Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.1997, Blaðsíða 20

Bjarmi - 01.06.1997, Blaðsíða 20
Skúli Svavarsson í kristilegu æskulýðsstarfi Roland Werner er einn fremsti leiðtogi í kristilegu unglingastarfi í Þýskalandi nú á dögum. Hann kom hingað til íslands í apríl á vegum Biblíuskólans við Holtaveg og kenndi þar á námskeiði um samkyn- hneigð og kristna trú og talaði á þrem samkomum í Reykjavík. Auk alls þessa báðu margir einstaklingar um að fá að ræða við hann svo hann hafði nóg að gera meðan hann dvaldist á íslandi. Tíðindamaður Bjarma náði tali af Roland nóttina áður en hann fór heim. Persónuleg afstaða Roland Wemer, huemig eignaðist þú tríina á Jesú Krist? Foreldrar mínir ólu okkur bræðurna upp í trú á Jesú og kenndu okkur að fylgja honum. Þegar ég var táningur fór ég í kristilegar sumarbúðir. Fræðslan þar kom mér í skilning um að ég varð að taka persónulega afstöðu til þess hvort ég vildi lifa með Jesú eða ekki. Ég tók ákvörðun um að fylgja honum. Síðan hef ég vaxið og þroskast í trúnni. Ég verð stöðugt að endumýja samband mitt við hann. Daglega þarf ég að koma fram fyrir hann með iðrun í hjarta og biðja hann að hreinsa mig af allri synd. Kristniboði og fræðimaður Huað kefur þú verið að starfa? Þegar ég var sautján ára hlustaði ég á kristniboða sem vann á meðal Araba. Hann talaði þannig að ég fékk köllun til þess að fara til Araba sem kristniboði. Eftir menntaskólanám fór ég að búa mig undir kristniboðið. Ég las bæði guð- fræði og arabísku. Síðan fór ég í ferð til Egyptalands og þar beindist hugur minn að starfi á meðal Núbíumanna en þeir búa í suðurhluta Egyptalands og Norður- Súdan. Núbíumenn voru þá múhameðs- trúar. Ég sá að þörf var á að koma Guðs orði til þeirra. Ég lauk síðan náminu sem ég hafði byijað á og fór í doktorsnám í afrískum málvísindum. Samtimis því tók ég virkan þátt í kristilegu starfi meðal stúdenta. Vegna heilsubrests eiginkonu minnar urðum við að sætta okkur við að geta ekki dvalið langdvölum á kristniboðs- akrinum í Suður-Súdan. Við fórum þangað á hverju ári og ég vann aðallega við að skrá tungumál Núbíumanna og þýða hluta Biblíunnar og annað fræðslu- efni á málið. Eins kenndum við fólki að lesa Núbíutungumálið og gáfum út lestrarefni í þeim tilgangi. Doktorsritgerð mín fólst í að búa til málfræði á Nílar-Núbíumáli. Seinna hef ég einnig samið málfræði Darfur-Núbíu- máls. Kristniboðsfélagið, sem við hjónin störfum fyrir, hóf kristniboð í Egypta- landi árið 1900 og í Suður-Súdan 1979. Við hjónin störfum enn fyrir þetta félag að hluta til og förum reglulega til Suður- Súdan. Ég hef líka kennt hebresku og gamlatestamentisfræði við biblíuskóla þýska heimatrúboðsins í Marburg þar sem við búum. Árin 1990-1992 starfaði ég á vegum þýska, kristilega stúdenta- félagsins við boðun í háskólum og fór einnig í kristniboðsferðir til Austur- Evrópu. Hefur þú ekki líka uerið að skrifa kirkjusögu? Jú, ég er að ljúka við kirkjusögu Núbíu. Vitað er að kristin trú breiddist mjög út í Norður-Afríku á fyrstu öldunum eftir Krists burð. Talið er að Núbíumenn hafi orðið kristnir kringum árið 500 e. Kr. og hafi verið það fram undir aldamótin 1500 þegar múhameðstrú náði undir- tökunum í Núbíu. Þegar verið var að undirbúa að koma upp Assvanstíílunni í Nílardalnum komu í ljós forminjar sem sýndu að blómleg kristni hafði verið á svæðinu. Menn fundu rústir eftir marg- ar kirkjur. Einnig fundust mörg fom rit, þar á meðal kristilegar bækur, guðspjöll og helgisiðabækur á Núbíumáli, skrifað- ar með grískum bókstöfum. Þetta eru elstu ritaðar heimildir um kristni meðal dökkra Afríkubúa fyrir utan heimildir á geez frá Eþíópíu. Ég hef rannsakað öll þessi rit. Þau em mikilvæg heimild um kristna menningu Núbíumanna. 34 þúsund manna æskulýðsmót Þú uarst skipuleggjandi og stjómandi „ChristiuaV'-ráðstefnunnar í Dresden á sl. ári. Huers konar ráðstefna uar það? Eftir að múrinn milli Austur- og Vestur- Þýskalands var rifinn árið 1989 kom upp hugmynd um að halda kristilegt mót fyrir ungt fólk frá báðum hlutum Þýskalands. Akveðið var að mótið yrði í Dresden í fyrrverandi Austur-Þýska- landi. Bjartsýnustu menn gerðu ráð fyr- ir að um 20 þúsund manns kæmu á Bjartsýnustu menn gerðu ráð fyrir að um 20 púsund manns kæmu á mótið en þegar 34 púsund höfðu boðað komu sína urðum við að hætta skrán- ingu. Yfirskrift mótsins var: „Kom ogfylg Jesú."

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.