Heima er bezt - 01.05.1952, Blaðsíða 30
158
Heima er bezt
Nr. 5
T eppagarn—Pr jónagarn
30—40 litir úr fyrsta flokks
garni úr hinum nýju og full-
komnu vélum, sem settar
voru upp í verksmiðjunni í
fyrra. Verðið aðeins 12 og 9
kr. 100 gr. hespan.
GEFJUN - IÐUNN
Kirkjustræti 8.
\
Þvottastöðin
SNORRALAUG
er alger nýjung hér á landi.
í stað þess að hafa eina,
stóra samstæðu þvottavéla,
þar sem starfsfólk vinnur
að þvotti, eru í Snorralaug
18 „Laundromat“ þvotta-
vélar, og fá viðskiptavinir
þær leigðar í stöðinni og
þvo sjálfir. „Laundromat“
þvottavélarnar eru alger-
lega sjálfvirkar, og geta
húsmæður farið frá þeim í
nærfellt hálftíma, meðan
þær þvo, og þá gert inn-
kaup í nágrenninu eða
gegnt öðrum erindum.
Fyrstu „Laundromat" al-
menningsþvottahúsin voru
sett á stofn í styrjaldarlok,
og hafa þau farið sigurför
um flest lönd heims. Þau
eru bæði þægileg og
skemmtileg, og er stórum
ódýrara að þvo í slíkum
þvottahúsum en hinum
eldri.
— Auk „Laundromat“
þvottavélanna átján, sem
SNORRALAUG hefur á að
skipa, hefur hún tvær stór-
virkar þvottavindur og eina
stórvirka þurrkunarvél. —
Með þessum vélakosti geta
36 húsmæður þvegið allt að
4 kg. af þvotti hver í „Laun-
dromat“-vélunum á einni
klukkustund.
Komið og sJcoðið þessa
merku nýjung.
Þvottastöðin
SNORRALAUG
SNORRABRAUT 56.