að 1/3 hluta og um- ræður að 2/3 hlutum. Þeir sem sækja námskeiðið hafa fullt frelsi til að tjá sig um kennsluefnið. En rauði þráðurinn er samt sem áður boðskapur Bibliunnar. Og námskeiðið varð til að styrkja mig í minni trú. Ég þroskaðist það mikið í trúnni að boðskapur Biblíunnar varð mér sannur, þannig að ég upplifi að Jesús Kristur er sá sem hann segist vera og að Biblían er handbók lífsins. Ég trúi því að allir sem fara á námskeiðið ættu að finna svör við því sem þeir eru að velta fyrir sér í andlegum efnum. Að minnsta kosti var það þannig með mig persónulega.

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.