Bjarmi - 01.11.2002, Síða 6
dauða hans og upprisu. Síóan kynnti ég fyr-
ir þeim nokkur stef í kvikmyndinni Matrix
og sýndi þeim aó því loknu píslargöngu,
dauða og upprisu aóalpersónu þeirrar kvik-
myndar, Neo, sem og uppstigningarsenuna
sem er glettilega lík þeirri sem kvikmyndin
um Jesú birtir.“
Fermingarfræósla bönnuð börnum
En fannst foreldrum fermingarbarnanna ekki
hcepið afpe'r að kynna börnunum mynd sem er
bönnuð innan 16 ára?
„Nei, viðbrögðin voru afar jákvæð. Ég
fékk leyfi foreldranna til sýningar og þá
kom á daginn aó börnin voru langflest búin
að sjá myndina. Auk þess sýndi ég ferming-
arbörnunum ekki þær senur myndarinnar
sem ollu því aó hún var bönnuó innan 16
ára. Þegar þau komu heim og fóru aó segja
foreldrunum frá fyrirlestrinum fékk ég mjög
sterk vióbrögó frá þeim og vegna fjölda
áskorana hélt ég sérstakan fyrirlestur um
Matrix fyrir foreldrana líka. í þeim fyrirlestri
kafaði ég talsvert dýpra en áóur og hef flutt
þaó efni á ýmsum stöóum nú þegar, meóal
annars á Sæludögum í Vatnaskógi um síó-
ustu Verslunarmannahelgi." Gunnar glottir
og bætir vió: „Ég heimsótti líka hóp Mat-
rix-nörda, háskólaborgara sem eru
hreinlega „húkkt“ á kvikmyndinni. Auk
þess hef ég hef verió pantaóur meó
fyrirlesturinn nokkuó víóa. Til dæmis
fer ég meó hann á Hvammstanga í lok
nóvember og mun á komandi vetri
tala vió fermingarbörn og foreldra
þeirra í ýmsum söfnuóum á höfuó-
borgarsvæóinu."
Sýndirðu ekki Matrix
líka á fóstudaginn
langa?
,Jú, þá bauó ég
almenningi aó sjá
valin brot úr
myndinni og hlýóa
á fýrirlesturinn í
Digraneskirkju. Sá
flutningur auk fýrir-
spurna tók fjóra
tíma.“
Fannst engum neitt að þvíað vera með slíkt efni
á sjálfan fóstudaginn langa?
„Nei, ég hef alla vega ekki heyrt neinar
gagnrýnisraddir um þaó.“
Skráargötin eru í Biblíunni
En um hvað fjallar Matrix?
„Miklu máli skiptir aó koma auga á
nokkra lykla sem er aó finna í myndinni og
tengla. Matrix lýsir heimi þar sem tölvurnar
hafa tekió völdin og skapað mannkyninu
falskan heim. Þannig eru tölvurnar ímynd
hins illa í myndinni. Hópur manna, sem
hefur náó aó aftengjast blekkingarheimi
tölvanna, berst gegn þeim og leitar hins
eina og útvalda sem mun frelsa mannkynið
undan okinu og blekkingunni.
Þetta stef er einn lykillinn, því það minn-
ir um margt á stöðu ísraelsþjóóarinnar fýr-
ir fæóingu Krists og fýrirheitió um Messías
í Gamla testamentinu. Þessi hópur kemst
aö því að hinn útvaldi er tölvuhakkari aó
nafni Thomas (eins og
postulinn sem efað-
ist) Anderson
(Mannssonur).
6