Heima er bezt - 01.05.1952, Qupperneq 11

Heima er bezt - 01.05.1952, Qupperneq 11
Nr. 5 Heima er bezt 139 Gils Guðmundsson: Islenzk ættarnöfn tönnum í vörzlum sínum. Nokkr- ar þeirra sendi hann til Parísar, en aðrar tók hann með sér heim til Lundúna. Vísindamennimir bentu honum á beinagrind af Iguana, en það er dýr, sem lifir í skógunum í hitabeltinu. Dr. Mantell tók eftir því, að tenn- urnar úr þessu dýri líktust mjög þeim tönnum, sem hann hafði fundið, þó að þær síðarnefndu væru miklu stærri. Þetta var sigur fyrir hann, því að enda þótt ekkert af skriðdýrum nú- tímans geti tuggið fæðu sína (og tennurnar sem hann fann, höfðu án efa tilheyrt jurtaætu), hafði hann ætíð verið á þeirri skoðun, aö hann hefði fundið leifar af ðþekktu skriðdýri. Og brátt komu góðar fréttir frá París. Hinn frægi Cuiver viðurkenndi yfirsjón sína og lýsti því yfir, að tennurnar væru úr óþekktu skriðdýri, og gat þess til að það hefði verið jurtaœta. Hann hvatti dr. Montell til að leita að leifum beinagrindar þess, því að jafnvel einn neðrikjálki væri nóg til að staðfesta tilgátuna. Nokkur ár liðu áður en sönn- un þessi fengist. Það var fyrst árin 1841 og 1848, að menn fundu brot úr neðrikjálka með tönnum, er voru eins og þær, sem dr. Montell hafði fundið. Hið ný- uppgötvaða skriðdýr hlaut nafn- ig Iguanoton, þ. e. a. s. dýrið með Iguantennurnar. Menn hafa fundið fleiri leifar af dýri þessu, bæði í Evrópu og Ameríku, og hafa getað ákveðið stærð þess, sem hefur verið kringum 10 m. á lengdina. Það hefur líkst mjög mikið pokadýrunum, framfætur smáir en afturfætur risastórir, og auk þess sterklegur hali. Bygging afturlimanna minnir á fugla, og dýrið virðist hafa geng- ið eða hlaupið svipað og fuglarn- ir og tekið stór stökk svipað og pokadýrið. Fullkomnustu leifar dýra þessara fundust í Belgíu árið 1878. í jarðlögum frá krítar- tímabilinu fundust 23 nærri heil- ir hlutar úr beinagrind. Getið er til, að dýrin hafi lifað í nágrenni við fljót eða á sandeyrum í vatn- inu. Eyrin hefur skolazt burt og dýrin hafa sokkið og hlotið aumkunarverðan dauða. Ein- kennilegt er, að aðeins leifar Frh. á bls. 149. FRÁ RÓMVERJUM er sá siður kominn til vestrænna þjóða að nota ættarnöfn. Meðal ger- manskra þjóða tíðkuðust þau ekki að fornu, en breiddust mjög út á miðöldum, voru í fyrstu tek- in upp óbreytt, alrómversk, bæði að því er snerti merkingu og endingar. En smám saman hvarf að verulegu leyti af þeim róm- verski blærinn og þau fengu æ meiri séreinkenni meðal hverr- ar þjóðar. Kom þar að lokum, að ættarnafnasiðurinn náði fót- festu í öllum löndum Norður- álfu og varð víðast hvar rótgró- inn. Hinn forni germanski sið- ur, að kenna mann við föður sinn — í einstaka tilfelli við móður sína — hvarf víðast hvar úr sögunni. Lengi hélzt hann þó við sumstaðar til sveita, t. a. m. í Noregi og Svíþjóð, og mun þar ekki með öllu útdauður enn. En ein var sú þjóð, sem hélt fast við þá fornu venju, að karlar og konur bættu riafni föður síns við skírnarheiti sitt, til þess að ein- kenna sig frá öðrum mönnum. Það voru íslendingar. Er það kunnara en frá þurfi að segja, að svo er um allan þorra þjóð- arinnar enn í dag. Hins vegar hefur ættarnafnamálið oft ver- ið ofarlega á baugi á síðari tím- um og stundum valdið mjög hörðum deilum. Mun ég víkja nánar að þeim deilum síðar. Saga ættarnafna á íslandi er að mestu leyti ókönnuð enn. Það er því engan veginn auðvelt að segja með öruggri vissu, hvenær fyrst fer að brydda hér á þess- um erlenda sið. Eins og kunnugt er, voru kenningarnöfn algeng á íslandi í fornöld, og gengu þau einstöku sinnum að erfðum, en naumast lengur en í einn eða tvo ættliðu. Á 13., 14. og 15. öld virðist nafnið Hólmur hafa ver- ið ættgengt í karllegg, og liggur nærri að líta á það sem ættar- nafn, þótt ef til vill megi einnig telja það kenningarnafn, sem sonur tók eftir föður. Sumir fræðimenn telja, að Hólmarnir hafi verið íslenzkir menn, en aðrir hallast fremur að því, að þeir hafi verið norskir, og er ekki því að neita, að ættarnafnið styður þá skoðun. Hitt er víst, að handgengnir voru þeir er- lendum höfðingjum og því eigi ólíklegt, að þeim hafi þótt fínt að taka upp útlendan nafnsið, jafnvel þótt íslendingar væru. Á miðöldum var títt, að lærð- ir menn rituðu nafn sitt á lat- ínu, svo og föðurnafn sitt, er venjulega var haft í eignarfalli. Á 16. öld komst á sá siður, að bæta við lýsingarorði, til að tákna átthagana. Þennan hátt tóku upp flestir þeir íslending- ar, er stunduðu nám við erlenda háskóla. Þorkell Arngrímsson hins lærða, síðar prestur í Görð- um, faðir Jóns biskups Vídalíns, er í innritunarskrá háskólans í Leyden skrifaður Thorchillius Arngrimi Melstadius, og Þórður Þorláksson, síðar biskup í Skál- holti, er við háskólann í Strass- burg skrifaður Theodorus Thor- lacius Hola Islandus. Til þessa siðar eiga rót sína að rekja hin latnesku ættarnöfn, sem íslenzkir menn hafa borið og bera sumir enn í dag. Arn- grímur Jónsson hinn lærði rit- aði nafn sitt á bókum Arngrim- us Jonas (eða Jonæ) Islandus, og stundum tvöfalt vaff (w) fyr- ir aftan. Arngrímur var frá Auð- unarstöðum í Víðidal, og átti w- ið að tákna Widalinus. Þaðan er komið Vídalíns-nafnið, sem barnabörn Arngríms tóku upp um aldamótin 1700. Thorlacius- nafnið tóku upp afkomendur Þorláks biskups Skúlasonar. Að Hólms-nafninu frágengnu munu þessi tvö ættarnöfn vera elzt á íslandi. Ýmsir fleiri íslendingar tóku upp á 18. og 19. öld ættarnöfn með latneskum endingum, t.a.m. Johnsonius, Olavius, Thorkelín, Espólín, Hjaltalín og Snókdalín, svo að nokkur séu nefnd. Ann- ars voru flest þau ættarnöfn, sem íslenzkir menn tóku upp á

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.