Bjarmi - 01.06.1997, Qupperneq 21
mótið en þegar 34 þúsund höfðu boðað
komu sína urðum við að hætta skrán-
ingu. Yfirskrift mótsins var: „Kom og
íylg Jesú.“ Áhersla var lögð á hver Jesús
er og hvað felst í að fylgja honum. Fólk-
inu var skipt í tvö þúsund biblíuleshópa
sem hvern morgun fengu fræðslu í
Lúkasarguðspjalli og ræddu saman um
efnið. Fræðsluefni íyrir átta biblíulestra
hafði verið útbúið. Farið var yfir helm-
inginn á mótinu en hina lestarana tóku
þátttakendur með sér heim til þess að
nota þar.
Rúmlega 200 kristniboðsfélög og
biblíuskólar voru með kynningarbása á
mótinu. Mótsgestir fóru í hópum á milli
básanna og fengu fræðslu um tækifæri
til þess að fræðast og starfa fyrir fyrir
Drottin bæði heima og úti.
í Dresden eiga heima um 650 þúsund
manns. Einn eftirmiðdag fóru móts-
gestir út til að vitna um trú sína. Þeir
höfðu með sér sérstakt blað með grein-
um um höfðuðatriði kristinnar trúar og
vitnisburðum manna sem eignast höfðu
trúna á Jesú. Það tókst að heimsækja
220 þúsund heimili þennan eina dag.
Ráðgert er að halda sams konar ráð-
stefnu að nýju árið 2002 og bjóða þá
ungu fólki bæði frá Austur- og Vestur-
Evrópu.
í leit að öryggi
Nú starfar þú aðallega að kristinni boðun
á meðal ungsfólks í Þýskalandi. Hvemig
gengur?
Menn eru mjög fúsir að hlusta á boðun
Guðs orðs nú á dögum. Unglingar eru
leitandi. Margir eru óöryggir. Þeir koma
oft frá heimilum sem hafa verið leyst
upp. Spurningin um tilgang lífsins og
hvort til sé einhver framtíð er ofarlega í
huga þeirra. Flestir sækjast eftir að
komast í hóp sem hefur tryggari stoðir
en fjölskyldumar sem brugðust. Það má
segja að þetta fólk sé að leita að von í
vonlausri stöðu. Þetta getum við veitt
þeim. Fagnaðarerindið er um örugga
von fyrir alla.
Hvemig náið þið til unglinganna?
Sérstakar unglingasamkomur, þar sem
unglingamir gera eitthvað sjálfir, hafa
gefist vel. í Marburg emm við með sam-
komur í stórri kirkju og setjum upp
hljóðnema víðsvegar í kirkjunni svo að
samkomugestir þurfi ekki að ganga
fram ef þeim liggur eitthvað á hjarta
sem þeir vilja deila með öðmm. Flestir,
sem taka til máls, lesa ritningarvers eða
biðja. Það er mjög mikilvægt að ungt
fólk geti komið saman til þess uppörva
og styrkja hvert annað.
Áherslur í prédikun
Á hvað leggur þú áherslu í boðun þinni?
Það er þrennt sem ég vil nefna:
1. í fjölhyggjuþjóðfélagi okkar er rétt að
leggja þunga áherslu á að Jesús
einn frelsar.
2. Þú mátt koma til Jesú eins og þú
ert.
3. Jesús kallar þig til að fylgja sér, þ.e.
hann vill gera þig að lærsveini sem
hann notar til að ávinna aðra fyrir
sig.
ísland og íslendingar
Að lokum, hvaðfinnst þér um ísland?
Landið er fallegt. Ég var undrandi á öllu
kristilega starfinu sem unnið er hér. Þið
hafið gott fólk með ykkur í starfinu.
Einnig gladdi mig að sjá að þið eruð
með réttar áherslur og vinnið að þvi að
fagnaðarerindið nái tif aflra. Það eru
merk tímamót framundan hjá ykkur. Þar
á ég við Í000 ára kristnitökuafmæiið.
Biðjið um vakningu. Hver ný kynslóð
þarf að vakna til lifandi trúar á Jesú.