Bjarmi - 01.03.2000, Síða 3
Með fagnaóarerindið
inn í framtíðina
Þaó hefur ekki farió fram hjá neinum aó vió Is-
lendingar minnumsc þess í ár aó þúsund ár eru
lióin frá því að kristni var lögtekin hér á landi.
Þá er tvöþúsundasta árið í
tímatali okkar, sem við mióum
við fæóingu Krists, runnió upp.
Þaó er því tilefni til aó staldra
vió og halda upp á tímamótin.
Kristnihátíóir eru haldnar víða um land og til-
efnió notaó bæói til að líta um öxl og horfa
fram á veginn. Ekki er úr vegi að velta fýrir sér
stöóu kristninnar í landinu á tímum sem aó
margra mati einkennast af afhelgun og fjöl-
hyggju. Efnishyggjan virðist ráðandi og í trúar-
efnum er þjóóin ekki eins einsleit og
áður. Margvísleg trúarbrögó og trúarleg-
ir straumar berast til landsins. A slíkum
tímum reynir á umburóarlyndi og for-
dómaleysi. Jafnframt hljóta þeir sem vilja
kalla sig kristna aó velta fyrir sér merk-
lngu °g gildi trúar sinnar og hvers virói
kristinn trúararfur er fyrir einstaklingana
og samfélagió. Kristni hefur sett verulegt
mark á íslenska menningu og samfélag
um aldir. Þaó er hins vegar ekki sjálfgefió
að svo verói áfram. Annars konar menn-
ingaráhrif móta jafnframt íslenskt samfélag og
menningu og engin ástæóa til að amast við því
ef ekki er um nióurbrjótandi og spillandi áhrif
aó ræóa. Hins vegar er full ástæóa til að velta
fyrir sér þeim verðmætum sem fólgin eru í hin-
um kristna trúararfi og því hvernig þeim veróur
miólaó áfram til nýrrar kynslóóar. Abyrgð for-
eldra sem láta skíra börn sín er mikil í þeim efn-
um. Þeir taka á sig þá skyldu aó ala barnió upp í
þeirri trú sem þaó er skírt til. Kirkjan ber einnig
ábyrgó þegar hún skírir börnin. Hún á aó boöa
fagnaðarerindið á markvissan hátt og fræða um
inntak trúarinnar. Skólinn kemur einnig við
sögu. Honum er meóal annars ætlað aó fræða
um kristna trú og siðgæði og önnur helstu trúar-
brögó. Þannig stuðlar hann að því að nemendur
geti tekist á viö trúarleg efni og spurningar í
tengslum við mótun sjálfsmyndar sinnar.
Frumábyrgóin er þó hjá foreldrunum. I tilefni af
kristnihátíó er því ástæóa til aó hvetja foreldra
til að leggja rækt vió trúarlegt uppeldi og heimil-
isguórækni þannig að uppvaxandi kynslóö fái
fagnaðarerindi kristninnar meó sér í vegarnesti
inn í framtíóina. Þareru mikil verómæti í húfi.
’>
«o
33
ftf
</>
rjQ „Eru þetta
allt sálmar?“
Rœtt við Hrönn Svans-
dóttur um kristilega
tónlist og
tónlistarklábbinn
Hljóma.
Hvað er jóga?
Sr. Þórhallur Heimisson
fjallar um spurning-
una oggerir grein
fýr ir hvað jóga er og
hverjar rætur jóga-
iðkunar eru.
Útvarpsstöðin Lindin fimm ára
Ragnar Schram rceðir við Mike og
Sheilu Fitzgerald á Lindinni í tilefni af tíma-
mótunum, m.a. um ástœður þess að þau komu
hingað til lands ogsettu á fót
kristilega útvarpsstöð.
4Kristni og fjölhyggja
CunnarJ. Cunnarsson
rceðir um stöðu kristninnar <
fjölhyggjsamfe'laginu og veltir
meðal annars fýrir sér
spurningunni um umburðar-
lyndi og hlutverki og ábyrgð
heimilis, kirkju og skóla.
sy A Biblíufrœðslan
r Benedikt Jasonar-
son fjallar um frásögn Mark-
úsarguðspjalls afþvíþegar
Jesús lœknaði daufan og mál-
haltan mann. Hvaða lœrdóm
getum við dregið afsögunni?
•1 Ungt fólk og kirkjan
I %J Hvað gerir kirkjan til að laða ungt
fólk tll þátttöku? Hentar kirkjustarfið
bara börnum, unglingum oggamalmenn
um? Eru starfshættir kirkjunnar
gamaldags? Hanna Þórey Guð-
mundsdóttir rœðir málin við
Cunnar Einar Steingrímsson,
Cuðrúnu Finnbjarnardóttur og
Guðlaugu Björgvinsdóttur.
Trúvörn
Er trúvörn nauðsynleg?
Hvað felst í trúvörn? Hvert er
gildi þess að rökrœða
merkingu oggildi trúar-
innar við samtímann?
Baldur Ragnarsson
og Henning E. Magn-
ússon skoða málið.
Utgefendur: Kristilega skólahreyfingin,
Landssamband KFUM og KFUK og Samband
íslenskra kristniboðsféiaga. Ritstjóri: Gunnar J.
Gunnarsson. Ritnefnd: Henning Emil
Magnússon, Kjartan Jónsson og Ragnar
Schram. Afgreiðsla: Aðalskrifstofan, Holtavegi 28, pósthólf 4060,124 Reykjavík, sími 588 8899, fax
588 8840. Árgjald: 2.800 kr. innanlands, 3.300 kr. til útlanda. Gjalddagi 1. mars. Verð í lausasölu
590 kr. Umbrot og útlit: Argus. Ljósmyndir: Kristján Einar Einarsson o.fl. Prentun: Prentmet.
1 Tímarit um kristna trú
Ragnar Þórhallur Hanna Þórey Baldur Henning Emil
Schram Heimisson Guðmundsd. Ragnarsson Magnússon
tók tvö skrifar er með viðtal skrifar um skrifar, dsamt
viðtöl í blaðið. greinina undir trúvörn ásamt Baldri, um
„Hvað er yfrskriftinni Henning. trúvörn.
jóga?“ „Ungtfólk og
kirkjan“