Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.11.2002, Blaðsíða 9

Bjarmi - 01.11.2002, Blaðsíða 9
 i irbæna, en það var eitthvað nýtt fyrir mér. Eg fór upp til fyrirbæna og var orðinn veru- lega þyrstur. Eg bara varð að fá þessa full- vissu sem Kjartan hafói talaó um. Skyndi- lega kemur nærvera Guðs yfir líf mitt og breytir því. Ég vissi frá og meó þeirri stundu aó ég hafði öólast fullvissuna." Læknisfræóin sett á hakann Þegar þetta gerðist var Halldór að lesa efna- og eðlisfræði því hann hugðist hefja nám í læknisfræói árið eftir. „En nú varó námið aó bíóa. Ég bara varð að komast á biblíuskóla. Ég fór á þriggja mánaða nám- skeið á biblíuskóla Ungdom i Oppdrag í Noregi og ætlaói svo aó halda áfram í Há- skólanum eftir að heim væri komið. En þeg- ar ég kom heim var ég oróinn ennþá þyrst- ari. Mér var bent á framhaldsnámskeið á biblíuskóla í Sviss og fór þangað, hafði reyndar gift mig í millitíóinni. Eftir námið í Sviss var okkur hjónunum boðió að taka þátt í trúboðsstarfi. Þaðan fórum við til Englands og vorum þar í eitt ár.“ Eftir að hafa tekið þátt í starfi Ungs fólks meó hlutverk í nokkur ár tók Halldór þátt í að stofna söfnuðinn Trú og líf árió 1982. Sá söfnuður starfaði til 1989. 1991 fluttu Halldór og Árný til Bandaríkjanna og störf- uðu þar í um tíu ár, m.a. sem safnaðarleió- togar. Nýr söfnuóur? Árin í Hlutverkinu, eins og Halldór kallar Ungt fólk með hlutverk, voru mjög viöburó- arrík. „Hlutverkió virkaði. Það virkaói mjög vel. Ástæðan var sú aó þeir sem tóku þátt höföu einlægan og brennandi áhuga á að boóa fagnaðarerindió. Vió vissum ekki hvernig ætti aó skipuleggja hlutina og fram- kvæma þá, við þráðum bara að boða trúna - og gerðum það. Við vorum ekki aó huga að stofnun safnaóar, heldur aðeins boðun orósins. Allir höfóu brennandi áhuga og eldur heilags anda logaði innra með hverj- um og einum, enda hafói starfið geysileg áhrif. Ég er enn í dag aó hitta fólk sem var snert af starfi Hlutverksins." En nú eru árin í KFUM, KSS, UFMH, Trú oglífi og Bandaríkjunum aö baki. Hvað er framundan? Er Halldór farinn að huga að stofnun nýs safnað- ar? ,Já, það er stefnan. Það er spurning hvort það verður strax í vetur eða hvort við einbeitum okkur að trúboði áður en við stofnum söfnuð." Hverjir eru að vinna að pessu með pe'r? „Við hjónin og lítill hópur í kringum okk- ur. Þetta eru 15 til 20 manns, nokkrir úrTrú og lífi, fólk sem hvergi er virkt í safnaðar- starfi, þjóókirkjufólk sem ekki finnur útrás fyrir sína löngun til starfa og fleiri. Allir eiga það þó sameiginlegt aó þrá trúboð. Og þessi söfnuóur mun einbeita sér að trú- boði. Stundum vill það þó gerast að stofn- un safnaóa hægir á boðuninni. Hvað þá? Vill Guð ekki hvort tveggja? Þetta er spurn- ing um samstillingu safnaðar og trúboós - hernaður og fjölskyldulíf. Við erum nefni- lega fjölskylda í stríði. Þetta hvílir mjög þungt á mér að trúboðið geti verið stór þáttur í söfnuóinum." Tæknin og trúboóió Nú stóðst pú á Lcekjartorgi á áttunda áratugnum ásamt vinum pínum úr Ungu fólki með hlutverk með spjöld oggítara að boða trú. Eru sömu trú- boðsleiðir fcerar í dag? „Ég veit ekki hvort slíkt myndi ganga í dag. Hitt er annað mál að ég tel það mjög heilbrigt og gott aó fólk játi trú sína opin- berlega. Kannski myndu einhverjir snertast af því í dag, ég veit það ekki. En nú höfum vió hins vegar námskeió, alls konar nám- skeið. Fjölskyldunámskeið, fjármálanám- skeið, Alfanámskeió o.s.frv. Kristnir söfn- uðir ættu aó nýta sér þessi tækifæri betur. Menn eru tilbúnir til að borga jafnvel tugi þúsunda fýrirgóð helgarnámskeió. Við get- um einnig nýtt okkur tæknina. Við erum t.d. aó skoða möguleika á framleiðslu sjón- 9

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.