Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.1997, Síða 29

Bjarmi - 01.06.1997, Síða 29
NNI í SUMAR • Á DÖFINNI í SUMAR • Á DÖFINNI í Sæludagar í Vatnaskógi um verslunarmannahelgina 1.-4. ágúst Margir hafa átt ógleymanlegar stundir á námskeiðunum á undanförnum árum. Námskeiðið í ár verður með svipuðu sniði og verið hefur. Það hefst með bænastund og hugvekju á flmmtudags- kvöldið 21. ágúst. Reynt verður að halda verði niðri eins og kostur er. Innritun fer fram á aðalskrifstofu KFUM & K og SÍK á Holtavegi 28. Sími: 588 8899. Dagskrá verður auglýst síðar. Sæludagar eru vinaleg og heima- bökuð fjölskylduhátíð sem inni- heldur fjölbreytta blöndu af úti- vist, skemmtun og kristinni boðun og fræðslu. Á undanfömum ámm hafa um 600 til 800 manns komið á hátíðina, sem hefur náð því marki að höfða til breiðs hóps, óháð því hvort fólk er virkt í kristilegu starfi eða ekki. Á Sæludögum hefur sannast að hægt er að standa fyrir vímulausri fjölskyldu- hátíð um mestu ferðahelgi íslendinga, þar sem öll fjölskyldan getur notið ánægjulegra samvista í fallegu og ömggu umhverfi. Á Sæludögum er notast við alla þá góðu aðstöðu sem Vatnaskóg- ur býður upp á. Skógurinn og vatnið skapa eftirsóknarvert um- hverfi þar sem allir njóta sín. Börnin kunna að meta leiktækin og bátana en foreldrar sjá kaffihúsið og góða hreinlætis- aðstöðu sem mikinn kost. Verðlagningu er stillt í hóf; mótsgjaldið er kr. 2.700,-. Ókeypis er fyrir börn yngri en 13 ára (miðað við fermingu) og hjón með unglinga undir 16 ára aldri geta fengið fjölskyldupakka á kr. 6.000,-. Dvöl á Sæludögum kostar fjölskylduna því lítið meira en gisting á hefðbundnu tjaldstæði. Sæludagar í Vatnaskógi em með öllu áfengislaus hátíð. Bömum yngri en 13 ára er ekki hleypt inn á svæðið nema i fylgd með fullorðnum. Það em Skógarmenn KFUM sem fara fyrir Sæludögunum og njóta góðrar samvinnu vlð einstaklinga og hópa inn- an kirkjunnar. Sæludagar í Vatnaskógi um verslunarmannahelgina Biblíu- og kristniboösnámskeiö í Ölveri 21. - 24. ágúst

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.