Heima er bezt - 01.05.1952, Blaðsíða 9

Heima er bezt - 01.05.1952, Blaðsíða 9
Nr. 5 Heima er bezt 137 Marsh ákvað því að gefa sér tíma til að ganga vel frá hinum dýrmætu beinum, þó að hættan vofði yfir honum. Loks komst leiðangurinn á stað, alveg mátu- lega snemma, því að daginn eft- ir komu Indíánar með ofurefli liðs til að leita hans. Enda þótt hætturnar væru ekki slíkar á öðrum leiðangrum Marshs, voru leiðangrar hans erfiðir. Hann fór 27 sinnum yfir Klettafjöllin og leiíaði á ótal stöðum, áður en honum tókst að finna þær beinagrindur, sem prýða amerísk söfn í dag. En hvað var það, sem hafði kostað slíkt erfiði að finna? Það var hvorki meira né minna en nokkur af stærstu dýrum, sem lifað hafa á jörðunni! Við gæt- um kannske gert okkur ein- hverja hugmynd um stærð þess- ara dýra, ef við hugsuðum okk- ur að stærstu hvalir fengju fæí- ur og færu að vappa um á þurru landi. Og við það bætist — sem er ekki síður einkennilegt — að þessi útdauðu risadýr voru ekki spendýr, eins og stærstu dýrin eru nú á dögum, heldur skrið- dýr — en þau eru — að frátekn- um krókódílum og kyrkislöng- um — í röð smádýra nú á dög- um. Það er engu líkara en að furðuskepnur ævintýranna séu orðnar að veruleika. Hér mætti ef til vill segja sem svo: Það eru aðeins beinagrind- ur, sem hafa fundist, og sumar þeirra alls ekki heilar. En hvern- ig er hægt að vita með vissu, hvernig dýrin hafa litið út í raun og veru? Það er ekki erfitt að reikna það út. Þeir dýrafræðingar, sem hafa samanburðarlífeðlisfræði að sér- grein, þekkja nákvæmlega hlut- föllin milli hinna mjúku og hörðu líkamshluta dýranna. Lögun beinanna svarar til vöðva- byggingarinnar og ákveður lög- un dýrsins. Tennurnar gefa á- kjósanlega vitneskju um lífs- háttu þeirra. Vísindamenn eru því nokkurn veginn vissir um útlit dýrsins og lifnaðarháttu þess, þó að ágreiningur geti orð- ið um ýmis minniháttar atriði. Vér skulum nú dvelja lítið eitt við nokkra af þessum risum. Er þá réttast að byrja með Bront- osaurus, sem á íslenzku mætti nefna Þrumue'öluna. Beinagrind hennar er um það bil 20 metrar á lengd. Hún fannst í Colorado í nágrenni Canyon City, í jarð- lagi frá Júratímabilinu. Það er mjög þykkt og tekur yfir mörg hundruð mílna svæði meðfram Klettafjöllunum að austan. Svæði þetta er ríkt af beina- grindum skriðdýra og spendýra. Beinagrindin gefur vitneskju um að Þrumueðlan hefur haft síutt- an og klunnalegan kropp og fjóra, nærri jafn langa, sterk- lega útlimi, er létu eftir sig spor á stærð við tunnubotn! Hálsinn var langur og sterklegur, en höf- uðið einkennilega lítið. Halinn var einnig digur og kröftugur. Smæð höfuðsins er í fyllsta sam- ræmi við lengdina á hálsinum, því að stórt höfuð myndi krefj- ast sterkari vöðva til þess að dýr- ið gæti leitað fæðu. Þetta er sameiginlegt með gíröffum og strútum nútimans. Þar sem höf- uðkúpan er svo lítil, verður heil- inn það einnig, samanborið við stærð dýrsins yfir höfuð. Setji maður stærð höfuðsins í sam- band við vitsmuni dýrsins, hljóta þeir að hafa verið litlir. Já, það lítur meira að segja út fyrir að taugamiðstöð þessi hafi verið ó- fullnægjandi til að stjórna hreyfingum dýrsins og hafa á- hrif á taugar þess, að minnsta kosti sést á beinagrindunum að mænugangurinn neðan til myndar einskonar holrúm, tvisvar til þrisvar sinnum stærra en sjálfan heilann. Gæti þarna hafa verið einskonar viðbótar- heili, eða „lendaheili", eins og sumir hafa nefnt þetta fyrir- bæri. Til þess að dýrið þyrfti ekki að burðast með meiri líkams- þunga en nauðsynlegt var — það hefur vegið kringum 20,000 kg. — eru mörg af beinunum hol að innan, að svo miklu leyti, sem það ekki kemur í bága við styrk- leika þeirra. Eins og áður er sagt, geta menn nokkurn veginn reiknað út útlit dýrsins eftir beinagrind- inni. En þá er önnur spurning: Er hægt að segja nokkuð með vissu um, hvernig það hefur bor- ið sig? Þá er menn byrjuðu á að setja beinagrindurnar saman, voru menn undir áhrifum af líkamsgerð fíla og annarra þekktra dýra nútímans, og létu fæturna því vera beina og háls- inn standa beint fram úr kroppnum, en hann er 5. m. á lengd. Halinn var látinn standa aftur, eins og á þekktum land- dýrum. Og svo klæddu menn beina- grindurnar holdi og blóði með því að teikna þær samkvæmt hugmyndum samtímans. Á sama hátt fóru menn að við Diplo- docus, en það er ættingi þrumu- eðlunnar. Þannig litu menn á þetta 1 Ameríku. En nú víkur sögunni til Berlín- ar. Frægur þýzkur lífeðlisfræð- ingur setti beinagrindurnar saman á mjög frábrugðinn hátt. Hann rannsakaði nákvæmlega útlimabeinin og liðamótin á gipsafsteypu af beinagrind, og komst svo að þeirri niðurstöðu, að líkami dýrsins hefði ekki hvílt á fjórum „spendýrsfótum“, eins og komizt var að orði, held- ur hefði bygging þess verið meira í líkingu við eðlur — ef taka mætti slík smádýr til saman- burðar við þessa risa. Kroppur- inn hefði verið festur milli lim- anna, er hefðu verið mjög krepptir og beinzt frá líkam- anum, svo að búkur dýrsins hefði numið við jörðina, eða því sem næst. Til þess að jafnvægið héldist, hefði hálsinn verið S- myndaður. Hvor þessara skoð- ana, um útlit dýranna, er hin rétta, verður ekki sagt með vissu, en því verður ekki neitað að síð- ari skoðunin virðist sennilegri, þar sem hún gerir dýrinu léttara um vik í hreyfingum, og annað varnarmeðal en flótta hefur það sennilega ekki haft. Brontosaurus og Diplodocus mynda, ásamt hinu enn stærra, en lítt þekkta dýri, Atlantosaur- us, einn undirflokk af hinum stóru útdauöu skriðdýrum, sem einu nafni eru kölluð Dinosaurar. Hræðileg ásýndum hafa dýr þessi í sannleika verið, bæði vegna stærðar og útlits. Kambeölurnar og Stegosaurarnir voru stór, þó að þær væru minni en þrumu- eðlurnar, þar sem þær voru „að- cins“ 10 metrar á lengd. Þær höfðu undarlega lííið höfuð, en hálsinn var mjög stuttur. Nafn

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.