Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.11.2002, Page 3

Bjarmi - 01.11.2002, Page 3
Ríki og kirkja Enn einu sinni hefur umræóan um aóskilnað ríkis og kirkju komist á dag- skrá. Tilefnió er líklega annars vegar það að þjóóarpúls Gallups sýndi nú í október sem oftar aó meiri hluti þjóóarinnar álítur sig hlynntan aðskilnaði ríkis og kirkju og hins vegar aó biskup Islands, sr. Karl Sigur- björnsson, sá ástæöu til að taka málió til umræóu í ávarpi sínu vió upphaf Kirkjuþings 2002. Biskup bennti þar á að þegar hefði verið gegnið svo langt í aðskilanði ríkis og kirkju hér á landi að líkja mætti vió skilnaó að borói og sæng. Þá hafa nokkrir þingmenn borið fram frum- varp á Alþingi um aðskilnaó ríkis og kirkju. Gallup hefur spurt nánast árlega undan farin ár hvort fólk sé hlynnt eða andvígt aðskilnaði ríkis og kirkju og hafa á bilinu 55-68% verið hlynnt aðskilnaói. í sjálfu sér er á feróinni skýr spurning en hún er hins vegar sett fram án allra forsendna og frekari spurninga um hvað að- skilnaður ríkis og kirkju feli í sér. Þaó er til dæmis ólíklegt að þeir sem svara spurningunni geri sér grein fýrir hve langt aðskilnaðurinn er í raun kominn. Þá er líka hæpió að fólk hafi almennt leitt hugann að því hvers konar fýrirkomulag það vill aó taki við varðandi hlutverk og stöðu þjóðkirkjunnar og annarra trúfélaga í landinu. Þá má heldur ekki gleyma því aó kirkja og ríki hafa þegar gert samning um arógreióslur af kirkjujörðum sem ríkió tók yfir og renna þær greiðslur til greióslu prestslauna og í sjóði kirkjunnar. Ef málió snýst um að ríkió hætti að greiða laun presta þarf aó taka þann samning til endurskoðunar. Biskup bendir á í ávarpi sínu aó þjóðkirkjan hafi umfram önnur trúfélög borió „miklar almannaskyldur umfram önnur trúfélög í landinu, og skyldur vegna stærðar sinnar, sögu og hefóar." Ljóst er að ef fjármunir kirkjunnar dragast verulega saman mun þjónusta kirkjunnar við fólkió í landinu einnig dragast saman. Hér er því aó mörgu aó hyggja. Það er jákvætt að umræðan um samband ríkis og kirkju og um leið sam- fýlgd þjóðar og kirkju skuli vera á dagskrá. í þeirri umræðu skiptir máli að huga að öllum hliðum máls og ræða kosti og galla núverandi skipulags og setja fram hugmyndir um annars konar fýrirkomulag sem kann aó koma til álita. Spurningin ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) aðskilnaði ríkis og kirkju er í raun of flókin til að unnt sé aö svara henni í síma um leið og ýmsum öórum spurningum er svarað. Staða þjóðkirkjunnar í nútímasamfélagi á íslandi er að mörgu leyti sterk og safnaóarstarf er víða mjög blómlegt. Fjöldi fólks ber mikið traust til kirkjunn- ar og væntir þjónustu hennar í margvíslegum aðstæðum lífsins. Á hinn bóg- inn er samband ríkis og kirkju ekki endilega sjálfgefió og því full ástæða til aó ræða kosti þess og galla. Því er ástæða til að hvetja til málefnalegrar umræóu um málió þar sem allar hliðar þess eru teknar til skoóunar. Vonandi getur slík umræóa skapaó raunverulegar forsendur fýrir fólk til að svara spurningu á borð við þá sem þjóðarpúls Gallups spyr reglulega. *o ’> *o rd 2 oí </> 4Matrix er ekki bara bang, bang! Guðmund- ur Karl Brynjarsson ræóir vió sr. Gunnar Sig- urjónsson um kvikmyndina The Matrix, en Gunnar hefur notað hana í kirkjustarfinu í Digranessókn og hefur nú hafió meistaranám í guðfræði þar sem kvikmyndin er rannsókarefnið. 8Trúboðið verói stór þáttur. Halldór N. Lár- usson hefur komió víða við og meóal annars stofnaó söfnuð á Islandi og verió safnaóarleiðtogi í Bandaríkjunum. RagnarSchram tók Halldórtali og forvitnaöist um störf hans og framtíóaráætlanir. •1 Oóruvísi messur. Henning E. Magnússon I heldur áfram að gera úttekt á öðruvísi messum. Aó þessu sinni ræðir hann vió sr. Jakob Hjálmarsson, dómkirkjuprest í Reykjavík, um svo- nefndar æðruleysismessur. 't C Á mióri leió. Sigurður Pálssson íhugar veg- I \D feró mannsins og þrá eftir Guði, návist og samfýlgd Guós á veginum sem oft viróist dulin. MSr. Friórik og Fjallræóan. Henning E. Magnússon grúskaói í sumar í handrita- safni sr. Friðriks Friðrikssonar, stofnanda KFUM og KFUK á íslandi. Hér skrifar hann um nokkrar ræður hans út frá textum í Fjallræðunni. '~)C\ PraS 20013. Evrópumót KFUM veróur haldið í Prag í ágúst á næsta ári. Jóhanna Sesselja Erludóttir segir hér frá mótinu og undir- búningi þess. Q Q Náðargjöf áminningarinnar. Guólaugur Z-Z- Gunnarsson fjallarenn um náðargjafirnar og nú er komió að náðargjöf áminningarinnar. <-)A Nútímaævintýrió Willow Creek. Kjartan £- \ Jónsson skrifar um Willow Creek kirkjuna skammt fýrir utan Chicago í Bandaríkjunum. Kirkjan var stofnuð árió 1975 og hefur vöxtur hennar verið ævintýralegur. QQ Creation Fest 2002. Hópur íslendinga x_.0 skellti sér á mikla útihátíó í Bandríkjunum sl. sumar. Þar komu fram fjölmargar kristilegar hljómsveitir og listamenn og 100 þúsund gestir skemmtu sér konunglega. Hrönn Svansdóttir segir feróasöguna. Q„Hvort sem ég geng eða ligg...“ Hugvekja J\J eftir sr. Guðmundur Karl Ágústsson í Fella- og Hólakirkju. /t^WW\AftA/^J. /C^, ■ Tímarit um kristna trú ^ 96. árg. 3. tbl. nóvember 2002 Útgefendur: Landssamband KFUM og KFUK og Samband íslenskra kristnlboösfélaga. Ritstjóri: Gunnar J. Gunnarsson. Ritnefnd: Henning Emil Magnússon, Kjartan Jónsson og Ragnar Schram. Afgreiösla: Aöalskrifstofan, Holtavegi 28, pósthólf 4060, 124 Reykjavík, sími 588 8899, fax 588 8840, veíslóðir www.kfum.is og sik.is. Árgjald: 3.200 kr. innanlands, 3.700 kr. til útlanda. Gjalddagi 1. apríl. Verð í lausasölu 800 kr. Ljósmyndir: Kristján Einar Einarsson, Gunnar J. Gunnarsson o.fl. Umbrot: Tómas Torfason. Prentun: Prentmet. Guðlcnigur Hrönn Ragnar Schram Henning E. Gunnarsson Svansdóttir Magnússon Guðmundur Kjartan Karl Jónsson Brynjarsson

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.