Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.2000, Blaðsíða 26

Bjarmi - 01.03.2000, Blaðsíða 26
Hið andlega heyrnarleysi eða heyrnarsljóleiki á sök á því ef tal okkar ber þess ekki vottinn að við höfum hlustað á Drottin Jesú, játast því sem hann samþykkir og hafnað því sem honum er ekki að skapi. \ Um hin daufa sagói í textanum að Ls Jhann hafi átt erfitt með að tala. Hann var málhaltur, eða eins og við mund- um segja, „mjög blæstur í máli“. Hann heyrói ekki sitt eigió tal og því varó það brenglað. Þannig er þessu einnig varió þeg- ar andlegt heyrnarleysi er annars vegar. Hió andlega heyrnarleysi eóa heyrnarsljó- leiki á sök á því ef tal okkar ber þess ekki vottinn aó vió höfum hlustað á Drottin Jesú, játast því sem hann samþykkir og hafnaó því sem honum er ekki aó skapi. Heyri menn ekki þaó sem þeir sjálfir segja, séu heyrnarsljóir eóa heyrnarlausir á eigió tal, er hætt vió að þeim sé fyrirmunaó aó hafa stjórn á því sem tungan talar. )Slíkt ástand í innra lífi þess sem játar trú á Jesú er andlegt helsi, þrælkun undir framandi oki, sem Jesús þarf aó fá aó komast aó og lækna. Hann þarf aó fá aó taka á meininu. Því meó tali okkar sköpum vió áhrifasvæði í kringum okkur, áhrifasvæói sem getur oróió umhverfi okk- ar aó andlegu fjörtjóni. Lausnin felst í því aó við segjum gagnrýnislausri hlustun stríó á hendur meó því aó láta Jesú hafa úrslita- valdió, opna meira fyrir honum og loka á þaó sem honum geójast ekki að í því sem glymur á hlustum okkar. Þaó fer ekkert á milli mála aó sálaróvininum er mikió í mun aó eiga sér samverkamenn sem víðast og takist honum aó slá svo ryki í augu Guós barna aójesú leyfist ekki aó hafa taumhald á tungu þeirra er illa komió fyrir þeim en vel fýrir honum, sálaróvininum, sem hefur þaó eitt aó markmiói aó eyða ríki Guós. Spurningin sem beint er til okkar er þessi: „Viltu efla Guós ríki eóa eyóa því?“ Við þörfnumst þess öll aó læra aó tala rétt vió Guó og rétt í nærveru þeirra sálna sem vió umgöngumst. Þegar rétt er talað hefur fólk gagn afogjafnvel eilífa blessun. Þegar tal- inu er stjórnaó af sálaróvininum, sem tek- ist hefur aó svipta okkur meóvitundunni um skaósemi tungunnar þegar verst lætur, gönum vió ekki á Guós vegum. I\ Vió lærum aó tala rétt ef vió tölum VJ /fyrst viójesú. Hann getur unnió þaó kraftaverk í lífi okkar aó okkur lærist að nota tunguna rétt. Og þaó er sannkallað kraftaverk, lausn úr ánauó, þegar slíkt und- ur gerist. Lausn úr ánauó tóms tals eða ills umtals. Þaó eitt aó hann sitji í raun í há- sæti hjartans getur komió því til vegar. 3Hinn daufi stóó á upphafsreit nýs lífs • eftir kraftaverkið. Laus úr ánauó! Hið nýja líf hans var bundið honum sem hafói frelsaó hann úr ánauó. Jesús vildi koma meiru til vegar í li'fi hans en að gefa honum rétta hlustun og réttan talanda. Þaó var honum mikils virói aó heyrn hans og tal hafði komist í lag. Tveir miklvægir þættir í lífi hans voru komnir í lag. En framundan var lífió, það sem eftir lifði lífs- ins - ef svo mætti segja - og Jesús vildi kenna honum aó lifa rétt. | \ Jesús frelsar til nýs lífs og þaó nær U J ekki bara til eyrna og tungu. Þaó nær til lifsins alls, líkama, anda og sálar. Um alla framtíð! Lífió á enda og út yfir gröf og dauóa! Okkur hefur oróið tíórætt'um „lagfær- ingu eyrna og tungu“. Þaó er eflaust margt sem þarfnast lagfæringar í líferni okkar kristinna manna. En engar lagfæringar, hversu margar sem þær veróa og hversu umfangsmiklar sem þær verða, geta áunn- ió hjálpræói Guós. Án helgunar fær enginn Drottin litió, segir í Hebr.12,14. Þar segir: „Stundió friö við alla menn og helgun því að án hennar fær enginn Drottin litió". Og í 15. versinu segir áfram: „Hafió gát á að enginn missi af náó Guðs.“ Og síóan eru taldar upp syndir sem varast ber. Þaó þarf enginn að velkjast í vafa um aó Guó vill aó viö lifum í samræmi vió vilja hans. Þaó er rökrétt afleióing sannrar trúar aó hún beri ávexti Guói til dýrðar. Hinu megum við samt ekki gleyma aó þaó frelsast enginn fyrir verk sín. Góó verk eru ávextir trúarinn- ar. Trú án góóra verka er ekki sönn trú. Vió frelsumst hins vegar ekki á öórum grund- velli en þeim aó Jesús dó fyrir syndir okkar og var reistur frá dauóum okkur til réttlæt- ingar. Réttlætisskrúðinn sem hinir endurleystu Drottins skrýóast frammi fýrir hástóli Guðs á himnum er ekki veróskuldaóur meó góó- verkum. Hann er ekki áunninn heldur til- reiknaóur. Vió réttlætumst fýrir líf Krists. I Róm 3,24 segir: „Þeir réttlætast án verð- skuldunar af náó hans fýrir endurlausnina sem er í Kristi Jesú.“ Grundvöllur sáluhjálp- arinnar er þaö sem við erum í Kristi Jesú fýrir trú á hann. Séum vió í honum getur ekkert ásakaó okkur, því þá stöndum vió frammi fýrir Guói án sektar og skrýdd þeim réttlætisskrúóa sem hæfir á himnum. Hinu megum vió samt ekki gleyma aó okkur er ætlaó að bjóóa okkur sjálf fram aó lifandi, Guói þóknanlegri fórn. Þaó er sönn og rétt guósdýrkun af okkar hendi. Um þaó er Guós oró allt á einu máli. Vió skulum lesa Róm 12,1-2. Tökum þessi oró til okkar og lifum honum til dýróar, einnig að því er varóar hlustun okkar og tal allt. Jesús veró- skuldar tilbeióslu okkar alla á öllum svió- um mannlegs lífs. Gleójum hann meó því aó helgast honum sem helgaói sjálfan sig okkur til hjálpræóis. Á hann þaó skilió að við gleójum hann? Og við svörum: Já, þaó á hann svo sannarlega skilió! Guð gefi okkur náð til aó lifa í samræmi viö þaó frelsi sem er okkur gefið fýrir trú á Jesú, frelsi til aö hlusta á hann og frelsi til aó tala vió hann. Drottinn blessi okkur öll til þess!

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.