Heima er bezt - 01.05.1952, Qupperneq 23

Heima er bezt - 01.05.1952, Qupperneq 23
Nr. 5 Heima er bezt 151 skurði. Hún er talin um það bil 800 ára gömul og það er álitið, að hún hafi staðið lengur í Kirkjubæ en reykstofan, sem rak á fjöruna. Milli prestaskólans og reyk- stofunnar eru göng og upp úr þeim stigi upp í hina fornu skrif- stofu biskupanna, sem var uppi yfir prestaskólanum. Kóngs- bændurnir hafa hana enn þá fyrir skrifstofu, og hún er eins og hún var, heldur sínum gömlu einkennum og forna sniði. Með norðurhlið reykstofunn- ar eru löng göng, og þar er hlemmur einn í gólfinu. Þar var farið niður í fangélsið eða myrkvastofuna. — Þangað niður kemst engin glæta af dagsbirtu. Sunnan við reykstofuna eru nýju stofurnar. Við nefnum þær svo, því að þetta er yngsti hluti hússins, byggður 1773. Stofurn- ar, sem voru þarna áður, fóru í snjóflóðið 1772. Flóöinu fylgdi mold og grjót, sem fyllti kjallar- ana undir þeim. En raunar eru margir fleiri grunnar með opn- um kjöllurum umhverfis Kirkju- bæ, sem einnig fylltust í flóðinu. Fyrr á tímum voru miklu fleiri hús í Kirkjubæ en nú. Kjallararnir undir nýju stof- unum hafa nú verið tæmdir að mestu. Við uppgröftinn fundust ýmsir munir, þar á meðal gömul vígöxi og gullhringur með gljá- flögusteini. Hringurinn er talinn vera frá því um ellefu hundruð. Ef um það væri að ræða að grafa upp og tæma hina kjallar- ana frá biskupatímanum — eða frá því áður en snjóflóðið kom, verður að fjarlægja fimm til sex þúsund rúmmetra af mold og grjóti. Þetta verk er áformað að hefja nú í ár (1952). Þessi gamla bygging, sem sagt hefur verið frá hér að framan, var fyrrum liðlega 50 metrar á lengd, en er nú aðeins 30 metrar. Breiddin er mismunandi — þetta frá tólf til sextán metrar. Kjall- araveggirnir eru um tvo metra á þykkt og fimm metra háir, hlaðnir úr blágrýti lögðu í kalk úr brenndum skeljasandi, sem var hrært út í mjólk í stað vatns. Suðaustur frá bænum standa múrveggir dómkirkjunnar. Tóft- in er 38 metra löng, 12 metra breið og veggirnir 10 metra háir og tveggja metra þykkir. Hún er öll hlaðin úr blágrýti á sama hátt og áður er sagt, þar sem minnst er á kjallaraveggina. í austurhorninu er ferhyrnd við- bygging, sem kölluð er Nunnu- klaustrið. Þessi kirkja var helguð Orkn- eyja-jarlinum, Magnúsi helga, en því miður hefur smíði henn- ar aldrei verið lokið. Áður en hún var vígð er sagt að bráða- birgðaþak hafi verið sett á hana, er síðan fúnaði og féll niður og siðan hefur tóftin staðið þak- laus. Höfundur þessarar grein- ar er sonur Jóannesar Paturssonar kóngsöónda i Kirkjubæ og konu hans, Guðnýjar Eiríksdóttur, Björnssonar frá Karlsskála í Reyðarfirði. Jóannes Pat- ursson var lengst œvi for- ingi þjóðar sinnar i sjálf- stæðisöaráttunni, auk þess sem hann var gott skáld og merkur frœðimaður. Hans verður lengi minnzt sem eins djarfasta forystu- manns, sem saga nútímans þekkir. Magnúsar-dómkirkjan var gerð í gotneskum stíl með við- eigandi oddbogum og auðsjáan- lega hefur verið áformað, að þakið yrði í sama stíl og úr steini. Aðeins á nunnuklaustrinu var þakið fullgert, en það féll niður í snjóflóðinu 1772. Allar þær mörgu aldir, sem kirkjan hefur staðið þaklaus, hefur hið fagurlega gerða stein- skraut, sem prýðir veggina, og líkneski, sem hún hefur að geyma, veðrast og máðst. Þó hafa tvö líkneskjanna haldið sér sæmilega. Annað þeirra, sem er uppi yfir syðsta gluggaopinu, er af Erlendi biskupi. Á biskupsár- um hans 1269—1308, var kirkjan byggð að mestu leyti — eða það, sem upp komst af henni. Hitt líkneskið er af Hákoni V. Magn- ússyni, Noregskonungi (Hákon háleggur). Var mikil vinátta með þeim Erlendi biskupi og kóngi. Af steinskrautinu innan á veggjum kirkjunnar má nefna meðal annars Maltesarkrossa greypta í sandstein, tólf að tölu. -— Þessir steinar staðfesta sögn- ina um það, að kirkjan hafi ver- ið vígð. Á austurgafli kirkjunnar að utanverðu er „gullskápurinn“. Það er tálgugteinn (þvelju- steinn), sem er felldur í múrinn. í hann er skorinn mynd af kross- festingu Jesú, Maríu mey og Maríu Magðalenu. 1904 var steinninn losaður og tekinn úr veggnum í rannsóknarskyni. Kom þá í ljós, að ferhyrnt hólf var greypt í miðja þá hlið steins- ins, sem inn sneri. í hólfinu voru blýöskjur og í þeim sjö helgir dómar og búið um þá hvern um sig. Við hvert knýti var fest bók- fellsræmu og á þær ritað með rúnaletri á latínu, hvað knýtin hefðu að geyma. Fjórar þessara áletrana var unnt að lesa og þýða: 1. tréflís úr krossi Krists. 2. pjatla úr klæðnaði jómfrú Maríu. 3. bein úr íslenzka dýrlingnum, Þorláki biskupi. 4. bein úr Orkneyja-jarlinum, Magnúsi helga, sem kirkjan er helguð. Þrjár áletranir voru ólæsileg- ar. Ekki er kunnugt um, að þessi steinn hafi verið tekinn úr veggnum nema í þetta eina sinn. Þá skall líka hurð nærri hælum, að munirnir væru teknir og farið með þá á þjóðminjasafnið í Kaupmannahöfn. Það var meira að segja farið af stað með þá og þeir voru komnir til Þórs- hafnar, en þá kom faðir minn því til leiðar með góðs manns að- stoð, að þeir fóru aldrei lengra og voru sendir aftur til Kirkjubæj- ar. Síðan voru öskjurnar látnar aftur á sinn stað, steinninn fest- ur á ný í veggnum, og þar eru hinir helgu dómar á sínum stað enn í dag. Magnúsar-dómkirkjan er yngsta kirkjan í Kirkjubæ; samt er hún frá byrjun 14. aldar. Þeg- ar Erlendur biskup andaðist, 1308, var hætt við smíði hennar. Kirkjan, sem við notum hér nú, sóknarkirkjan okkar, er Ól- afskirkja — Munkakirkja er hún stundum nefnd — var tekin í

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.