Heima er bezt - 01.05.1952, Blaðsíða 3

Heima er bezt - 01.05.1952, Blaðsíða 3
Nr. 5 Heima er bezt 131 Kímniská ísleifur Gíslason er svo kunn- ur maður, að óþarfi mun að kynna hann lesendum, enda mun ég aðeins drepa á fátt eitt. Hann er fæddur 20. júní árið 1873 í Ráðagerði í Leiru. Gísli Halldórsson, faðir hans, var bóndi og útgerðarmaður þar, en kona hans, og móðir ísleifs, hét Elsa Dorothea Jónsdóttir. Bæði voru þau hjón af merkisfólki komin. Árið 1896 varð hann gagnfræðingur frá Flensborg. Eftir það gegndi hann barna- og unglingakennslu, meðal ann- ars kenndi um sinn í Leir- unni, síðar á Stöðvarfirði og loks á Sauðárkróki. Og kaup- maður hefur hann verið á Sauð- árkróki á fimmta tug ára. Kona hans var Valgerður Jónasdóttir, bónda í Keldudal í Hegranesi. Þau hjón áttu eina dóttur, Elísa- betu, sem gift er Kristjóni Kristjónssyni, féhirði hjá S.Í.S. ísleifur er þrátt fyrir háan aldur hinn ernasti og ávallt glað- ur og reifur, er komið er í búð- ina til hans, og lætur þá betur, V ihtaLsþáttur eftir Kristmund Bjarnason eins og kunnugt er, að tala í bundnu máli, og er þó ekki þar með sagt, að hann sé klaufi að koma fyrir sig orði, ef hann ekki beitir fyrir sig rímleikninni. Síð- ur en svo. — í bókinni Hver er maðurinn? segir, að hann sá einn af fyndnustu hagyrðingum. á íslandi, og hygg ég, að satt sé. Ég heimsótti hann hérna á dög- unum, og mun nú sagt frá við- ureign okkar, en lesendum gefst þá kostur að kynnast kímnigáfu hans. Ég hef setið inni hjá hon- um og rabbað við hann stund- arkorn um daginn og veginn, áður en ég styn upp erindinu, enda eru viðskiptavinir að koma ldið ísleifur og fara, en ég vil neyta góðs færis. Og er hurðin skellur á hæla síðasta viðskiptavininum, ber ég upp erindi mitt og segi: „Láttu mig nú hafa svolitlar glefsur af endurminningum þín- um, ísleifur?“ „Ég hef ósköp lítið að segja.“ „Getur þó alténd tínt í mig einhver brot?“ „Jæja þá, þarna hefurðu brot: Brot úr sögu, brotið tól, brot á sævargrunni. Brot á lögum, brot á kjól, brot af innstæðunni. Ljósbrot hef ég líka séð; labbað brot á fljótum. Heilabrotin hrella geð, — ég hætti og sting við fótum. Nú heldur ísleifur líklega, að hann hafi snúið mig af sér, en þar skjátlast honum. Ég er nefnilega, til að byrja með, harðánægður með þessi brot, sem sýna ljóslega, að hann hef- ur mörgu kynnzt á langri ævi. En eitthvað verð ég að toga út úr honum, sem alvara fylgir. Þess vegna set ég upp jarðar- fararsvip, ef slíkt gæti haft ein- hver áhrif á þenna kímnianda, hugsa mig vel um og segi af stundu: „Pinnst þér ekki, ísleifur, að siðferði hafi stórlega hrakað síðustu 60 árin?“ „Jú, það kann nú að vera, annars var saurlifnaður — eða ein tegund hans að minnsta kosti — stunduð með öllu meiri ofurkappi í æsku minni en nú, og þótti sá ætíð maður að meiri, sem mest og bezt lagöi sig fram. Ég gerði einu sinni vísu um slíkan náunga, og hún er svona: Sorpþrær allar tæma tók, taði karl á velli ók. Þrífur allan þennan stað. — Þetta kalla ég saurlifnað. „Þú hefur hitt naglann á höf- uðið, ísleifur. — En segðu mér nú eitthvað af foreldrum þínum, uppvaxtarárunum og öðru þess háttar.“ Gíslason ísleifur Gislason. „Faðir minn var bóndi, en lifði aðallega á útgerð. Efna- hagur foreldra minna var sæmi- legur þrátt fyrir barnafjöldann, en við urðum 10 systkinin. Full- orðinsárum náðu þó aðeins fimm okkar. Og tvær systur á ég enn á lífi. í heimili vorum þið þetta 12—16. Faðir minn gerði út sex manna far og stundum fjögurra manna far líka. — Þá var oft líf í tuskunum í Leirunni, er vetr- arvertíð hófst. Fjöldi manns sótti til okkar af Innnesjunum. Sumir þessara sjómanna áttu þarna búðir, en aðrar skipshafn- ir komu sér fyrir í hlöðum, ef svo vildi verkast. Stórlaxarnir í veiðistöðinni voru þeir Guð- mundur í Nesi, Þórður, sem kenndur var við Glasgow, Brynjólfur í Engey og Jón í Hlíðarhúsum. Allir voru þessir karlar með áttæringa, en höfðu auk þess menn á sexæringum. Áuk þeirra má nefna Erlend Er- lendsson frá Breiðabólsstöðum á Álftanesi, sem var með áttær- ing og Erlend Björnsson frá sama bæ, sem var með sexær- ing. En margir voru þeir fleiri aðkomumennirnir, sem reru frá þessum slóðum. — Ég fór að róa, er ég gat haldið á ár, ef svo má segja, og hef alltaf unnað sjón- um, og enn á ég bát, hef átt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.